Það var gríðalega sérstök tilfinning að standa á brún Dettifoss og finna kraftinn. Og reyndar átti það við um alla fossana sem við skoðuðum |
Á ári hverju í júlímánuði fer ég og vinir mínir í mótorhjólaferð, bara svona út í buskann. Góður og sterkur vinahópur sem hjólar mikið saman og höfum heimsótt m.a. Indland, Nýja Sjáland, Ástralíu, Ameríku, Írland, og England.
Síðustu fimm árin höfum við passað upp á hvern annan og keyrt í gegnum Víetnam, Chile, Argentína, Perú og Tyrkland og Ladakh hérað. Frelsið á vegum úti og gleðin og ánægjan við þessi ferðalög í gegnum ókunn lönd er ólýsanleg lífsreynsla og hvetur okkur til að halda áfram þessum ferðamáta ár eftir ár og skilja hversdagleikann og okkar heittelskuðu eftir heima.
Að þessu sinni eftir miklar umræður ákvað hópurinn að fara í norðurátt alla leið að heimskautsbaug, til Íslands!
Þessi strjálbýla og fallega eldfjallaeyja er á miðjum Atlantshafshryggnum milli Evrópu og Ameríku og er landslagið þar einstakt og hrikalelega fjölbreytt með hraunbreiðum snævi þöktum fjöllum, heitum laugum, jöklum og ströndum með svörtum sandi.