Það verður kannski eitthvað tekið létt á því með barnabörnunum. Ég fæ að sækja þau í leikskólann í tilefni dagsins og ætla að gera eitthvað skemmtilegt með þeim. Ætli við fjölskyldan reynum
ekki svo að borða saman góðan mat um helgina,“ segir Baldur Pálsson bifreiðasmiður sem er fimmtugur í dag. Baldur býr í Grindavík og er giftur Katrínu G. Hilmarsdóttur, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn auk þess sem það fjórða er á leiðinni.
Baldur segist ekki ætla að slá upp veislu núna en stefnir á hátíðahöld í haust. „Þetta þarf svolítinn aðdraganda þar sem stórfjölskyldan er út um allan heim. Ég reyni að stíla inn á að hafa alla á landinu og því verður veislan ekki fyrr en í haust. Þetta verður bara gleði út allt árið,“ segir Baldur léttur í lund en stórfjölskyldan kemur alltaf saman á afmælistímum hjá hverjum og einum. „Það er sama hversu stórt afmælið er; það er alltaf komið saman og borðaður góður matur. Við notum þetta tækifæri til að hittast og mér finnst það góð regla.“
Baldur er fæddur og uppalinn í Reykjavík, bjó um tíma í Vestmannaeyjum, þaðan sem eiginkona hans er, flutti síðan til Hafnarfjarðar og þaðan til Grindavíkur. „Mér finnst gott að búa í Grindavík, þetta litla samfélag á betur við mig en það stóra.“
Baldri finnst ljómandi gott að eldast enda getur hann með auknum aldri sinnt áhugamálinu sínu meira sem eru mótorhjól. „Ég fékk mér mótorhjól þegar ég varð afi fyrir fimm árum og reyni að hjóla
þegar ég get,“ segir Baldur, sem fer jafnvel á rúntinn í dag.
MORGUNBLAÐIÐ
11. APRÍL 2014
11. APRÍL 2014
ingveldur@mbl.is