17.9.03
Á Matchless árgerð 1946 yfir hálendið (2003)
Þeir eru margs konar farkostirnir sem ferðast er á yfir hálendi Íslands.
EINN góðan laugardag í ágúst síðastliðnum, reyndar svolítið blautan,ráku vegfarendur um Kjöl upp stór augu, því það sem fyrir augu þeirra bar var óvenjuleg sjón: Farkostur eins ferðalangsins var 57 ára gamalt mótorhjól, nánar tiltekið Matchless G 80, árgerð 1946. Ökumaðurinn,12.9.03
Íslandsmótið í þolakstri:
Lokakeppnin við Kolviðarhól
AKSTURSÍÞRÓTTIR Lokakeppnin í þolakstri (Enduro) fer fram á laugardag. Keppt verður á um 10
kílómetra langri braut á og við gömlu túnin í landi Kolviðarhóls. Í Meistaradeild Íslandsmótsins
verður keppt í tveimur umferðum sem hvor um sig stendur yfir í 90 mínútur. Keppendur fá klukkustundar hlé milli umferða en fyrri umferðin hefst um klukkan 10 en sú seinni um klukkan 14.30.
Keppni í Baldursdeild, móti þeirra sem vilja keppa sér til ánægju, hefst laust fyrir klukkan 13.
Einar Sigurðarson hefur forystu í Meistaradeildinni með 370 stig en Viggó Viggósson hefur 327 stig. Einar og Viggó eru þeir einu sem hafa orðið Íslandsmeistarar í þolakstri síðan keppni um þann titil hófst árið 1998.
Í keppni liða er KTM Racing team efst, Honda Neonsmiðjan er í öðru sæti og Keppnislið JHM Sport í því þriðja. ■

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)