27.2.17
Kæri félagsmaður
Nú er kominn sá tími að greiðsluseðillinn fer að birtast í heimabankanum þínum . Í ár langar mig að biðja ykkur um að láta mig vita, ef þú kæri félagsmaður ætlar ekki að greiða árgjaldið.
2017 er árið okkar, þar sem við ætlum að greiða þennan yndislega seðill, því tilgangur og markmið Tíunnar, er einfaldlega að efla samskipti og félagsanda bifhjólafólks.
Tían er nefnilega ég og þú, því ekki viljum við láta þessi samtök niður falla. Legg ég eindregið til að þú greiðir seðillinn í ár. Því mín von er að Tían verði sterkari og samheldnari um ókomin ár,
Í ár ætlum við að láta eins og hálfvitar
Með von í hjarta
Kv. Sigga Dagný, gjaldkeri Tíunnar
sigridurdagny@simnet.is
21.2.17
Koma svo 😃 kaffi á könnunni og jafnvel góð tónlist í útvarpinu 😃
19.1.17
Hærri tollar á mótorhjól vegna nautakjötsbanns
Bandaríkin vilja hækka tolla á mótorhjólum frá Evrópusambandinu til að mótmæla banni Evrópusambandsins á nautakjöti sem inniheldur vaxtarhormón. Bannið myndi ná til fjölda vöruflokka, meðal annars mótorhjóla af stærðinni 51-500 rúmsentimetrar.
Wayne Allard, forseti AMA sem er Ameríska Mótorhjólasambandið segir að það sé engin rökrétt tenging milli nautakjöts og mótorhjóla. “Það er fáránlegt að láta sér detta þetta í hug” segir hann og bætir við að verndartollar eigi aðeins við innan tiltekins málaflokks, í þessu tilfelli landbúnaðarvara.
Dolf Willigers, aðalritari FEMA sem er Evrópska Mótorhjólasambandið hefur áhyggjur af hugsanlegu banni og að það geti leitt til minna framboðs á minni gerðum mótorhjóla, einnig í Evrópu. “Dæmigert svar Evrópusambandsins yrði svo að hækka tolla á mótorhjól frá Bandaríkjunum þannig að enginn hefði efni á þeim lengur” sagði Dolf. Árið 2015 seldi Harley-Davidson 37.000 mótorhjól í Evrópu svo líklegt er að það hefði mikil áhrif á mótorhjólaframleiðandann.
bifhjol.is
1.1.17
Frá Stjórn
Stjórn Tíunnar óskar ykkur öllum árs og friðar með þökk fyrir samveruna á árinu
😎Hlökkum til að hitta ykkur öll á nýju ári
🤘L&RStjórn Tíunnar
23.12.16
Jólakveðja frá Stjórn
Megi 2017 færa ykkur skemmtilega hjólatúra og sólina í fangið 😎
Stjórn Tíunnar
6.10.16
Leðurklæddir ljúflingar
Pólskir mótorhjólakappar í Unknown Bikers láta gott af sér leiða. Fluttu til Íslands til að vinna og segja gott að búa á Íslandi.
Félagar í mótorhjólaklúbbnum Unknown Bikers eru allir frá Póllandi og búsettir á Íslandi en segja það þó alls ekki skilyrði fyrir inngöngu í klúbbinn að vera pólskur að uppruna, heldur séu allir velkomnir.
Í hópnum er mótorhjólafólk af Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, frá Akranesi, Ísafirði og víðar. Flestir hafa þeir ekið hringinn í kringum Ísland og sumir oftar en einu sinni.
Blaðamaður Víkurfrétta hitti þá Arkadiusz Zarzycki, Tomasz Losiewicz, Damian Geriak, Wociech Julkiewicz og Marcin Dobrzynski á kaffihúsi á dögunum. Eins og mótorhjólaköppum er von og vísa voru þeir klæddir í leður frá toppi til táar og nokkrum kaffihúsagestum brá örlítið í brún við að sjá þá hópast inn á kaffihúsið.
