17.8.17
Lög Tíunnar
Lög Bifhjólasamtök Norðuramts Tían.
1. Nafn Klúbbsins
Nafn klúbbsins er Tían, Bifhjólaklúbbur Norðuramts. Heimili og varnarþing klúbbsins er á Akureyri.
Tían er klúbbur áhugafólks um bifhjól af öllum gerðum.
2. Markmið félagsins.
* Efla samstarf bifhjólaáhugafólks á Norðurlandi.
* Vera öðrum bifhjólaökumönnum fyrirmynd.
Nýtt tilboð fyrir Tíufélaga.
Rakarastofa Akureyrar Hafnarstræti 88
Bíður Tíufélugum upp á 10% afslátt af vörum sínum.
Sjá meira á tiboðsíðunni okkar á Facebook.
55 BMW mótorhjól um Vestfirðina
BMW mótorhjólaklúbburinn á Íslandi er félagsskapur fólks sem ekur um á BMW mótorhjólum.
Klúbburinn var stofnaður þann 14. júní 2007 og fagnaði því 10 ára afmæli á þessu ári. Haldin var vegleg afmælisgrillveisla á Þingvöllum í sumar þar sem klúbbmeðlimir ásamt fjölskyldum komu saman og héldu upp á árin tíu. Í klúbbnum eru rétt tæplega 100 félagar sem allir eiga það sameiginlegt að eiga BMW mótorhjól og hafa mikinn áhuga á ferðalögum á mótorhjólum.
BMW mótorhjól eru talin henta vel til ferðalaga og eru sniðin að þörfum ferðalangsins. Þess vegna hefur verið lögð rík áhersla á ferðamennsku innan BMW mótorhjólaklúbbsins.
Ætla að skoða helstu náttúrugersemar Vestfjarða
Á vegum klúbbsins eru farnar nokkrar skipulagðar ferðir á ári hverju, bæði í formi dagsferða um landið en einnig lengri ferðir þar sem gist er í tjöldum eða á gistiheimilum. Einnig hafa verið skipulagðar nokkrar utanlandsferðir á vegum klúbbsins.Á afmælisárinu vill svo skemmtilega til að um 25 félagar úr þýska BMW GS Club International ætla
að koma með hjólin sín til Íslands og ferðast um landið í 2 vikur. Þeir munu slást í för með íslenska BMW mótorhjólaklúbbnum í fjögurra daga ferð um Vestfirði þar sem skoðaðar verða helstu náttúrugersemar Vestfjarða, allt frá Látrabjargi og alla leið norður á Strandir þar sem endað verður á heljarinnar kjötsúpuveislu og bryggjuballi að hætti Strandamanna. Um 30 meðlimir íslenska BMW
klúbbsins hafa boðað þátttöku sína í ferðina svo að þessi ferð verður stærsta hópferð BMW mótorhjólaklúbbsins fyrr og síðar, eða um 55 hjól.
Fréttablaðið
17.8.2017
15.8.17
Tíuferð 15 ágúst
Nokkur hjól skelltu sér í skipulagða Tíuferð í kvöld en samkvæmt plani var áætlað að fara í Vaglaskóg en í framhaldi af því þar sem allt er lokað í Vaglaskógi þá var haldið áfram í Dalakofann við Lauga í Reykjadal og fengu menn sér pizzu og aðrar veitingar.
Svo var aftur rennt í bæinn og var orðið dimmt er félagarnir komu niður á torg. Rúmlega kl 23:00Þrælskemmtileg ferð.. smábleyta en ekkert sem góðir gallar þola ekki.
13.8.17
Næstu dagar, vikan 14-20 ágúst.
10.8.17
Aukaaðalfundur Bifhjólaklúbbur Norðuramts Tían
Auka Aðalfundur Tíunnar
Þann 17.águst verður auka Aðalfundur Tíunnar haldin í Mótorhjólasafninu 2.hæð kl 20:00
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning nefnda.
8. Önnur mál....
Óskað eftir framboðum í stjórn Tíunar og aðra nefndir.
Hægt er að sækjast eftir því á fundinum.
Einungis greiddir tíufélagar geta setið fundinn.
Óskað eftir framboðum í stjórn Tíunar og aðra nefndir.
Hægt er að sækjast eftir því á fundinum.
Einungis greiddir tíufélagar geta setið fundinn.
Stjórnin.
9.8.17
Góðann Daginn
HJÓLAFÉLAGAR OG TÍUMEÐLIMIR
www.tian.is
Náði loksins að ná tökum á heimasíðunni sem hefur legið dáin í rúm 2 ár .
svo það er best að byrja aftur.
kv Víðir #527
www.tian.is
Náði loksins að ná tökum á heimasíðunni sem hefur legið dáin í rúm 2 ár .
svo það er best að byrja aftur.
kv Víðir #527
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)