13.8.20
12.8.20
Vélhjólaslys í Múlagöngum
Vélhjólaslys varð í Múlagöngum á Tröllaskaga milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur í dag.
Frá slystað í Múlagöngum |
Ökumaðurinn beinbrotnaði og var fluttur með sjúkrabíla á FSA.
Tildrög slysins eru ókunn en vitað er að aðstæður í göngunum eru ekki góð vegna bleytu og drullu og vegna þess að þau eru einbreið með mætingarskyldu til vesturs, en bifhjólið var á austurleið að þessu sinni.
Þetta er annað vélhjólaslysið á stuttum tíma í einbreiðum jarðgöngunum á Tröllaskaga, en á dögunum féll annað hjól í Strákagöngum en þar eru víst aðstæður skelfilegar vegna drullu og þurfa bifhjólamenn að gæta sín sérstaklega vel þar sem og í Ólafsfjarðargöngunum sem eru víst að sögn orðin rennblaut og líka með talsverðri drullu í eftir jarðskjálftahrinuna undan farna mánuði.
10.8.20
Þýskur ferðamaður endurheimti stolið mótorhjól á síðustu stundu
Mótorhjóli af gerðinni KTM 620 LC4 var stolið úr bílakjallara Hótels Kletts í síðustu viku. Er gripurinn í eigu þýsks ferðamanns. Átak fór í gang til að endurheimta hjólið á vegum meðlima Facebook-hópsins „Hjóladót, tapað, fundið eða stolið“ þar sem fremstur í flokki fer Bjartmar Leósson, en hann hefur fengið viðurnefnið hjólahvíslarinn vegna ötuls sjálfboðaliðastarfs við að endurheimta stolin hjól og önnur verðmæti.
Deilingarnar urðu alls 1.900 á þremur dögum. Hvort sem þær leiddu lögreglu á sporið eða ekki tókst að leysa málið, lögregla hafði uppi á hjólinu og kom því í hendur þýska ferðamannsins. „Ég leyfi mér að trúa því að Facebook-deilingarnar hafi sett smá skjálfta í þjófana,“ segir Bjartmar í stuttu spjalli við DV.
Að sögn Bjartmars lagði lögreglan mikla vinnu í að finna hjól Þjóðverjans og sagði hann lögreglu eiga hrós skilið fyrir framgöngu sína í málinu.
Það mátti ekki tæpara standa. Þjóðverjinn fór af landi brott í morgun en hjólið fannst í gær. Meðfylgjandi myndir sýna er hólinu var skilað í flutningagám hjá Samskipum.
DV ÁBS 10.08.2020
9.8.20
KTM vinnur fyrsta sigur í MotoGP
Eftir æsispennandi keppni í MotoGP heimsmeistaramótinu í kappakstri mótorhjóla sigraði Brad Binder á KTM í fyrsta skipti fyrir austurríska framleiðandann. Brad Binder er á sínu fyrsta ári í MototGP og er hann fyrsti byrjandinn síðan 2013 til að vinna sigur á sínu fyrsta ári í mótaröðinni.
Brad Binder KTM |
Keppnin fór fram á Brno brautinni í Tékklandi og vann Binder sig upp í fyrsta sætið á fyrstu 13 hringjunum. Þar bætti hann smán saman við forskotið og vann með meira en 5 sekúndna forskoti áður en yfir lauk. Franco Morbidelli á Yamaha varð í öðru sæti og Johann Zarco á Ducati í því þriðja. Fyrrum heimsmeistarinn Valentino Rossi varð fimmti fyrir Yamaha en hann er nú á 41. aldursári.
Fréttablaðið
Njáll Gunnlaugsson
Njáll Gunnlaugsson
9. ágúst 2020
6.8.20
Mótorhjól í bílaflutninga
Fyrirtæki í Svíþjóð sem heitir Coming Through, hefur byggt talsvert undarlegt farartæki til að flytja bilaða bíla á viðgerðarstað. Farartækið er í grunninn Honda Goldwing mótorhjól. Aftan á hjólið hefur verið smíðað samanfellanlegt mannvirki úr áli sem, þegar greitt er úr því, myndar þriggja hjóla „búkka“ sem rennt er undir framhjól bílsins sem á að draga. Þetta skýrist ágætlega á meðfylgjandi myndum.
Hveru mikil alvara mönnum er með þessari smíð er okkur ekki kunnugt um en á heimasíðu fyrirtækisins má ráða að allmörg svona Retriever-hjól, eins og tækið kallast, hafa verið byggð og virðast vera í notkun. Meginhugsunin með þessu er sjálfsagt sú að oft er hægt að skjótast á mótorhjóli þar sem bílar eiga erfiðara með að komast, ekki síst stórir dráttarbílar.
Norska bílablaðið BilNorge greinir frá þessu og getur þess í leiðinni að ekki sé vitað hvort bílabjörgunarfyrirtæki í Noregi, eins og t.d. Falck eða Viking, hafi sýnt farartækinu áhuga.
Nafnið Retriever á þessu farartæki hefur greinilega tilvísun til þekktrar hundategundar; Golden retriever sem þykja afar tryggir eigendum sínum og hjálpsamir. Þeir er talsvert notaðir sem hjálparhundar við t.d. fuglaveiðar og eru duglegir við að sækja bráðina þegar veiðimaðurinn er búinn að skjóta hana niður.
