8.5.19
7.5.19
Ryðgað gamalt mótorhjól talið 10 milljóna virði
Búist er við að um 10 milljónir króna fáist fyrir rúmlega aldargamalt ryðgað mótorhjól þegar það verðu selt á uppboði í Las Vegas um næstu helgi.
Um er að ræða Indian Camelback mótorhjól árgerð 1906 en þetta var eitt af fyrstu mótorhjólunum sem smíðuð voru í heiminum. Það er með einsstrokka bensínvél sem skilaði af sér rúmlega tveimur hestöflum.Aðeins tæplega 1.700 hjól af þessari tegund voru smíðuð á sínum tíma og þetta eintak er eitt örfárra sem enn eru til.
Mótorhjólið var í eigu du Pont fjölskyldunnar sem keypti framleiðslufyrirtæki þess, Indian Motorcycle Manufactoring Company á sínum tíma. Það var síðast keyrt á áttunda áratugnum. Fyrirtækið varð hinsvegar gjaldþrota árið 1953 eftir mikla samkeppni við Harley Davidson.
Sem fyrr segir er mótorhjólið ryðgað og alls ekki í toppstandi. Slíkt er þó talið auka verðmæti þess og ósennilegt er talið að nýr eigandi þess muni gera það upp þar sem slíkt myndi lækka það í verði.
Visir.is 10. janúar 2012
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)