Sniglarnir, halda
í sinn árlega hópakstur 1. maí. Bifhjólafólk á
um þúsund mótorhjólum af ýmsu tagi ekur
þá hring í borginni til að fagna vorkomunni og
minna á þau baráttumál sem helst brenna á
samtökunum
Þessi árlega hópkeyrsla er orðin
eins konar vorhátíð bifhjólafólks,“ segir Njáll Gunnlaugsson, formaður Sniglanna, en
samtökin hafa staðið fyrir slíkum
hópakstri í nærri þrjá áratugi, nánast frá stofnun Sniglanna. Hópurinn
sem mætir hefur þó stækkað mikið
undanfarin ár og nú stefnir í að
um þúsund mótorhjól af öllu tagi
af ýmsum stöðum á landinu fylli
götur borgarinnar á mánudaginn.
„Hópkeyrslan verður með sama
sniði og undanfarin ár. Hjólin
safnast saman á Laugavegi upp úr
klukkan 11 og leggur hópurinn af
stað klukkan 12.30. Ekið er niður
Bankastrætið og Lækjargötu til
vinstri, inn Vonarstrætið og upp
Suðurgötuna. Hringbraut er svo
ekin í vestur og Ánanaustin yfir á
Geirsgötu, fram hjá Hörpu,“ lýsir
Njáll og bendir bifhjólafólki á að
sýna sérstaka aðgæslu, bæði vegna
framkvæmda sem þar standa yfir
sem og hópa ferðamanna sem ekki
viti af viðburðinum. „Hópurinn
þræðir svo Sæbraut að Kringlumýrarbraut þar sem hún beygir inn
á Kirkjusandinn frá Sundlaugarvegi,“ segir Njáll en þetta verður í
síðasta sinn sem endastöðin verður
á Kirkjusandi vegna fyrirhugaðra
framkvæmda þar.
Húllumhæ á Kirkjusandi
„Á Kirkjusandi verður skemmtileg
dagskrá. Gestum og gangandi er
boðið að skoða mótorhjólin og svo
verða ýmsar skemmtilegar uppákomur. Til dæmis ætlar Pólverjinn
Damien Sarapuk að sýna listir
sínar á götuhjóli og vonir standa
til að nokkrir íslenskir strákar á
klifurmótorhjólum mæti á svæðið.
Sú dagskrá hefst klukkan 13.30.“
Njáll bendir á að þeir sem komi á
bíl geti lagt á malarplaninu næst
Laugarnesvegi. „Bestu staðirnir
fyrir þá sem vilja fylgjast með
hópkeyrslunni eru við Sæbraut og
þá sérstaklega á hljóðmönunum
nálægt Sólfarinu.“
Mikil vinna liggur að baki skipulagningu svo stórs hópaksturs en
Njáll segir um 40 til 50 manns koma
að vinnunni, bæði við undirbúning
og á daginn sjálfan. „Við munum
til dæmis njóta aðstoðar bifhjólaklúbbsins Gaflara úr Hafnarfirði við
stjórn akstursins en gæslumenn og
-konur verða á öllum þeim gatnamótum þar sem farið er um auk
þess sem hópurinn fær lögreglufylgd.“
Hópaksturinn hefur gengið vel
síðustu ár en Njáll biður ökumenn
þó að sýna bifhjólafólkinu tillitsemi
meðan á akstrinum stendur.
„Auk þess vorum við svo heppin
í ár að hópkeyrslan var tilefni til
gerðar verkefnaáætlunar í vinnuhópi nema í verkefnastjórnun hjá
Háskólanum í Reykjavík. Úr var
greinargóð skýrsla og áætlunargerð
sem mun nýtast til frambúðar.“
Vilja breyta umferðarlögum
Hópakstrinum þann 1. maí er fyrst
og fremst ætlað að minna aðra
ökumenn á að bifhjólin séu komin
á göturnar, en einnig til að skerpa
á þeim fjölmörgu baráttumálum
sem samtökin berjast fyrir.
