Í janúar var mótorhjólafélagi minn Björn
Richard Johansen staddur hér á Íslandi og hittumst við á kaffihúsi og
spjölluðum saman. Í þessu kaffispjalli sagði hann mér frá nokkuð sérstöku
mótorhjólamóti sem hann og nokkrir aðrir störtuðu haustið 2018. Mótið tókst vel
og sagði hann mér að það ætti að endurtaka mótið haustið 2019 og stefnt væri á
að tvöfalda stærð mótsins. Björn Richard er af mörgum Íslendingum kunnur fyrir
endurreysn íslensku bankana eftir bankahrun, enn fleiri hafa heyrt og kannast
við verkefni sem hann startaði með Íslenskum stjórnvöldum eftir bankahrunið því
að hann hannaði “módelið” af auglýsingaherðerðinni Inspired by Iceland. Strax og ég kom heim keypti ég mér flugmiða
og pantaði herbeggi fyrir mig og konuna á Straand-hotel.
Gamalt og rótgróið hótel staðsett í Vradal
Telemark .
Á neðrihæð Speed eru BMW hjólin |