Unknown Bikers mótorhjólaklúbbar eru starfræktir víða um heim en sá fyrsti var stofnaður í Bandaríkjunum. „Við erum nú bara venjuleg fólk og keyrum saman, höldum partý og spjöllum,“ útskýrir Damien. Þeir hafa einnig látið gott af sér leiða og á dögunum gáfu þeir leikskólanum Hjallatúni bækur á pólsku til að nota við móðurmálskennslu barna af pólskum uppruna. Einn félagi þeirra úr klúbbnum er alvarlega veikur og hafa þeir stutt við bakið á honum og fjölskyldu hans.
Mun lægri laun í Póllandi
Allir fluttu félagarnir til Íslands vegna vinnu og hafa dvalið hér mis lengi. Þeir segja erfitt að fá góða, vel launaða vinnu í Póllandi og því hafi þeir ákveðið að flytja til Íslands með fjölskyldum sínum. „Í stórum bæjum og borgum í Póllandi er ástandið betra en á minni stöðum er þetta erfitt.Pólland er öðruvísi og mikil skriffinnska og háir skattar sem fylgja því að ráða fólk til vinnu,“ segir Marcin. Arek bætir við að fyrir vinnu í eina klukkustund í Póllandi geti hann keypt þrjá lítra af bensíni en á Íslandi tíu lítra.
Þeir eru allir sammála um að hafa ekki aðeins flutt til Íslands til að vinna heldur líka til að njóta lífsins. Þeir sakna Póllands og fara þangað í heimsókn að minnsta kosti einu sinni á ári. Þeir eru sammála um að gott sé að búa á Íslandi og segja lítið mál að bindast þeim innfæddu vinarböndum.
Stundum hitta þeir félaga úr ýmsum öðrum mótorhjólaklúbbum. Pólland nýtur sífellt meiri vinsælda
sem áfangastaður íslenskra ferðamanna og stundum þegar félagar Unknown Bikers ferðast þangað eru fleiri Íslendingar um borð í flugvélunum en Pólverjar. Þeir leggja áherslu á að Pólland sé fallegt land þar sem margt er að skoða.
Hjóla um allt Ísland
Síðasta sumar fóru nokkrir meðlimir Unknown Bikers hringinn í kringum Ísland og óku þá 2430 kílómetra á einni viku. Eins og áður sagði býr einn meðlimanna á Ísafirði og kíktu þeir íheimsókn til hans í leiðinni. Af uppáhalds stöðum á Íslandi nefna þeir Aldeyjarfoss, Barnafossa, Egilsstaði og Raufarhöfn. Þeir hafa allir átt mótorhjól síðan á unglingsárum. Marcin kom með sitt
hjól með sér með Norrænu þegar hann flutti til Íslands fyrir rúmlega þremur árum. „Það er svo gaman að vera á mótorhjóli, bara að hjóla eitthvert. Stundum á ég ekki bíl en ég á alltaf mótorhjól,“ segir hann. Arek á tvö mótorhjól á Íslandi og tvö í Póllandi. Þegar Wojtek seldi mótorhjólið sitt eitt sinn grét dóttir hans sig í svefn, svo ljóst er að mótorhjólin eru meira en bara farartæki hjá Unknown Bikers og þeirra nánustu.
5.10.16
Heimsmótabók Guinness hefur staðfest heimsmetið (2016)
Ævintýrakonan Sigríður Ýr hyggur á heimsmet
Sigríður Ýr Unnarsdóttir ætlar að hefja meistaranám í Háskóla Íslands í byrjun september, en fyrst ætlar hún að setja heimsmet í ekinni vegalengd á svokölluðu pocket-mótorhjóli. „Ég veit ekkert um mótorhjól, en hugmyndin var bara svo fyndin og skemmtileg að ég og bandarískur vinur minn ákváðum að sækja um til heimsmetabókar Guinness að fá að setja þetta met,“ segir hún við DV.
