6.7.17
20.6.17
Kaffiferð á Hjalteyri
4.6.17
1.6.17
Yfir 2000 mótorhjólamenn við útför Nicky Hayden
Útför fyrrum mótorhjólaheimsmeistarans í MotoGP, Nicky Hayden, var haldin í vikunni og mættu yfir 2.000 mótorhjólamenn í hana til að votta honum virðingu sína. Útförin var haldin í heimabæ Nicky Hayden, Owensboro í Kentucky ríki í Bandaríkjunum.
Margir þeirra komu langt að og að sögn margra þeirra mættu þeir við útförina vegna þess að líf og góður árangur Nicky Hayden hafði mikil áhrif á líf þeirra. Auk þess vildu þeir gleðja aðstandendur þessa besta mótorhjólamanns Bandaríkjanna á síðustu áratugum.Nicky Hayden dó er hann var í reiðhjólatúr þann 17. maí, rétt fyrir mótorhjólakeppni sem hann ætlaði að taka þátt í. Var Hayden fluttur á sjúkrahús í kjölfarið slyssins en lést af völdum áverka slyssins fimm dögum síðar, 22. maí. Hayden varð fyrir bíl sem ók á hann á reiðhjóli sínu.
Visir
Finnur Thorlacius skrifar 1. júní 2017
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)