Íris Sigurðardóttir Formaður Skutla |
Kvenhjólaklúbburinn Skutlur samanstendur af fríðum flokki kvenna með ástríðu fyrir mótorhjólum
og ferðalögum. Þær hvetja allar hjólakonur til að taka þátt í alþjóðlega kvenhjóladeginum 5. maí.
Ég hef haft áhuga á mótorhjólum frá því ég man eftir mér og sem krakki heima í Eyjum horfði ég öfundaraugum á strákana á skellinöðrunum,“ segir mótorhjólaskutlan Íris Sigurðardóttir sem er formaður kvenhjólaklúbbsins Skutlur. Íris eignaðist sitt fyrsta hjól síðla árs 2005.„Það var Honda Rebel 250 cc. Þá var ég ekkert að spá í þessi cc og vissi ekki hversu lítill mótorinn
var, en þetta þótti víst fínt byrjendahjól. Ég hjólaði einn rúnt um Hafnarfjörð en næsti rúntur var í Hondu-umboðið þar sem ég keypti mér nýja Hondu Shadow 750 cc og hjólaði á henni í eitt ár. Sumarið 2007 keypti ég svo hjólið sem ég er enn á en það er Yamaha Roadstar Warrior, 1700 cc.“