1.8.03

Sjáumst í Valhöll


 Óskabörn Óðins er fámennur félagsskapur mótorhjólafólks sem átti ekki samleið með Bifhjólasamtökum lýðtveldisins, Sniglunum.
Félagar eru aðeins 23 talsins og eru dreifðir um Ísland og Danmörku. Hvaft er það sem tengir þessa skeggjuðu, lefturklæddu og stígveluðu kappa saman?  Í einu orði: ást, eins og KRISTA
MAHR komst að þegar hun brá sér á ársþing þeirra.

ljósmyndir: Spessi









Ég hætti að hjóla fyrir þremur árum,“ segir Trukkurinn. Maðurinn sem stendur við hliðina á mér er með stutt ljóst hár, skær blá augu og frísklegan roða í kinnum. Hann er klæddur í leðurvesti með Óskabörn Óðinsmerki saumað á bakið. „Ég hætti eftir að ég keyrði hjólið mitt inn í hliðina á lítilli rútu." Trukkurinn eyddi þremur dögum á spítala, missti sjónina tímabundið, braut sjö tennur og mölbraut á sér vinstri hnéskelina í slysinu.
„En veistu hvað, við eigum okkur allir gælunöfn," hrópar hann til mín og brosir breitt. Daður hans við dauðann er greinilega mun minna spennandi umræðuefni í hans augum en viðurnefni þeirra félaganna. Trukksnafnið, útskýrir hann, kom til vegna þess að hann átti alltaf stærsta bílinn, stærsta hjólið þar til það fór í spað, og svo á hann líka vörubílafyrirtæki í Reykjavík.
„Svo þekkir þú auðvitað Elvis,“ segir hann og bendir. Það er einn af forsetum félagsins og sá sem vísaði mér í gegnum símann leiðina að hátíðarsvæðinu, sem er eyðibýli við Suðurströndina. Elvis nikkar til mín og hverfur svo inn í eldhúsið sem hefur verið hróflað upp í gamla gripahúsinu. Það hafði kostað mig diplómatískar samræður að fá samþykki fyrir því að koma á hátíðina. Óskabörnum Óðins hefur ekki alltaf fundist fjölmiðlar hafa réttan skilning á afstöðu þeirra til lífsins.
„Þetta er svo Púki,” segir Trukkurinn þegar gult torfærumótorhjól æðir framhjá okkur með ökumanninum standandi á öðrum fæti á hnakkinum.

Það var stuð 
Meðal atriða var að kasta skellinöðrumótor
 og hraðakeppni að leggja þvottavél í rúst.



ÞEIR ÚTVÖLDU
Elvis er einn af forsetum félagsins 

Það fær ekki hver sem er aðgang í félagið," segir Minkurinn, einn af stofnendum Óskabarnanna. Minkurinn fékk sitt viðurnefni þegar gömul kærasta hans gaf honum minkakraga því henni fannst hann eiga ýmislegt sameiginlegt með því skæða rándýri. Hann er sá eini af upprunalegu stofnendunum sem eftir er. „Við þurfum að kynnast fólki vel og umgangast það áður en kemur til greina að skoða aðild," segir Minkurinn. Í heilt ár þurfa mögulegir kandídatar að þola nákvæma „starfsþjálfun", sem felst reyndar aðallega í því að mæta í partí og spjalla við félagsmenn. Að árinu loknu er gengið til atkvæða um umsóknina og þá er nóg að einn félagi segi nei, þá er aðild úr sögunni um aldur og eilífð
Sú staðreynd að félagið byggist aðeins á fáeinum útvöldum félögum er eitthvað sem er Óskabörnunum mjög hugleikið. Félagið varð til í mars 1988 á miðjum fundi Sniglanna þegar Minkurinn og tveir félagar hans stóðu upp, tilkynntu að þeir ætluðu að stofna eigið félag og gengu á dyr. Í raun segir merki félagsins alla söguna. Það sýnir mann á mótorhjóli bruna út úr snigilhúsi. Merkingin er augljós; frelsið að vera laus úr Sniglunum. Óskabörnin eru litlar hópsálir. Þar eru það fremur einstaklingshyggja og uppreisnarandi sem svífa yfir vötnum.


Í heilt ár þurfa mögulegir kandidatar að þola nákvæma „starfsþjálfun”, sem felst reyndar aðallega í því að mæta í partí og spjalla við félagsmenn. Að árinu loknu er gengið til atkvæða um umsóknina og þó er nóg að einn félagi segi nei, þó er aðild ór sögunni um aldur og eilífð.



