23.7.04
30.6.04
(Aprilia RSV mille R Tuono Racing) prufuakstur
REYNSLUAKSTUR Aprilia Tuono
ALLLANGT er nú síðan Íslendingar lærðu að meta ítalska matargerðarlist; kveður svo rammt að þessu að ófáir Mörlandar telja ítalska matseld þá lystugustu sem völ er á í heiminum. En þeir vita það líka sem vilja að Ítalir eru ekki síðri listamenn í smíði mótorhjóla. Að minnsta kosti viðurkennir undirritaður fúslega að munnvatnsframleiðslan tók mikinn kipp er honum bauðst að reynsluaka hjólinu sem hér er til umfjöllunar: Aprilia Tuono Racing (það heitir reyndar fullu nafni Aprilia RSV mille R Tuono Racing).
Hér er á ferðinni mikill eðalgripur. Þetta er „nakin“ (svokölluð „streetfighter“) útgáfa af RSV mille „reisernum“ frá Aprilia. Munurinn er sá að Tuono-útfærslan (ítalska orðið tuono þýðir þruma) er nær klæðningarlaust, með 17 cm hærra og 80 cm breiðu rörstýri, en sömu kappaksturshjólstæknina að öllu öðru leyti. Háa og breiða stýrið gerir setuna á hjólinu upprétta, færir þyngd af framhjólinu og mun auðveldara fyrir ökumann að gera ýmsar kúnstir á hjólinu, svo sem að prjóna og fleygja því með leikandi hætti úr einni krappri beygjunni í aðra. Reynsluaksturshjólið er þar að auki útbúið „racing-kitti“, en því fylgir m.a. fjöðrun af beztu fáanlegu gerð frá Öhlins í Svíþjóð, þar með talinn stýrisdempari; alls staðar þar sem er plast utan á grunnútgáfunni er fislétt karbon; hjólið er lægra gírað (16 tanna driftannhjól í stað 17) og skiptingin „öfug“ (fyrsti gír upp, hinir niður). Síðast en ekki sízt er Racing-útgáfan útbúin „heitari“ EPROMvélarstýrikubbi og opnari hljóðkút (sem gefur 5 hö meira afl).Það fer ekki framhjá neinum sem skoðar þetta hjól að það er smíðað bæði af ástríðu og natni. Það ber stolt tækni sína á torg fyrir augu skoðandans. Allir íhlutir í hæsta gæðaflokki og frágangur til fyrirmyndar. Kraftalegt tveir-í-einn-eðalstálpústkerfið undirstrikar að hér er aflmikið tæki sem er gert til að það líti ekki bara vel út heldur sé notað. Gæðaleikfang fyrir fullorðna.
Þessi tilfinning styrkist um allan helming þegar setzt er á hjólið og 1000-kúbika V2-vélin (sem kemur frá Rotax í Austurríki) vakin til lífs. Bassa-urrið sem út úr hljóðkútnum kemur og titringurinn sem vélin gefur frá sér á lágsnúningi kitlar eftirvæntingartaugarnar hressilega.
Í essinu sínu í beygjum
Nákæm skiptingin skilar hinu feikimikla togi vélarinnar (mest 101 Nm) hratt og örugglega til 190 mm breiðs afturdekksins og áður en maður veit af er maður búinn að týna umferðinni og kominn út á þjóðveginn. Á beygjuríkum þjóðvegarköflum er Tuono-ið í essinu sínu; það finnst fljótt hvað fjöðrunin vinnur sína vinnu vel og skilar ökumanninum mikilli öryggistilfinningu þegar hann húrrar hjólinu úr einni beygjunni í aðra, jafnvel þótt ójöfnur séu í malbikinu (eins og reyndar alls staðar er á íslenzkum vegum). Hágæðahemlakerfið frá Brembo ýtir enn undir þessa öryggistilfinningu, svo og glussastýrð „anti-hopping“-kúplingin sem gerir að verkum að þegar skipt er niður er hverfandi hætta á að vélarbremsan læsi afturhjólinu.
