Íslandsmótið í Enduro
Fyrsta keppnin til íslandsmeistara í Enduro verður ekin í dag (laugardaginn 3. maí) undir Úlfarsfelli, í nágrenni við æfingasvæði Slökkviliðs Reykjavíkur. Borgaryfirvöld í Reykjavík leyfðu Vélhjólaíþróttaklúbbnum að halda þarna keppni vegna þess að þar sem brautin liggur á að koma vegur í náinni framtíð og er búið að skipuleggja þetta svæði fyrir byggð og fleira. Allt frá því að byrjað var aftur að keppa í Enduro eftir nokkurt hlé árið 1996 hefur þessi akstursíþrótt verið að stækka og er svo komið að engin akstursíþrótt hér á landi á eins marga iðkendur og Enduro. Er þetta eflaust eina akstursíþróttin sem skipt er eins og fótboltanum í deildir, en keppt er í tveim deildum í Enduro.Margir við æfingar erlendis
Það er nokkuð ljóst að mikil
spenna er í loftinu hvað varðar
toppbaráttuna. Einar Sigurðsson, núverandi íslandsmeistari,
er nýkominn heim frá frá Svíþjóð eftir 20 daga æfinga- og
keppnisferð ásamt sjö félögum í
KTM-liðunum. Viggó Viggóson á
TM, sem varð annar í fyrra, hefur flesta sigra í Enduro og er til
alls líklegur. Hann eignaðist
reyndar dóttir um daginn og
spurning hvort að það hafi
einhver áhrif á kappann en
hann mun leggja aðaláherslu á
að verja sinn titil í motocross.
Reynir Jónsson, öflugasti enduromaður Honda, varð þriðji í
fyrra, en hann lenti í því óláni
að slasa sig við æfingar um
páskana og er óvíst hvort hann
verður með. Haukur Þorsteinsson, sem varð fjórði til íslandsmeistara í fyrra, hefur æft stíft
og er kominn á nýtt Yamaha
450. Valdimar Þórðarson, hinn
18 ára Mosfellsbæjarskelfir, hefur gengið til liðs við Suzuki, en
hann var fimmti í fyrra. Valdi,
eins og hann er oftast kallaður,
hefur verið í þrjá mánuði við
æfingar og keppni í Texas í
Bandaríkjunum og verður fróðlegt að sjá hvernig hann kemur
undan vetri.