Landsmót var haldið dagana 30.júni til 2. júli.
Mæting hefur aldrei verið eins góð, Alls komu um 200 manns á svæðið og hjólin voru yfir 100 sem er nýtt met. 29. júni voru nokkrir mættir á svæõið.
Þegar Ormurinn kom urðu menn a þjófstarta ölæðinu honum til heiõurs. Sú drykkja stóð til kl 09:00 að morgni 30.júní Þetta þýddi að endurnýja þurfti áfengisbyrgðirnar og var því fjölmennt i verslun Á.T.V.R á Sauðárkróki.
Seinnipart föstudags biðu menn óþreyjufullir eftir að fyrsti mótorhjólahópurinn kæmi á svæðið.
Um sjö leytið byrjuðu fyrstu drunurnar að heyrast eins og i þotum í lágf1ugi. Fyrsti hópurinn með Gunna, kyntröll, CBR í fararbroddi á nýja graðfolanum sínum með einar 9 merar á eftir sér.
Siðan komu hóparnir hver af öðrum þeir komu eftir miðnætti var svo kalt að skrifa þurfti fyrir þá gúmmiávisanirnar til að þeir kæmust inn á svæðið.
Á miðnætti setti Halli Reiðhjólaskelfir mótið formlega með skelfilegri ræðu. Síðan dó Halli. Því var næst boðið upp á súpu ala Heiðar að súpu áti 1oknu var drukkið og sungið til morguns.
Á laugardag fóru margir á Blönduós i sund og til að seðja hungrið, en Vestmannaeyingarnir fengu sér Helium til að hressa upp á raddböndin. Timaáætlun er ekki sterkasta hlið Snigla og tveim timum á eftir áætlun hófust hinar æsispennandi Snigla íþróttir.
Dagskráin hófst á Snigli sem Nonni Hafsteins vann á nýju Íslandsmeti 46,90 sek. Því næst var þrauta- kóngur sem Nonni vann einnig. Dekkjakast sem Jón Páll vann með sinni alkunnu snild sem kringlukastari, kast hans mældist 16 metrar.
Hafdís vann kvennaflokkinn með kasti upp á 6,60 metra. Raggi sendill vann Lúdmiluna enda vanur að láta dekkin snúast. Liklegur endurheimti hreðjaglímutitilinn með afbragðsgóðu nærbuxnataki á Tryggva Beikon í úrslita- glímunni. Nærbuxnatakið fólst meõal annars i sér þá lyst að afturendinn á Tryggva var afhjúpaður og hann rassskelltur opinberlega.
Tegundarreipitog sigraði Kawazaki eigendur eftir harõa baráttu við Suzuki.
Dansleikur hófst á miðnætti og sá Sniglabandið um að skemmta fólki til kl.03:30 með sinni allkunnu snild. Inn i dansleikinn fléttuðust svo orðuveitingar og verõa þær taldar upp hér að neðan, Toni Krassorõan fyrir frækilegt krass á síõasta Landsmóti, Jói Austfirðingur viðförlaorðan, Gunnu 'Klútur 1engst að komni Íslendingur á Landsmót, Drápsorðan varð vandarmál því enginn hafði drepið rollu þetta árið, Jón Pál1 var því sæmdur þessari orðu þar sem hann hafði drepið fugl á laugardeginum. Eftir dansleikinn var setið við eldinn og sungið og og drukkið og drukkið og drukkið og drukkið og drukkið og dáið.
Á sunnudaginn fóru menn og konur í skringilegu ástandi til síns heima. Ótrúlega margir höfðu fengið flensu þennan morgun. Eru dæmi um það að menn hafi ælt oftar en einu sinni á leiðinni heim.
Svo rosaleg varð flensan að Ormurinn þurfti að fara á Skagaströnd til að reyna a fá keypta heilsu. Enn einn fór til Akureyrar til að leita að heilsunni ók hann þaðan daginn eftir til Hveragerðis og þar á Heilsuhælið
Líklegur Nr.56
Sniglafréttir 3.tbl.júlí 1989