ÞUNN TILVERA

Minkurinn er sá eini af stofnfélögum
Óskabarna Óðins sem er
enn starfandi í félaginu.
 
„Þegar maður var lítill strákur, ímyndaöi maður sér að mótorhjólalífið væri dálítið merkilegt mál,“ öskrar bláeygður víkingur, Kalli að nafni, yfir hávaðann í hljómflutningstækjunum. Miðnætti nálgast og það er hljómsveit að koma sér fyrir í einu horni hlöðunnar sem hýsir veisluna. „En svo, þegar maður kynnist þessu liði áttar maður sig á því að kúltúrinn að baki þessari tilveru er nú frekar þunnur. Það á sér sína eigin tónlist, sem er frekar léleg, og það á sér sína eigin listamenn, og listin er frekar slöpp." Eins og svo margir hér í kvöld er Kalli sjálfur mótorhjólamaður. En hann er ekki meðlimur í félaginu. Óskabörn Óðins buðu öðru mótorhjólafólki að mæta og dágóður hópur er kominn til að sýna samstöðu og drekka bjór þeim til samlætis.
Kalli segir að lengi vel hafi hann haldið að þessi „þynnka” einskorðaðist við íslenska mótorhjólaklúbba vegna fámennisins.
„En þetta er eins alls staðar," segir hann. „Reyndar tekur íslenskt mótorhjólafólk þennan lífsstíl með meiri stæl en kollegar þeirra í öðrum löndum. Allt þetta lið er í þessu af sönnum áhuga. Gaurarnir hér þurfa bara að vera tveir eða þrír saman einhvers staðar til þess að steyta hnefana upp í loft, öskra og æpa til að láta alla í kring vita að líf þeirra snýst um mótorhjól." 

SPYRNAN

Það er ekki hundi út sigandi en það skiptir engu máli því nú er komið að föstum lið í hátíðarhöldunum; spyrnukeppni á svartri sandströndinni. Jeppar fullir af farþegum með bjór í hönd hafa raðað sér meðfram fimmtíu metra langri brautinni. Fyrir aftan tvær appelsínugular keilur er löng röð af mótorhjólum, sem standa hlið við lið; ökumenn þeirra albúnir til átaka, leðurklæddir frá hvirfli til ilja. Stemmningin er rafmögnuð, urrandi hjólin vekja greinilega fölskvalausa gleði nærstaddra. Fyrstu tvö hjólin þrykkja af stað og æða eftir ströndinni hlið við hlið. Ég verð að viðurkenna að þetta er dálítið spennandi. Hver ökumaður keppir tvisvar þar til eftir standa tvö hraðskreiðustu hjólin, heimatilbúið þríhjól og gula Fiat torfæruhjólið hans Púka. Þetta er hörkukeppni en á endanum er það Púki sem brunar á undan yfir marklínuna. Áhorfendur hverfa glaðir inn í hlýja jeppana, hefðin hefur verið haldin í heiðri, nú verður sest að snæðingi.
Ég ætla að fara að láta mig hverfa þegar Trukkurinn kallar á mig og segir að ég geti ekki verið þekkt fyrir annað en að borða með þeim. Hann skellir kílói af lambasteik beint af grillinu á diskinn minn og ég geri mitt besta til að vinna á skepnunni með plasthnífapörunum. Ég átta mig á því að það verður dálítið erfitt að segja bless við þessa gestrisnu kappa. 
Þrátt fyrir nafnið þá snýst félagsstarf Óskabarna Óðins ekki sérstaklega um iðkun ásatrúar, en félagið sækir þó hugmyndafræði sína til norrænu goðana. Herskár og höfðinglegur bragur Óðins er þeirra fyrirmynd eins og kemur kannski best fram í þessum texta á einu merkja félagsins:

Viggi, nýjasti meðlimurinnn hann býr í Danmörku

 Guð vill okkur ekki.
 Djöfullinn óttast okkur.
 Sjáumst í Valhöll.

Maður hefur þó á tilfinningunni að ef þessi hópur kæmist þangað að leiðarlokum yrði meira um hópfaðmlög en bardaga og svall.


Kristo Mahr er bandarískur lausapenni sem eyddi síðasta sumri á Íslandi.

Ský 1.8.2003 

26.7.03

Léttkeyrandi og liðugt keppnishjól


 Prófanir á mótorhjólum og skyldum tækjum eru orðnar fastur þáttur í umfjöllun DV-bíla og sífellt bætist í þá flóru hérlendis. 