Sigríður er gefin fyrir ævintýri, en vinur hennar og mótorhjólafélagi, Mike Reid, er að hennar sögn enn meiri ævintýramaður. „Nýlega fórum við þvert yfir Bandaríkin á mótorhjóli og svo aftur til baka, og söfnuðum dágóðri fjárhæð fyrir góðgerðarsamtök, og í lok ferðarinnar datt okkur heimsmetið í hug.“ Í ljós kom að heimsmetið á pocket-hjóli væri sennilega mögulegt að slá.
Sigríður Ýr hefur þó aldrei svo mikið sem sest á svona smámótorhjól. „Þetta er pínulítið hjól, passar kannski fyrir 8 ára barn, svo að maður þarf að sitja á því með hnén upp að öxlum. Það kemur sér vel að hafa stundað jóga um árabil, því að við munum sitja á hjólunum í allt að 10 tíma á dag.“ Með í för verður þriðji aðilinn sem hefur góða þekkingu á hjólunum.
![]() |
| Sigríður Ýr |
Víðast hvar er harðbannað að aka á svona smáhjólum á venjulegum umferðargötum. „Við ákváðum að hjóla í gegnum nokkur miðríki Bandaríkjanna, nánar tiltekið frá Ohio og niður til Nýju-Mexíkó. Lögin reyndust nægilega sveigjanleg þar.“ Ferðin hefst þann 5. september með fallhlífarstökki í Ohio og svo munu þremenningarnir hoppa upp á hjólin og leggja í 2.500 kílómetra ferðalag sem endar á mótorhjólasýningu í Nýju-Mexíkó þar sem tekið verður á móti þeim með pomp og prakt.
Lokaundirbúningur stendur nú yfir, en Sigríður flýgur utan á laugardaginn.
DV 27.8 2016
__________________________________________________________________________________________________________
„Hafði aldrei séð svona hjól“
Hinn 5. september mun Sigríður Ýr Unnarsdóttir hefja 2.500 kílómetra langt ferðalag á svokölluðu Pocket Bike-mótorhjóli, sem er mótorhjól í barnastærð. Markmiðið er að komast í heimsmetabók Guinness fyrir að ferðast lengstu vegalengdina á Pocket Bike-hjóli.
„Hugmyndin vaknaði í byrjun sumars, við Michael fórum fyrst í hringferð um Bandaríkin á mótorhjóli og við erum að reyna að finna leiðir til þess að hittast og gera eitthvað skemmtilegt í leiðinni. Þessi ferð gekk svo ótrúlega vel að við fórum strax að skoða hvað við gætum gert næst,“ segir Sigríður, sem mun ferðast með Michael Reid, kærasta sínum, og Chris Fabre, sem er mótorhjólasérfræðingur hópsins.
„Chris vinnur hjá Triumph-umboðinu í Philadelphia. Við leituðum til þess með styrktarbeiðni og það endaði á því að senda starfsmann til að ferðast með okkur. Hann er í rauninni hjólameistarinn.“
Áður en Sigríður fór hringferðina um Bandaríkin með Michael í byrjun sumars hafði hún aldrei sest á mótorhjól. „Ég hafði aldrei á ævinni séð svona Pocket Bike-hjól sem ég ætla að setja heimsmet á,“ segir Sigríður.
Byrja í fallhlífarstökki
Ferðalagið mun hefjast með fallhlífarstökki á frægasta stökksvæði Bandaríkjanna, Start Skydiving, í Ohio. Þaðan verður haldið gegnum miðhluta Bandaríkjanna og er endastöðin á Golden Aspen-mótorhjólasýningunni í Nýju Mexíkó. Ferðin mun taka 12 daga og áætlar Sigríður að koma í mark ásamt förunautum sínum 15. september.
