*800 fermetra mótorhjólasafni komið upp á Akureyri *Safnið reist til minningar um Heiðar Þ. Jóhannsson
„VIÐ tökum fyrstu skóflustunguna að safninu á laugardaginn kl. 12 og ef allt gengur eftir verður fyrsti hluti safnsins tilbúinn eftir ár,“ segir Jóhann Freyr Jónsson safnstjóri mótorhjólasafns sem er í bígerð á Akureyri. Safnhúsið verður reist í fjórum áföngum og verður um 800 fermetrar að stærð þegar það er tilbúið.Á safninu verða um 50 bifhjól og þar verður hægt að sjá í máli, munum og myndum yfir 100 ára sögu mótorhjóla hér á landi. Elsta hjólið á safninu er frá árinu 1928, af gerðinni Triumph og var gefið af Jóni Dan Jóhannssyni, föður Jóhanns Freys safnstjóra: „Þetta hjól er enn í góðu standi og er þar með elsta gangfæra mótorhjólið á Íslandi.“
Af öðrum hjólum á safninu má nefna tvö fyrstu lögreglumótorhjólin sem notuð voru á Akureyri. Munirnir á safninu munu koma víðsvegar að af landinu, og hafa margir bifhjólamenn gefið muni.
Safnið verður reist til minningar um Heiðar Þ. Jóhannsson föðurbróður Jóhanns Freys, sem lést í mótorhjólaslysi fyrir 2 árum. „Hann var mikill karakter,“ segir Jóhann. „Heiðar hafði lengi dreymt um að koma upp safninu og var byrjaður að safna hjólum í það. Við, vinir hans og fjölskylda, viljum minnast hans með því að taka við kyndlinum og koma safninu upp.“
Um helgina verða haldnir Hjóladagar á Akureyri og á föstudagskvöld verða sérstakir söfnunartónleikar til styrktar safninu í Sjallanum.
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
16. júlí 2008