Á dögunum var opnað nýtt umboð fyrir Ducati-mótorhjól og við gripum því tækifærið þegar okkur bauðst að prófa hjól sölustjórans, Ducati 749S sporthjól. Um léttkeyrandi og liðugt hjól er að ræða sem samt er vel búið af sporthjóli að vera enda Ducati þekkt fyrir það að spara ekki við smíði hjóla sinna.

Gasfyllt HID-ljós 

Þegar hjólið er skoðað kemur í ljós hversu vel búinn gripur er hér á ferðinni. Maður tekur fyrst eftir gasfylltum HID-ljósunum sem gefa 50% meiri lýsingu en áður. Þau eru líka ábyrg fyrir breyttu útliti nýju Ducati-hjólanna að framan. Hjólið er líka mikið breytt að öðru leyti. Meira er lagt upp úr loftflæði um hina ýmsu hluta hjólsins og framan á hjólinu eru tvær kæliraufar sem beina lofti að vatnskassanum. Púströrið er nú í kassalaga boxi í afturbretti og ekki eins sexí og áður, satt best að segja. Nokkur hiti er frá því þegar hjólið er farið að hitna en á mótorhjólum er það kostur frekar en hitt. Ekkert er til sparað í fjöðrun og bremsum enda frá merkjum eins og Showa og Brembo. Tilfinningin fyrir frambremsu er mikil en afturbremsa hefur mjög lítið átak enda meira notuð til að stilla hjólið af í beygjum og má þá ekki grípa of snöggt í.

Hreinræktaður veðhlaupahestur 

Þegar sest er á hjólið fær maður strax á tilfinninguna að hér sé hreinræktaður veðhlaupahestur á ferðinni. Bensíntankur er þannig formaður að lærin falla þétt upp að honum svo hægt er að klemma þau vel og örugglega utan um hann. Það er mikilvægt atriði við akstur sporthjóla svo að ökumaður renni síður til í sætinu þegar beygt er eða bremsað. Stýrið er með stýrisdempara og er mátulega breitt fyrirhjól af þessari gerð. Eini mælirinn í mælaborðinu sem ekki er stafrænn er stór snúningshraðamælirinn sem sýnir tölur upp í 13.000 snúninga. Sjálft stafræna mælaborðið er afar fullkomið og sýnir hraða, hita vélar, klukku, hleðslu, eyðslu og kílómetratölu. Einnig er hægt að stilla það til að sýna hluti eins og brautarhraða á hring, og taka þannig upp hámarkshraða og snúningshraða á hverjum hring sem hægt er síðan að keyra inn í fartölvu.

Hægt að breyta halla stýristúpu 


Hægt er að stilla bæði fram- og afturfjöðrun á margvíslega vegu og einnig halla stýristúpu til að gefa sneggri stýringu. Standari er formaður til að taka á sig minni vind og er nú ekki með sjálfvirkum gormi sem smellir honum upp að grindinni þegar hjólið er rétt við. Hjólið kemur svo á gripmiklum Pirelli Dragon dekkjum.
 Í akstri er það eins og hugur manns og fylgir hárnákvæmt öllum hreyfingum ökumanns. Aflkúrfan er mikil og góð fyrir tveggja strokka 750 hjól og það er ekki fyrr en það fer að nálgast hámarkshraða að því verður aðeins afls vant. Líkt og í öðrum hjólum frá Ducati er fyrsti gírinn frekar hár svo að oft þarf að gíra niður í hann í krappari beygjum. Það hefur þann kost við brautarakstur að hægt er að nota hann einnig þar, en þar sem engin keppnisbraut er til á Íslandi enn skiptir það okkur litlu máli. Setan er þægileg fyrir akstur á sporthjóli en til lengdar er þó hætt við aumum höndum og afturenda. Það eina sem undirrituðum fannst þó óþægilegt við aksturinn voru litlir speglar sem voru óþægilega nálægt ökumanni. Til að sjá aftur fyrir sig varð maður að lyfta olnboganum en þar af leiðandi var alltaf blint svæði fyrir aftan mann sem ekki er þægilegt að kíkja í á hjóli sem þessu. Einnig má gagnrýna aftursæti sem er meira til að geta boðið far en að bjóða farþega upp á lengri akstur.

Stendur sér á parti 

Um verðið, 1.690.000 kr., er það að segja að það er í hærri kantinum en þótt til séu svipuð hjól á betra verði eru þau flest ekki eins vel búin. Enginn framleiðandi er með beinan keppinaut með V2 vél í sama stærðarfiokki svo að 749S stendur dálítið sér á parti. Einn helsti keppinauturinn er þó líklega Aprilia með RSV Mille hjól sín.




DV Bílar 
 Njáll Gunnlaugsson
26.7.2003