Frá Ráðhústorgi í morgun. |
Þurrt og svalt var veðrið á Akureyri í dag sem voru viss vonbrigði eftir dandalaveðurblíðu undanfarnar vikur á Akureyri.
Tían var búin að undirbúa keyrsluna og fá lögregluna í lið með sér varðandi að loka gatnamótum en nokkrir auka aðilar sáu um að blokka umferð þar sem upp á vantaði sem og nokkrir úr hópkeyrslunni.
Í stuttu máli gekk hópkeyrslan mjög vel hún lagði upp frá Ráðhustorgi , ekinn var góður 12 km hringur um bæinn og endaði hún inn á Mótorhjólasafni þar sem stjórn Tíunnar tók á móti öllum með kaffi ,bakkelsi, vöfflum og rjóma og heitri kjúklingasúpu á vægu galdi.
Allir gátur skoðað safnið og fyllt magann um leið og heyrðist okkur að allir væru mjög ánægðir með framtakið.
Við í Tíunni viljum þakka fyrir þátttökuna og þakka um leið Lögreglunni á Akureyri fyrir veitta hjálp sem auðvitað er ómetanleg.
Næst á dagskrá hjá Tíunni er svo Heiðarlegur Dagur þann 11. maí... Hópferð í Borgarnes á Mótorhjóla og Fornbílasýningu Rafta.