„Sniglar hittu nýskipaðan ráðherra samgöngumála, Jón Gunnarsson, fyrir nokkrum vikum og
fóru yfir hagsmunamál sín. Á
síðastliðnum árum hafa Sniglar
eytt miklu púðri í að fá drögum að
umferðarlögum breytt til hagsbóta
fyrir bifhjólafólk og náð góðum
árangri í þeim efnum. Þess vegna
er okkur farið að lengja eftir að þau
líti dagsins ljós en ráðherra lofaði
að fari að sjá til sólar í þeim efnum
og að þau verði að öllum líkindum
lögð fram á haustþingi,“ segir Njáll.
Betri tryggingar og breytt
skoðunarhandbók
Tryggingamál hafa lengi verið
bifhjólafólki hugleikin. „Sífellt
er verið að skilgreina skilmála
tryggingarfélaganna, eins og að
bifhjólafólk megi ekki lána hjólin
sín og svo framvegis. Þá þarf engan
að undra þótt við spyrjum hvort
breyta megi öðrum þáttum í tryggingarskilmálum. Sem dæmi má
nefna að margir eiga fleiri en eitt
mótorhjól, og ef viðkomandi má
ekki lána hjólið sitt þarf hann þá
nokkuð að borga slysatryggingu
ökumanns og eiganda nema einu
sinni, en ekki af öllum hjólunum?
Sú trygging er stærsti hluti tryggingariðgjaldsins og skiptir eigendur bifhjóla verulegu máli.“
Njáll nefnir einnig endurskoðun skoðunarhandbókar fyrir
mótorhjól sem bið hefur orðið á.
„Við lýsum yfir vilja okkar til að
setjast niður með Samgöngustofu
til að klára þessi mál. Má þar nefna
tillögu um minni gerð skráningarmerkja sem passar betur aftan á
mótorhjólin en þessi stóru merki
sem eru í sömu stærð og á mörgum
bílum í dag.“
Er illa við víravegrið
Sniglar hafa verið í góðu samstarfi
við Vegagerðina á undanförnum
árum og samið meðal annars
handbækur um bifhjólavænt
vegumhverfi og skilað skýrslu um
núllsýn á Þingvallavegi en þar varð
dauðaslys í fyrra þegar ungur bifhjólamaður lét lífið eftir árekstur
við vegrið. „Okkur er farið að
lengja eftir áþreifanlegum aðgerðum eins og undirakstursvörnum.
Tökum sem dæmi Kambana þar
sem notast er við víravegrið í alltof
þröngum aðstæðum. Bifhjólafólki
er mjög illa við víravegrið þar sem
stólpar þeirra eru mjög illa varðir
og við viljum helst ekki sjá þau á
vegunum. Það er því algjört lágmark að notast við undirakstursvarnir á stöðum sem þessum að
okkar mati.“
Ekkert prófsvæði
í höfuðborginni
Njáll bendir á að aksturskennslusvæði fyrir mótorhjól verði engin á
höfuðborgarsvæðinu þegar Kirkjusandur verður lagður af sem prófsvæði. „Eina skipulagða kennslu- og
prófsvæði fyrir mótorhjól verður
þá á Akureyri. Það finnst okkur að
sjálfsögðu ótækt og nauðsynlegt
að gera úrbætur í þeim efnum með
öryggi próftaka í huga.“
Mörg önnur mál eru í deiglunni
hjá Sniglum, líkt og réttindamál
og hinar svokölluðu gangstéttarvespur. „Við viljum hvetja fólk til
að skoða heimasíðuna okkar á
sniglar.is og þar má meðal annars
finna samantekt á baráttumálum
okkar síðustu þrjá áratugina. Besta
leiðin til að styrkja samtökin er
að ganga í þau en á forsíðunni
er umsóknarform. Einnig verða
haldnir vikulegir fundir á miðvikudagskvöldum klukkan 20 í félagsheimili Sniglanna í Skeljanesi, yst í
Leiðin sem hópakstur Sniglanna mun fara þann 1. maí. Skerjafirði.“
Fréttablaðið
29.4.2017