Honda CBR 600F 1993 |
Bylting í smíði mótorhjóla
Sú bylting, sem varð í smíði mótorhjóla á síðasta áratug, var vel á veg komin árið 1987. Dæmi um hjól sem breyttu öllum viðmiðunarmörkum og áður voru komin á markað eru Honda VF IntTB erceptor 500 og 750, Kawaj saki GPz 900R Ninja, og ekki síst Suzuki GSXR 750, sem var líkara keppnishjóli en nokkuð sem áður þekktist. Markaðsaðstæður hafa sennilega verið með besta móti til að taka við „ódýrum" hjólum með alvöru aksturseiginleikum og fullorðinsvélarafli enda gekk dæmið upp hjá Honda þegar þeir buðu CBR 600 F. í Bandaríkjunum fengu þau nafnið Hurricane og var það vel til fundið. 55.000 eintök hafa stormað yfir Bandaríkin ein frá því þau komu á markað. Auðvitað hafa „allir hinir", þ.e. japönsku framleiðendurnir, sett á markað hjól í sama flokki, en mælistikan hefur alltaf verið á Hondunni. Árin '91 og '92 voru þessi hjól nánast ráðandi í Supersport 600-keppnum, en á síðastliðnu ári hefur oft verið bitið í hælana á þeim af Kawasaki- og Suzuki-hjólum. Þrátt fyrir það verður Hondan, lítið breytt '94, í framvarðasveitinni í sínum flokki.Fjölnotahjól
Sennilega er stærsti kosturinn við þessi hjól sá, að þau eru nothæf í fleira en keppni. Bæjarsnattið og landshornarúntar eru innan markanna. Tveir geta jafnvel ferðast á þeim við þolanlega heilsu. Þó finnst lappalöngum nokkuð þröngt á þeim til lengdar og þeir sem eru vanir stórum vélum með mikla seiglu hafa á tilfinningunni að þessar litlu vélar séu eins og „sjúklingur í astmakasti" fyrir neðan 7.000 snúninga. En frá 7.000 og upp í 13.000 snúninga gerast hlutirnir nokkuð valdsmannslega.
■
Haraldur Ingþórsson
Morgunblaðið
Morgunblaðið
14.11.1993
Heimildir: Cycle World og Motorcyclist, okt.
'93