- segir Gunnar Möller
„Þetta er enginn forngripur eins og margir halda, heldur er þetta árgerð 1989,“ segir Gunnar Möller, en hann ekur um götur Akureyrar á farartæki sem mörgum þykir nokkuð skondið.
Um er að ræða tveggja sæta mótorhjól með hliðarkörfu þannig að þrír geta verið á ferðinni í einu. Víst er farartækið nokkuð „fomaldarlegt" og minnir á farartæki sem hermenn óku á í heimsstyrjöldinni síðari.
„Þetta er í rauninni BMW hjól en rússamir munu víst hafa komist yfir verksmiðjurnar sem framleiddu það í stríðinu,“ segir Gunnar.
Farartækið heitir DNEPR og mun eitt annað slíkt vera til hér á landi, og Gunnar sagðist halda að það væri hluti af innréttingu á skemmtistanum Berlín í Reykjavík.
„Ég keypti þetta í hittifyrra, lét bíl
upp í en kaupverðið var 200 þúsund
krónur og þar sem ég á ekki bíl þá
er þetta fjölskyldufarartækið fyrir
mig, konuna mína og barnið okkar.
Jú, ég neita því ekki að hjólið vekur
nokkra athygli enda óvenjulegt."
Gunnar segir að uppgefinn hámarkshraði hjólsins sé 70 km en hann hafi þó komið því aðeins hraðar niður í móti. „Þetta er hinsvegar ekki hentugt farartæki til ferðalaga fyrir það hversu kraftlítið það er og svo er auðvitað ekkert pláss fyrir farangur."
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: