30.6.06

Landsmót Snigla í Tunguseli um helgina


LANDSMÓT Snigla verður haldið um helgina í Tunguseli í Skaftárhreppi, u.þ.b. 40 km austur af Vík í Mýrdal (landsmót var haldið í Tunguseli 1995), og lýkur 2. júlí. 

Mót þessi hafa verið vel sótt hin síðari ár með allt að 500 gestum. 

Á dagskrá eru tónleikar öll kvöld, íþróttamót Sniglanna, farið verður í ýmsa leiki, hátíðarkvöldverður á laugardeginum og svo auðvitað hópkeyrsla um nágrennið að hætti Snigla. 



30.6.2006