Hin upprétta áseta veldur því að sjálfsögðu að ökumaður tekur á sig töluverðan vind, en lítil vindhlífin veitir samt furðugott skjól ef hallað er vel fram á stýrið breiða. Á lokaðri braut kvað víst þannig vera hægt að ná 245 km hámarkshraða, sem telst anzi gott fyrir „nakið“ hjól.
Það ánægjulegasta við að keyra þetta hjól eru þó eiginleikar vélarinnar. Þar fer saman mikið tog alveg frá um 3.000 snúningum upp í snúningsþakið, sem er ekki fyrr en handan við 10.000 snúninga, og snúningsvilji vélarinnar sem lætur mann ekki standast freistinguna að snúa því duglega í hverjum gír, þótt hið góða tog leyfi líka mjög letilegar skiptingar. Þetta breiða snúningssvið með svo góðu togi þýðir að hjólið er gríðarsnöggt upp úr hvaða hraða sem er.Í stuttu máli: hér er á ferðinni ótrúlega meðfærilegt hjól sem þó getur allt sem öflugustu sporthjól geta. Og það með ítölskum stíl.
Gamanið kostar reyndar sitt: 2.252.000
kr. í Racing-útfærslunni. Það er 773.000
krónum meira en grunngerð Tuono-hjólsins og sýnir það glögglega að toppklassaíhlutir eins og Öhlins-fjöðrunin kosta sitt.
auar@mbl.is
morgunblaðið 30.6.2004
LANDSMÓT Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, Snigla, 2004
LANDSMÓT Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, Snigla, fer fram í Húnaveri um helgina.
Dagskráin á þessu 20 ára afmælismóti samtakanna hefst strax á morgun, fimmtudaginn 1. júlí, og lýkur á sunnudag, 4. júlí. Dansleikur verður á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöldinu.
Fram koma hljómsveitirnar KFUM and the ANDSKODANS, Sniglabandið, EXIZT og Dark Harvest. Meðal dagskrárliða verða annars Zippo-mundun, teygjuganga, mótorhjólategunda-reipitog, „skíðaganga“, „þrífótur“ og hringekja.
Allt mótorhjólafólk er velkomið, að því er segir í fréttatilkynningu.
Ákvað 14 ára að gerast Snigill
![]() |
| Dagrún Jónsdóttir |
Ég ákvað þegar ég var 14 ára og las grein um stofnun Sniglanna að verða Snigill þegar ég yrði stór.
Ég byrjaði strax að pæla í því sem stóð í greininni að ná þyrfti 13 undirskriftum til að komast í hópinn," segir Dagrún Jónsdóttir en hún hefur verið í Sniglunum í 13 ár.
Um þessar mundir eiga samtökin 20 ára afmæli og segir Dagrún tímamótanna minnst með ýmsum hætti.
"Við héldum veglega sýningu í vor, vorum með dagskrá 1. maí og nú um helgina höldum við landsmót í Húnaveri."
Dagrún segir ekki aftur snúið eftir að gengið er í félagsskapinn. "Þetta heltekur flesta sem byrja. Jafnvel þó að fólk taki sér frí í einhvern tíma þá snýr það aftur að lokum." Þegar Dagrún byrjaði 20 ára gömul voru konurnar ekki margar en hún segir að þeim fari sífellt fjölgandi. Sniglarnir halda mikið hópinn, skemmta sér og hjóla saman.
"Við tökum upp á ýmsu, höldum árshátíðir, jólaböll, landsmót og förum í ferðalög. Eins höfum við barist fyrir réttindum bifhjólafólks á Íslandi og unnið að öryggismálum."
Sjálf er Dagrún forfallinn áhugamaður um Harley Davidson og er dugleg að taka við skemmdum mótorhjólum til að gera upp. "Ég á elsta ökufæra mótorhjólið á landinu, 1931 árgerð af Harley.
Ég starfræki líka Vélhjólaklúbb gamlingja en inngönguskilyrðið í hann er að eiga mótorhjól sem er 25 ára eða eldra," segir Dagrún og bætir því við að hún sé einræðisherra í þeim 40 manna hóp. Meðalaldur Sniglanna er sífellt að hækka og segir Dagrún ástæðuna fyrir því vera margþætta.
