Það var árið 1905, 19. júní nánar tiltekið, að maður að nafni Þorkell Clemenz flutti fyrsta mótorhjólið til íslands. Af því tilefni ætla bifhjólamenn landsins að koma saman í Skagafirði um þjóðhátíðarhelgina og fagna þessum merka áfanga. Mótorhjólaæði hefur gripið um sig á Sauðárkróki.
Það eru fjórtán mótorhjólasamtök sem koma að hátíðinni í samstarfi við Vélhjólaklúbb Skagafjarðar. Heilmikið stendur til, eins og gefur að skilja, og eru það tveir stórir atburðir sem vekja hyað mesta athygli. Sá fyrri er sameiginleg hópkeyrsla frá Varmahlíð til Sauðárkróks að kvöldi 16. júní sem markar upphaf hátíðarinnar. Hinn seinni er svo á lokadeginum, er afhjúpaður verður minnisvarði um þá sem látist hafa í bifhjólaslysum.Þannig byrjaði Enduro-ið á íslandi og þannig byrjaði Mótorhjólakvartmílan árið 1989," segir Hjörtur en keppnirnar sem hann vísar til eru vel þekktar innan torfæruhjólaheimsins.
Mótorhjólinu til heiðurs
„Hugmyndin var upphaflega sú að koma saman á einhverju tjaldsvæðinu og halda upp á 100 ára afmæli mótorhjólsins á Íslandi," segir Hjörtur. „En til þess að allir geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð eru líka alls kyns atburðir á dagskrá, bæði fyrir götuhjól og torfæruhjól. Vélhjólafélag Skagafjarðar ætlar að halda utan um aksturskeppnirnar sem verða aðallega fyrir torfæruhjólin." Hjörtur ítrekar að þær keppnisgreinar sem keppt er í séu ekki hluti af þeim greinum sem keppt er í til íslandsmeistara yfir allt sumarið. „Þetta er eingöngu til gamans gert og mótorhjólinu til heiðurs. Hátíðin hefur verið kölluð ættarmót mótorhjólamannsins og er því aðaláherslan lögð á samveru og skemmtun."Mótorhjólaæði á Sauðárkróki
Fjölmargir klúbbar eru starfræktir um landið allt en þeir þekktustu eru Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK) og Sniglarnir. En þó svo að klúbbarnir séu margir eru félagsmennirnir nánast. undanteknfngarlaust í fleiri en einum klúbbi. „Einn sem ég talaði við um daginn sagðist vera í sjö klúbbum. Við búumst þó við þónokkrum fjölda, aldrei færri en 500, en ef gestirnir verða mikið fleiri en tvö þúsund lendum við sjálfsagt í vandræðum," segir Hjörtur sem sjálfur er meðlimur í Sniglunum. Hátíðin verður á Sauðárkróki eins og fyrr segir og eru heimamenn þar í skýjunum yfir að fá mótorhjólamenn landsins í heimsókn til sín. Segja má að háffgert mótorhjólaæði hafi gripiðNóg að gera
„Dagskráin er nokkurn veginn klár," segir Hjörtur. „Það eina sem er enn í vinnslu er gerð minnisvarðans. Búið er að hanna hann og menn eru tílbúnir að vinna nánast frítt en það vantar enn fjármagn tíl að kaupa efhið. Það vantar enn styrktaraðila tíl þess." Auk þess að dagskráin er smekkfull af torfærukeppnum og öðru slíku verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna. Á laugardeginum verður til að mynda heilmikil dagskrá á íþróttavellinum, til að mynda mótorhjólamannafótboltí. Reglurnar í þeirri íþrótt líkjast á engan hátt hefðbundnum knattspyrnureglum. Tjaldsvæði verður boðið endurgjaldslaust fyrir mótsgesti í boði sveitarfélagsins.
eirikurst@dv.is
DagblaðiðVísir 19.04.2005
DagblaðiðVísir 19.04.2005
*Tían breytti aðeins greininni frá frumgreininni Þar sem Nafn Hjartar L J. var ekki rétt skrifað inn í greinina.
en þar var hann skrifaður inn sem Hjálmar.
en þar var hann skrifaður inn sem Hjálmar.