Lamborgini Mótorhjól |
Eitt af fágætum mótorhjólum í heiminu er Lamborghini Design 90
Eitt slíkt fór (hjól nr 2) fór á uppboð á dögunum með upphafsboð upp á 45 þúsund dollara en það verð var ekki að gera sig og enginn bauð lágmarskverð.
Á áttunda áratugnum fóru Lamborghini Sportbílaframleiðandinn að búa til mótorhjól.
Fyritækið var búið að vera í kröggum og meðal annars búið að skipta um eigendur og reyndu þeir að auka tekjurnar með því að búa til meðal annars mótorhjól og V12 hraðbáta og reyndu einnig við smíða skutbíl SUV .
En þar sem þetta er mótorhjólasíða þá er það mótorhjólið sem um ræðir.
Lamborgini Design 90. framleiðsluár 1986
Samið var við Franska framleiðandann Boxer um hönnun og samsetningu á hjólinu.
Niðurstaðan var nokkuð mögnuð.
Þeir notuðu 1000cc mótor frá Kawasaki sem var um 130 hestöfl í hjóli sem var rúmlega 200 kg fullt af bensíni og olíu. (blautt).
hjólið var svo umvafið plastkápu frá toppi til táar.
Héldu þeir að þeir gætu selt c.a 25 slík hjól en niðurstaðan varð sú að aðeins 6 stk voru framleidd.
Design 90 #2 Naked |
Hjólið var hraðskreitt, um það var enginn vafi og höndlaði mjög vel en það kostaði 13000 dollara sem árið 1986 var helvíti mikil summa eða rúmlega tvöfallt verð á öðrum sambærilegum hjólum þess tíma.
Ég persónulega kann vel að meta lokkið á flestum hjólum frá áttunda áratugnnum en mér finnst þetta hjól mjög ljótt. Það lítur eiginlega út eins og hjól sem þér væri úthlutað í Grand theft auto tölvuleiknum. Allar línur hjólsins eru eiginlega út úr kú og bera þess merki að sá sem teiknaði það má bara æfa sig á einhverju öðru .
Allavega ef ég væri að leita að einhveju spes og á verðbilinu 124 þúsund dollarar ,, ( þ.e. það sem var vonast eftir að fá á uppboðinu) þá væri það sennilega hugmynd að fá sér Lambó í safnið :)