"Tryggingarnar eru of dýrar fyrir ungt fólk og eins er þetta tískufyrirbrigði hjá eldra fólki að keyra um á mótorhjóli. Við erum síðan alltaf að eldast."
Dagrún segir ofurtöffarastimpilinn nánast vera farinn af mótorhjólafólki á Íslandi og segir hún það hafa verið nauðsynlegt á sínum tíma. "Fyrstu árin var aðallega ungt fólk í Sniglunum og það var hrikalegur töffaraskapur í gangi. Við þurftum hins vegar að laga ímyndina þegar við fórum að vinna í auknu mæli að umferðarátökum og með hinu opinbera. Nú erum við hálfgerð englasamtök."
Afmælislandsmót Sniglanna verður nú um helgina í Húnaveri og verður blásið til þriggja dansleikja. Dagskráin hefst í kvöld og mun standa næstu þrjá daga. Fjórar hljómsveitir skemmta næstu kvöld, KFUM and the andskotans, Sniglabandið, Exitst og Dark Harvent.
16.6.04
Enduro Test 2004
| Búið að stilla hjólunum upp á Reykjavíkurflugvelli. Þrátt fyrir hamagang stóðust öll hjólin þrautirnar án þess að bila sem telst meðmæli í sjálfu sér. |
Ertu spennt/ur að vita hvað er hvað í heimi 450cc fjórgengishjóla? Ef svarið er já, lestu þá áfram því við settum 5 heitustu hjólin í dag í reynsluakstur þar sem kostir og gallar hvers hjóls komu glöggt fram þegar þau fóru undir hamarinn. Þórir Kristinsson hafði umsjón með undirbúningi og framkvæmd reynsluakstursins.
Hjólin sem um ræðir eru GasGas 450 fse,Yamaha WR450, Husaberg 450 Fe, TM 450 VOR 450. KTM 450
Til stóð að fá KTM 450 með í þennan reynsluakstur, enda þykja þau standa mjög framarlega í þessum flokki en því miður var ekki unnt að verða við þeirri ósk okkar. Til að fá sem breiðasta innsýn inn í reynsluaksturinn fékk ég til liðs við mig þá Heimi Barðason, Jón Bjarnarson og Reyni Jónsson sem allir eru gamlir refir í sportinu.GasGas
Husaberg FE450
Yamaha WR 450
fékk hjólið mínus í kladdann fyrir að þreyta okkur alla óþarflega mikið í vinstri hendinni. WR er ekki þyngsta hjólið í kílóum talið en þar sem þyngdarpunktur hjólsins er fremur ofarlega fer hvert kíló að gera meira vart við sig, sérstaklega í beygjum. Hjólið er fremur hátt og stórt og hentar sérstaklega vel fyrir hávaxna ökumenn. Fjöðrunin vinnur miðlungsvel úr þungum og hægum höggum, (s.s. í djúpum sandi á lítilli ferð), en þegar hraðinn eykst er Jamminn kominn á heimavöll og étur upp þær hindranir sem á vegi hans verða. Hjólið fæst hjá Arctic Trucks/Yamaha og kostar 911.000 kr. (www.yamaha.is). Ef líkja ætti Yamaha WR við hest teldist það seint góður barnahestur. Til þess er það of stórgert og gróft. Aftur á móti er hjólið stórskemmtileg blanda af vinnu og veðhlaupahesti. Hægt er að þeytast á því allt árið án þess að það slái feilpúst. Ef þér skyldi svo detta í hug að keppa á hjólinu þarf ekkert til nema bensín á tankinn og góða skapið.
TM450
VOR
Hvað er best? Að útnefna eitt hjól sem afgerandi sigurvegara er ekki hægt með góðu móti. Hér er þetta orðið spurning um að hver og einn vegi kosti og galla hvers hjóls í samræmi við óskir sínar. GasGas er líklega það hjól sem hvað flestir yrðu ánægðir með, eða ylli hvað fæstum vonbrigðum eftir því hvernig menn líta á þetta.
