|
Vélhjólaklúbburinn Elding í ferðalagi á Krísuvíkurbjargi |
Við höfum líka til
umráða Golfskálann á Öskjuhlíð, og þar hafa t.d. aðalbækistöð sína vélhjólaklúbburinn
Elding og Bifreiðaklúbbur
Reykjavíkur. Vélhjólaklúbbur
inn Elding var stofnaður 1960
og hann kemur saman á miðvikudagskvöldum og heldur þá
fræðslu- og skemmtifundi, en
á verkstæði klúbbsins geta félagar unnið að viðgerðum hjóla
sinna flest kvöld vikunnar.
Það er rétt að geta þess, að
nýlega hefur orðið að samkomulagi við lögreglustjórann
í Reykjavík, að það verði skilyrði fyrir ökuprófi á vélhjóli,
að hafa sótt námskeið í umferðarreglum og meðferð vélhjóla hjá vélhjólaklúbbnum Eldingu. Innritun á þau
námskeið fer fram daglega kl.
2—8 síðdegis hér og á fundum
klúbbsins. Áður var þetta mjög
laust, strákar gátu farið niður
eftir og fengið skírteini sem
hjóleigendur og aikendur, en
vitaskuld er þeim ekfci slður
nauðsyn en bfls^örura aB
kunna að aka eftir "dllum umferðarreglum.
Tíminn
30.6.1966