Í ár verður talsvert stórt ár hjá Tíunni þar sem Landsmót Bifhjólamanna er inn á dagskránni ásamt öðrum föstum liðum sem við ætlum að reyna að gera sem veglegasta í ár .
En til að hjálpa til þá er gott að félagsmenn greiði árgjaldið í Tíunna en það er aðeins 3000kr eða 3150kr með greiðsluseðli sem kom í heimabanka hjá skráðum félögum í febrúar.
En þar af rennur 1000 kr til Mótorhjólasafns Íslands, en í staðinn getur félagsmaðurinn fengið frítt inn á safnið, þó hann komi oft í heimsókn.

