30.12.99

10 helstu mótorhjól aldarinnar á íslandi

- Að mati blaðamanns DV-bíla

Saga mótorhjólsins á íslandi er næstum jafngömul sögu bílsins. Fyrsta hjólið kom til landsins 20. júní árið 1905, réttu ári eftir komu fyrsta bílsins, og var það bílstjóri Thomsens-bílsins sem flutti það inn. Sá hét Þorkell Clemenz og hafði ekki verið sáttur við valið á bílnum þar sem hann var aflvana og bilaði mikið. Til að sýna fram á fleiri og betri kosti fyrir okkar erfiðu aðstæður flutti hann inn þetta mótorhjól og sótti um leið um einkaleyfi á nafni fyrir gripinn og
kallaði það ELG. í auglýsingu í blaðinu Reykjavík segir Þorkell frá ferð þessa hjóls á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, sem farin var á 19 mínútum, en Thomsens-bíllinn hafði farið
sömu leið árið áður á rúmum tveimur tímum og ekki náð að klára alla leiðina.
Mótorhjól voru því fljót að taka forystuna hvað hraða snerti hér sem annars staðar. Hvað af þessu hjóli varð veit svo enginn því ekki fer frekari sögum af þvi.

 Frekari innflutningur 

Það næsta markverða í mótorhjólainnflutnmgi gerðist ekki fyrr en á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar þegar mikið framboð af herhjólum leiddi til þess að hægt var að fá þau ódýrt og nýttu nokkrir sér það. Þá voru flutt inn þekkt merki, eins og BSA, Henderson, Harley Davidson og Indian.
Mótorhjólum smáfjölgaði hér á millistriðsárunum en næsta stóra stökkið er ekki fyrr en í seinni heimsstyrjöldinni, líkt og hjá biladeildinni. Þá fluttu Bretarnir þau inn í gámavís, gerðir eins og Royal Enfield, Matchless og BSA.
Árið 1939 voru aðeins rúmlega 100 hjól skráð hér á landi en árið 1946 hafði sú tala meira en fimmfaldast. Lögreglan í Reykjavík flutti líka inn sin fyrstu hjól árið 1942 af Harley Davidson gerð og er saga þeirra stór hluti af mótorhjólasögunni.
Ritaður gerði það að gamni sínu að velja tiu bestu hjól aldarinnar að  sínu mati og fylgir niðurstaðan og rökstuðningur hér á eftir:

Indian 1917

 Eitt vandaðasta mótorhjól síns tíma og bauð upp á margar tækninýjungar, eins og fullkomið rafkerfi og blaðfjaðrir bæði framan og aftan. Var nokkuð flutt inn af þessum hjólum í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar og grind af slíku hjóli er til fyrir austan fjall.

Harley Davidson 1934

Eitt vinsælasta hjól millistríðsáranna, með seigum síðuventlamótor sem þoldi nokkurt basl. Þá fóru menn fyrst að ferðast af einhverju viti um landið á mótorhjólum og urðu þá til fyrstu  „mótorhjólaklúbbarnir". Fóru þessi hjól marga vegleysuna fyrst allra ökutækja.

 Royal Enfield 1942

Þetta var meginuppistaðan í mótorhjólaflota Bretanna. Voru hjólin mikið notuð til póstflutninga og könnunarferða. Til er saga af fimm breskum hermönnum í könnunarferð um uppsveitir Borgarfjarðar
sem fórust þegar þeir keyrðu ofan í Gljufurá í Borgarfirði en þá lá vegurinn í krappa beygju rétt við gilbarminn.

NSUPrima 150 1958 

Þetta hjól var einkennandi fyrir tímabilið eftir stríð. Þá gekk hér
sem annars staðar yfir mikil skellinöðrubylgja og þetta hjól var til hér í nokkru upplagi.
Eitthvað er til af þessum hjólum enn þá.

*HondaCB 750 1967 

Þetta var fyrsta alvöru fjögurrastrokka hjólið frá Japan sem má með réttu kalla „Superbike", draumahjól allra mótorhjólaáhugamanna á sinum tíma.

Triumph 650 Bonneville 1970 

Var aðalkeppinautur japönsku bylgjunnar og flutti Fálkinn þau inn
í tugatali á þessum tíma. Þau þóttu úrelt þegar þarna var komið en höfðu haldist lengi í framleiðslu svo til óbreytt.

 Kawasaki Z650 1977 

Mikið var flutt inn af þessum  hjólum og þóttu þau endingargóð.
Nokkuð er enn til af þeim í umferð sem segir nokkuð til um seiglu þeirra.

*Kawasaki GPz 900 1983 

Hjólið sem sló flestu öðru út i afli og hraða á sínum tíma. Þetta þóttu einstaklega vel heppnuð hjól og biluðu lítið. Þarna fóru menn að sjá tæknikunnáttu Japananna í verki.

Suzuki GSXR 1100 1987
Þetta er líklega eitt vinsælasta hjól íslandsögunnar. Það var viss bylting á sínum tima hvað afl. og léttleika varðaði og gaf tóninn fyrir mörg af þeim hjólum sem fylgdu í kjölfarið.

YamahaRI 1998

Nýjasta tækniundrið frá Japan. Í þessu hjóli náðu þeir því takmarki að búa til 1000 rúmsentímetra hjól í svipuðum stærðarflokki og 400 hjól.
-NG

DV Bílar 30. desember 1999
www.timarit.is


*leiðréttingar á ártölum..
* Kawasaki GPz900 kom fyrst 1984
 *Honda CB750 kom fyrst 1969