 |
HiImar og safnð hans sem nú samanstendur af
þremur breskum farartækjum frá fimmta áratugnum. |
- Hilmar Lúthersson „
,,Old Timer''
Hilmar Lúthersson hefur gjarnan verið
kallaður „Old Timer" af félögum sínum í
Sniglunum. Hann er heiðursfélagi þeirra
og ber númerið 1 og er þekktur fyrir uppgerðir sínar á breskum mótorhjólum.
Hann brá þó nýlega út af
vananum þegar hann gerði
upp Austinbíl af 1948 árgerð, einnig breskan.
„Þessi bíll er af gerðinni
16," segir Hilmar um leið
og hann útskýrir að það sé
stærsta gerð hans. „Hann
er með lengra hjólahaf en
8- og 10-gerðirnar. Einnig
er til gerðin 12 en sá bíll er
með minni síðuventlavél."
Bíllinn hans Hilmars er
með 2200 rúmsentímetra
toppventlavél sem á að
vera aflmeiri, en að sögn
Hilmars „vinnur hann ekki
neitt þótt hann hafi smávegis meira af togi."

Vdr tned topplúgu
Hilmar átti sjalfur svona
bíll þegar hann var ungur,
en þá minni gerðina, þótt
draumurinn hefði alltaf
verið að eignast Austin 16. Bíllinn á ættir sinar að rekja til Bretlands en hingað
kom hann árið 2000 frá Cornwall. „Uppgerðin tók ekki nema sex mánuði og
á ég hana mest að þakka galdrakarlinum Kjartani Ólafssyni hjá B&L.
Það þurfti mikið að föndra við hluti
eins og bretti og innréttingu sem
Auðunn Jónsson sá um að klæða
eins og honum einum er lagið. Til
dæmis hafði verið topplúga á bílnum
en búið var að sparsla 20-30 kíló í
gatið svo að við þurftum nánast að
smíða nýjan topp," segir Hihnar. Það
eina sem var látið óhreyft i bílnum
var vél og gírkassi; enda hvort tveggja í góðu lagi.

Kostar mikið ao gera upp
Eins og áður sagði er Hilmar mikill
áhugamaður um gömul mótorhjól og í skúrnum hjá honum eru einnig tvö uppgerð mótorhjól frá sama tíma. Djásniö í
hópnum er eflaust Ariel VG500 1946 sem hann gerði upp í „sýningarstand" fyrir
fimm árum. Síðast gerði hann svo upp
AJS 5001946. „Það er ekki eins vel uppgert enda kostar það mikið," segir Hilmar. Það er nú samt ekki að sjá á hjólinu
að á því sé neinn viðvaningsbragur, enda
Hihnar þekktur fyrir
vönduð vinnubrögð.
„AJS-hjólið er nákvæmlega eins og
Matchless-hjólin, fyrir
utan merkingar og
magnetu," segir Hilmar, en hann gerði
einmitt eitt slíkt upp
fyrir nokkrum árum
sem hann er búinn að
láta frá sér. Aðspurður hvort hann sé með
eitthvað fleira í bígerð
segir Hihnar að næst
séu Ariel Red Hunter
1945 og BSA 1954 á
dagskrá, auk tveggja
skellinaðra sem honum áskotnuðust. Þær
eru af gerðinni Kreidler
og Rixe og vantar nokkuð í þær og væri því vel
Undí r bíltlU m eru fjórlr vökvatjakkar sem hægt er að
tjakka bílinn upp á.
þegið ef einhver lumaði á varahlutum í
þær," segir Hilmar að lokum. NG





NG
DV
23.1.2003