Núverandi heimsmet var sett 8. ágúst 2009 þegar Ryan Galbraith og Chris Stinson óku 718 kílómetra. Því var upphaflegt markmið Sigríðar og Michaels að fara 800 kílómetra, en í ljósi þess að tilraun var gerð að heimsmetinu árið 2014 þar sem eknir voru 2.264 kílómetrar ákváðu þau að hjóla 2.500 kílómetra, ef svo skyldi vera að Guinness staðfesti heimsmetstilraunina árið 2014, en það hefur ekki enn verið gert. „Það var bara ekki búið að staðfesta öll gögnin úr þeim tilraunum og ég veit ekki hvort það á einfaldlega eftir að staðfesta þau eða hvort eitthvert skilyrði var ekki uppfyllt,“ segir Sigríður.
Þurfa alls konar búnað
[caption id="attachment_7661" align="alignright" width="300"] Þau eru af minni gerðinni, pocketbike mótorhjólin.Það er ekki hlaupið að því að setja heimsmet. Sigríður Ýr og ferðafélagar hennar þurfa að uppfylla ýmis skilyrði sem Guinness setur til þess að heimsmetstilraunin teljist gild.Taka þarf upp í að minnsta kosti fimm mínútur af hverjum klukkutíma sem þau keyra. Til þess þarf útivistarmyndavél á öll hjólin. Einnig þarf fylgdarbíl með upptökutæki. Sigríður, Michael og Chris þurfa þar að auki að vera með GPS- staðsetningartæki á sér.
Þessi útbúnaður er ekki ódýr og því hafa ferðalangarnir sett upp styrktarsíðu á gofundme.com, þar sem fólki er boðið að heita á þríeykið áður en þau halda í þessa 12 daga ferð í gegnum níu ríki í hjarta Bandaríkjanna, frá Ohio til New Mexico.
MBL. 17.8.2016
__________________________________________________________________________________________________________
Sigríður Ýr heimsmethafi:
Ég hefði aldrei trúað því
Heimsmótabók Guinness hefur staðfest heimsmetið
„Ég hefði aldrei trúað því að ég gæti orðið heimsmeistari,“ segir Sigríður Ýr Unnarsdóttir á Facebook. Þar greinir hún frá því að Heimsmetabók Guinness hafi staðfest heimsmet sem hún setti á svokölluðu „pocketbike“ mótorhjóli. Hún ferðaðist 2.500 kílómetra á hjólinu, lengra en nokkur annar hefur gert.
DV ræddi við Sigríði fyrst í ágúst, þegar skipulagning stóð yfir og svo fyrr í vikunni þegar hún var búin að hjóla 2300 kílómetra ásamt tveimur vinum sínum. Mike Reid og Chris Fabre. Pocketbike-hjól eru afar smá mótorhjól en á þeim ferðuðust þremenningarnir í 12 daga. „Við keyrðum að meðaltali í átta klukkustundir á dag og meðalhraðinn var 55 kílómetrar á klukkustund. Það kom sér vel að ég hef bakgrunn úr jóga enda líkamsstaðan frekar óþægileg á hjólunum. Hnén voru nánast upp að öxlum,“ sagði Sigríður Ýr við DV.
Nú hefur heimsmetið verið staðfest. „Segja má að allur tilfinningaskalinn hafi komið fram, hlátur, grátur, vonleysi, gleði og allt þar á milli.“ Hún segist varla trúa því enn að þetta hafi tekist. „Þetta sannar að hver sem er getur orðið hvað sem er, á meðan maður er tilbúinn að vinna fyrir því.“
Hún hvetur fólk til að láta drauma sína rætast, sama hvernig fólk bregst við hugmyndunum. „Ég fékk alls konar mis gáfulegar athugasemdir í upphafi en ég lærði að láta það ekki á mig fá og gefa mig alla í þetta. Þetta var ótrúlega erfitt en í leiðinni gífurlega lærdómsríkt og ég mun búa að þessari lífsreynslu alla ævi.“ DV
FRÉTTIR 5.10.2016 DV