3.6.04
Husqvarna sigraði á Klaustri
Um síðustu helgi var eitt allra stærsta akstursíþróttamót landsins haldið á Kirkjubæjarklaustri. Um 400 keppendur frá 4 löndum komu saman til að keppa í þolakstri á torfæruhjólum en áætlað er að í heild hafi hátt í tvö þúsund manns mætt á svæðið. Bjarni Bærings fylgdi straumnum á Klaustur og gerir hér mótinu skil.
Um 400 keppendur mættu til leiks
Svíaslagur um forystuna
Yamaha-liðið með þá Micke Frisk frá Svíþjóð og Brent Brush frá Bandaríkjunum innanborðs tókstrax forystu og leiddi keppnina framan af. Micke var að keppa í sitt þriðja skipti en Brent hefur einu
sinni áður keppt á Klaustri. Husqvarna-liðið, skipað Svíanum Anders Eriksson og Bretanum Tony
Marshall, fylgdi fast á eftir, gaf Yamaha-liðinu aldrei færi á að komast frá þeim og náði forystu á köflum. Þriðja parið sem blandaði sér í baráttuna samanstóð af þeim Ed Bradley frá Bretlandi og Einari Sverri Sigurðarsyni á KTM.
Tryggði sigurinn í síðasta hringnum
| Heimir Barðason er ekki kallaður Lopi
að ástæðulausu, enda keppir hann jafnan í þéttprjónaðri lopapeysu. |
31.3.04
Nýjustu motocrosshjólin mætast í risareynsluakstri
| Suzuki /Honda og Yamaha |
| Kawasaki /TM og KTM |
að tala um stærsta reynsluakstur sinnar tegundar á Íslandi þegar leidd voru saman öll nýjustu motocrosshjólin í létt- og millivigtarflokki.
harða samkeppni. Suzuki RMZ og Kawasaki KXF 250, sem einnig hafa sést á síðum Bíla og eru eineggja tvíburar enda afrakstur samstarfs Suzuki og Kawasaki og því í raun sama hjólið að litnum undanskildum. Þótt ekki hafi verið kostur á að reyna fjórgengishjól frá KTM og TM eiga þeir sína fulltrúa í þessum hópi í formi öflugra 125cc tvígengishjóla og höfðum við þau með í þessum reynsluakstri enda keppa þau í sama flokki. Hins vegar mega menn búast við að sjá ný og öflug fjórgengishjól rúlla af færibandinu frá þessum framleiðendum í náinni framtíð.
Suzuki RMZ250 og Kawasaki KXF250
Samvinna Kawasaki og Suzuki hefur nú litið dagsins ljós og senda verksmiðjurnar í fyrsta skipti fjórgengishjól inn í létt/millivigtarflokkinn sem hafa hlotið nöfnin KXF og RMZ.
Verkaskiptingin var þannig að Suzuki hannaði vélina og Kawasaki smíðaði grindina og fjöðrunina (Kayaba). Fjöðrunin er fín en við fundum fyrir smáóstöðugleika á ferð. Ekkert alvarlegt þó. Hjólin tvö eru þau sömu fyrir utan lögun og lit á plasti hjólsins. Að sitja á hjólunum er þægilegt enda hjólin grönn og nett í laginu. Mjög hávöxnum mönnum mun þó finnast fulllítið bil frá sæti niður á
dag í erfiðri sand- og vikurbraut þeirra Eyjamanna. Helsti ókostur þessara hjóla er e.t.v. sá að töluvert
var um titring frá vél upp í stýri og skrifast það líklega á að engin jafnvægisstöng (counterbalancer) er í þessum hjólum. Þetta fyrsta ár RMZ/ KXF lofar góðu. Hjólin eru vel smíðuð og heildarmyndin afar vel heppnuð. Suzuki-umboðið í Hafnarfirði selur RMZ og kostar það 790.000 staðgreitt. KXF fæst hjá versluninni Nitro og kostar 780.000 staðgreitt.