24.9.2010
Átak í gangi til að endurheimta stolið mótorhjól þýsks ferðamanns
Mótorhjóli af gerðinni KTM 620 LC4 var stolið úr bílakjallara Hótels Kletts. Er gripurinn í eigu þýsks ferðamanns. Átak er í gangi til að endurheimta hjólið á vegum meðlima Facebook-hópsins „Hjóladót, tapað, fundið eða stolið“ þar sem fremstur í flokki fer Bjartmar Leósson, en hann hefur fengið viðurnefnið hjólahvíslarinn vegna ötuls sjálfboðaliðastarfs við að endurheimta stolin hjól og önnur verðmæti.
Eftir eina klukkustund hafði tilkynningu um þjófnaðinn verið deilt tæplega 400 sinnum.
„Þessu var stolið af þýskum túrista. Drullusúrt. Getum við sett DEILINGARMET ?? Stolið í gær úr bílakjallara hótel Kletts. Ef einhver sá sendibíl í grenndinni eða eitthvað grunsamlegt látið lögreglu vita,“ segir í tilkynningunni.
Skáningarnúmer hjólsins er VER MI 51
ÁBS DV 6.8.2020
5.8.20
Ómar situr uppi með tjón upp á milljón eftir óhapp í göngunum
Ómar Geirsson á Siglufirði lenti í ógöngum í Strákagöngum á mánudagskvöld. Hjólið rann undan honum í hárfínni drullu og skemmdist mikið. Ómar furðar sig á því að ekki sé betur hugað að öryggi mótorhjólamanna í göngunum.
Hjólið bara rann undan mér í drullunni. Þetta er alveg hárfínn leir og svo er bara svo mikill raki þarna inni að þetta verður bara alveg rennandi svell,“ segir Ómar Geirsson, íbúi á Siglufirði.
Ómar lenti í kröppum dansi í Strákagöngum vestan Siglufjarðar um kvöldmatarleytið á mánudag þegar mótorhjólið hans, 2002 árgerð af Hondu Gold Wing, rann undan honum. Í samtali við Fréttablaðið furðar Ómar sig á því að ekki sé betur stuðlað að umferðaröryggi í göngunum.
Betur fór en á horfðist
Sem betur fer slasaðist Ómar ekki í óhappinu og þakkar hann fyrir það. „Ég er með einn marblett á vinstri handlegg og einn marblett á hægra hné. Það er allt og sumt sem betur fer,“ segir hann en hlífðargalli sem hann var í, bæði buxur og jakki, er ónýtur. Hann telur sig hafa runnið eina sautján metra þegar hann missti stjórn á hjólinu.Ómar segir að hjólið hafi farið heldur verr út úr óhappinu en hann. „Ég er svona hálfnaður með að rífa af því það sem er skemmt og ég held að ég sé að verða kominn upp í eina milljón í tjón,“ segir hann.
Ómar segir að óhappið hafi orðið með þeim hætti að hann var að mæta bifreið og þurfti að víkja út í útskot þar sem göngin eru einbreið. „Yfirleitt fer maður ekki úr hjólfari í hjólfar en ég þurfti að gera því það var að koma bíll á móti,“ segir hann en við það rann hjólið undan honum.
„Þetta er alveg hárfínn leir og svo er bara svo mikill raki þarna inni að þetta verður bara alveg rennandi svell,“ segir Ómar |
Nauðsynlegt að þvo göngin reglulega
„Í venjulegum göngum er nú drenmöl með fram malbikinu en í þessum göngum er bara drulla með fram, bara brún drulla. Svo er rakinn svo svakalegur þarna inni,“ segir hann en við það geta myndast hættulegar aðstæður eins og sannaðist á mánudagskvöld.Hjólið bara rann undan mér í drullunni. Þetta er alveg hárfínn leir og svo er bara svo mikill raki þarna inni að þetta verður bara alveg rennandi svell,“ segir Ómar Geirsson, íbúi á Siglufirði.
Ómar lenti í kröppum dansi í Strákagöngum vestan Siglufjarðar um kvöldmatarleytið á mánudag þegar mótorhjólið hans, 2002 árgerð af Hondu Gold Wing, rann undan honum. Í samtali við Fréttablaðið furðar Ómar sig á því að ekki sé betur stuðlað að umferðaröryggi í göngunum.
Hlífðargallinn sem Ómar var í er ónýtur eftir óhappið en sannaði heldur betur ágæti sitt. |
Ómar segir að nauðsynlegt sé að þvo göngin reglulega, en miðað við aðstæður hafi það ekki verið gert lengi. „Þetta var alltaf gert á vorin en nú þarf bara að gera þetta einu sinni í mánuði ef vel á að vera.“ Hann segist ekki vera búinn að hafa samband við Vegagerðina en hann hyggst gera það þegar hann áttar sig betur á tjóninu.
Flaug næstum á hausinn
Það voru góðhjörtuð hjón sem komu Ómari til aðstoðar eftir óhappið og aðstoðaði maðurinn hann við að koma hjólinu af götunni og út í kant. „Hann var næstum floginn á hausinn við það. Hann átti ekki eitt aukatekið orð yfir því hvað það var sleipt þarna inni,“ segir Ómar sem er þakklátur hjónunum sem hann gleymdi að spyrja hvað hétu.„Þau voru alveg æðisleg og mega gjarnan hafa samband svo ég geti þakkað þeim almennilega fyrir aðstoðina.“
Fréttablaðið
Einar Þór Sigurðsson
Einar Þór Sigurðsson
5. ágúst 2020
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)