Harley-Davidson á Íslandi í rúm 100 ár:
– Njáll Gunnlaugsson blaðamaður kallar eftir aðstoð lesenda vegna bókarskrifa
Njáll Gunnlaugsson, blaðamaður
og ökukennari, er um þessar
mundir að skrifa um sögu
Harley-Davidson mótorhjóla á
Íslandi. Hann hefur áður skrifað
bókina „Þá riðu hetjur um héröð
– 100 ára saga mótorhjólsins á
Íslandi“ sem kom út árið 2005 og
er þessi bók annað bindi í þeirri
ritröð.
Saga Harley-Davidson á Íslandi
hófst snemma en fyrstu hjólin sem
hingað komu voru af 1917 árgerð.
„Mér líður dálítið eins og
ættfræðingi í þessu verkefni því
að oft þarf að finna út úr því
hver átti hjólið á hvaða tíma og
bera saman við myndir sem til
eru af hjólunum,“ segir Njáll um
bókarsmíðina
ókarsmíðina.
„Tökum til dæmis myndina
með greininni, sem sýnir fjóra
menn á Harley-Davidson 1929-
31 árgerð. Elsta mótorhjólið má
þekkja af tvöföldu framljósunum
en myndina tók Gissur Erasmusson
rafvirki sem átti tvö HarleyDavidson mótorhjól fyrir stríð.
Gissur lést 1941 og átti R-93 hjólið
þegar það var með númerið RE-93.
Það hjól seldi hann í ágúst 1937.
RE-472 er einnig á myndinni en
það númer var á hjólinu meðan
Guðni Sigurbjarnason járnsmiður
átti það, en hann seldi það 1938,“
segir Njáll um eigendur hjólanna
á myndinni.
Nánast ekkert eftir
„Ég ákvað að setjast niður og
skoða hversu mikið efni ég ætti
til um Harley-Davidson þegar
COVID-19 skall á okkur og ég
neyddist til að fara í kennsluhlé
frá ökukennslunni. Ég byrjaði
á að taka saman hvað ég ætti
til um hjól frá því fyrir seinni
heimsstyrjöldina og þá kom í
ljós að ég var með skráningar um
flest þeirra og myndir af meira en
helmingi þeirra.“
Leitin að heimildum um hjólin
hefur leitt Njál víða og í sumar
kom í ljós að skráning á fyrsta
Harley-Davidson lögregluhjóli
Íslands leyndist í Danmörku. Hjólið
fannst að lokum en reyndist þá svo
mikið breytt að nánast ekkert var
eftir af upprunalega hjólinu. „Við
komumst þó að því að mótorinn var
í hjólinu fyrir um það bil þremur
árum síðan og höfum ekki gefið upp
alla von um að hann muni finnast.
Eins er verið að rekja slóð annars
Harley-Davidson lögregluhjóls
sem var af 1955 árgerð, en það var
selt til Danmerkur kringum 1970.
Það hjól er af 1955 árgerð og er
upprunalegt en það var nýlega selt
til Þýskalands.“
Óskar eftir upplýsingum
Það er nú einu sinni þannig með
söguna að alltaf er að bætast við
hana og til þess að bókin verði betri
vill Njáll auglýsa eftir öllu því sem
tengst getur sögu Harley-Davidson
mótorhjóla á Íslandi.
„Það er alveg sama hvað það
er, myndir, sögur, þess vegna
hlutir úr gömlum Harley-Davidson
mótorhjólum. Eflaust hafa mörg
þeirra verið seld úr landi og þá
mörg hver til Danmerkur. Um 40
hjól komu hér fyrir stríð svo vitað sé
og ég hef aðeins náð að finna leifar
af fimm þeirra. Sum þeirra voru
á skrá þar til á sjötta eða sjöunda
áratugnum og gætu leynst hér enn
þá.“
Þeir sem vilja hafa samband
við Njál með upplýsingar um sögu
Harley-Davidson er bent á að skrifa
honum tölvupóst á njall@adalbraut.
is eða að hringja í síma 898-3223.
Áætlað er að bókin komi út haustið
2021 ef allt gengur eftir. /VH
Bændablaðið jan 2020