Margir félagar í Tíunni eru með merki samtaka sinna á gallanum sínum, Mótorhjólamann sem er að detta af mótorhjóli sem er teikning af listaverki sem heitir "Fallið" og er það staðsett í Varmahlíð og er til minningar um fallna Mótorhjólamenn.
Jæja, nóg um það. Þið ætlið að taka þátt í mótorhjólakappakstri Tíunnar, sem fer að sjálfsögðu ekki fram á götum bæjarins eða þjóðvegunum heldur á svæði Bílaklúbbs Akureyrar þess ætluðu utan alfaraleiða.
Þið þurfið eitt stykki tening, eitthvað til þess að leggja ofan á reitina í spilinu, tölu, mynt eða eitthvað í þeim dúr. Þið stillið ykkur upp við rásmarkið, sem er merkt START, síðan kastið þið teningnum til skiptis og færið ykkur áfram'um eins marga reiti og koma upp á teningnum. Ef þið lendið á ró fáið þið aukakast.
Ef þið eruð svo óheppin að lenda á nagla, springur óneitanlega hjá ykkur og þið fáið refsistig; þið verðið að sitja hjá eina umferð.
- Reitur númer 1: Stopp! Þið fóruð út af kappakstursbrautinni. Farið aftur á byrjunarreit.
- Reitur númer 2: Þið komist upp á trjábol og þar með yfir helstu hindrunina, djúpan og fúlan læk. Færið ykkur á svarta reitinn.
- Reitur númer 3: 0, óó! Hvað var þessi steinhnullungur að gera á miðri kappakstursbrautnni? Nú kom sér vel að verameð hjálminn og í leðurgallanum. Sitjið hjá í tvær umferðir á meðan þið eruð að jafna ykkur og aðstoðarfólkið ykkar reynir að tjasla upp á mótorhjólið.
- Reitur númer 4: Loksins sjáið þið hilla undir lok keppninnar, allar hindranir að baki og brekkan slétt og felld gefur ykkur.heldur betur byr-í bakið og þið þeysið beint í MARK!
Hafið gaman af. Kv Tían