Honda CRF 250
Honda hefur ekki farið sér óðslega í því að koma þessu hjóli á markað og eytt gríðarlegum tíma í hönnun og rannsóknarvinnu. Útkoman er hjól sem er eins og smækkuð mynd af stóra bróður, CRF 450, sem getur ekki boðað annað en gott. CRF 250 skilar góðu afli, frábærum aksturseiginleikum, góðri fjöðrun og góðri endingu. Nokkurn veginn allt sem skiptir máli. Það er gaman að horfa á Honduna, hún er falleg og setur nýja álgrindin stóran svip á hjólið. Vélin er fjögurra ventla og ólík hinum hjólunum að því leyti að hún og gírkassinn hafa tvö aðskilin smurkerfi, sem á að skila betri smurningu. Það sem einkennir þetta hjól er að það virðist alltaf vera nægt afl og tog til staðar og hjólið er ekki viðkvæmt fyrir því íhvaða gír maður er þegar gefið er inn. Honda kemur með Showa-fjöðrun sem reyndist vel við flestar aðstæður hvort sem það var yfir gróf þvottabretti eða í lendingu eftir stökk. Stöðugleiki hjólsins var einnig með ágætum. Eins og með RMZ og KXF er bilið frá sæti niður í standpetala fulllítið fyrir menn sem eru yfir 191cm á hæð og gerir sitjandi stöðu pínulítið óþægilega. En með fullri sanngirni er ekki annað hægt en að ausa þetta hjól lofi. Það gerir e.t.v. ekkert langbest; það hefur ekki kraftmestu vélina eða bestu fjöðrunina. En það gerir hins vegar allt mjög vel og ekkert illa og er því á heildina litið líklega besta hjólið í þessum flokki. Ef eitthvað má finna að hjólinu er það líklega að það skilar
| Hvað Fannst þeim |
sínu svo vel og örugglega að ökumaðurinn verður helst til værukær og latur. Honda CRF kostar 823.000 staðgreitt og fæst í Hondaumboðinu Vatnagörðum.Yamaha YZF 250
KTM 125SX
Fyrir um 10 árum tóku fáir KTM alvarlega, en í dag er öldin önnur. KTM hefur stimplað sig rækilega inn sem framleiðandi og vitna sölutölur og meistaratitlar um það. Fyrir þásem ekki vita keppa 125cc tvígengishjól í sama flokki og 250cc fjórgengishjól og má sjálfsagt deila um sanngirni þess. Þó má benda á að besti ökumaðurinn í ameríska supercrossinu í þessum flokki (sem sýnt er á sjónvarpsstöðinni Sýn) heitir James Stewart og tekur 125cc tvígengishjól fram yfir öflugri fjórgengishjól. Tvígengishjólin hafa ýmsa kosti sem fjórgengishjólin hafa ekki. Þau skila
snarpara afli og eru léttari og meðfærilegri í akstri en fjórgengishjólin. Hönnun KTM er engu lík, maður bara finnur það um leið og maður sest á hjólið. Mótorinn er afar öflugur og þótt munurinn á KTM 125 og stærri hjólunum sé nokkur er í raun ótrúlegt hversu lítið hann gaf stærri hjólunum eftir í sandinum. Bremsur, gírkassi og fjöðrun virkuðu alveg eins og vera skyldi en það var helst á þeim
köflum þar sem maður kom hjólinu á sæmilega ferð að það fannst fyrir óstöðugleika. Það er svo sem ekkert nýtt af nálinni en KTM-eigendur hafa komist fyrir það með því að setja stýrisdempara á hjólin. Stjórntæki hjólsins eru til fyrirmyndar og frambremsa þess er með eindæmum góð.Í beinum samanburði vantar KTM 125SX auðvitað nokkurt afl til að standa jafnfætis 250cc hjólunum, sérstaklega upp brekkur og í djúpum sandi. En fyrir unglinga er erfitt að ímynda sér skemmtilegra og betra hjól. Það 125cc hjól sem slær KTM 125SX við má vera fjári gott. Hjólið kostar 698.900 stgr og fæst hjá versluninni Moto/KTM.

