Það getur verið sniðugur kostur að eiga mótorhjól sem nýtist bæði sem leiktæki og hefðbundið farartæki.
Eitt slíkt er torfæruhjólið TM 400 sem með ljósabúnaði er löglegt götuhjól en hefur samt alla kosti torfæruhjólsins sem eru léttleiki og kraftur. Innfiytjandi TMhjólanna er JHM Sport og er hægt að fá hjólið afhent með tveimur settum af gjörðum, annað fyrir torfærudekkin og hitt fyrir götudekk, en þannig prófuðum við einmitt hjólið á dögunum.
Öhlins-framdemparar og Excel-gjarðir tryggja gæði. |
Verklegasta hjól
Það fer ekki fram hjá þeim sem skoða hjólið í fyrsta sinn að þetta er verklegt hjól. Það virkar létt jafnvel áður en sest er á það og slaglöng fjöðrunin gerir það hátt á velli. Ekki sakar heldur að það glampar fallega á gulllitaða Öhlins-demparana og silfurlitaða Chrome-Moly-grindina. Þaö svíkur heldur ekki þegar búið er að koma sér fyrir í hnakknum og þótt hjólið sé hátt er það mjög stöðugt og létt og auðvelt að færa sig til i hnakknum. Fyrir framan mann er svo minnsta mælaborð i heimi - litfll stafrænn skjár sem sýnir hraða og vegalengd í tölum og eitt grænt ljós fyrir stefnuljósin. Kúplingshandfangið er „tveggja putta", enda mjög létt átak á því, sem og frambremsu, sem er öflug diskabremsa. Há ásetan hefur sína kosti og galla. Ökumaður situr hátt og sér vel yfir en hliðarstandari er með gormi sem skýtur honum upp þegar hjólið er reist við. Þetta hefur þann ókost að eríitt er að hafa það á standaranum þegar verið er að sparka í gang og þarf því smálagni til að finna rétta lagið við gangsetninguna. Einnig smellur standarinn upp í hliðarhlífina í stað þess að falla upp að grindinni. Hjólið verður þó fáanlegt með rafstarti á næsta ári fyrir þá sem það kjósa.Hjólið getur líka verið skemmtilegt á götudekkjum eins og sjá má |
Kraftmikið en gangurinn grófur
Hjólið er snöggt á snúning og kraftmikið en gangurinn er frekar grófur og maður finnur vel titringinn frá vélinni, sérstaklega í pedulum. Þetta verður þreytandi til lengdar á langkeyrslu á malbiki þótt að maður finni ekki svo mikið fyrir þessu í grófari akstri. Auk þess var nokkurt skak í framhjóli þegar komið er upp i 90 km hraða en að sögn umboðsmanns átti eftir að jafnvægisstilla hjólið á götudekkjunum. í prófunum hjá Dirt Bike mældist þetta hjól öflugast út í afturhjól í sínum ílokki og það finnst vel.Bensíntankurinn er nettur en frekar lítill fyrir lengri akstur. |
Öhlins-afturdemparinn er með mikla fjöðrunargetu og þar að auki fjölstillanlegur. |
Kostir: Kraftur, stöðugleiki, fjöðrun
Gallar:Grófur gangur, hliðarstandari
-NG
DV
24.8.2002