Mótorhjólaheimurinn

Landsmót í gegnum árin

Listi yfir Landsmót Snigla/Bifhjólamanna...í gegnum tíðina

Landsmót Snigla er án efa mesta hátíð bifhjólamanna ár hvert og hefur enginn sem hefur á landsmót komið gleyma því.
     Landsmótpartý snigla var fyrst haldið í Húsafelli sumarið 1984 í blíðskaparveðri en þangað mættu fáir enda samtökin ung. Engin landsmót voru svo haldin 1985-1986 en árið 1987 var haldið fyrsta landsmótið í Húnaveri og mættu þar um 120 bifhjólamenn og skemmtu sér vel í glampandi sól og steikjandi hita alla helgina. 
1988 -89-90 voru landsmót haldin í Húnaveri og fjölgaði gestum ár frá ári .

Skógar árið 1991 var landsmótið haldið að Skógum undir Eyjafjöllum og var það besta landsmót frá upphafi. (þá). Var 20° hiti og heiðskýrt og skemmtu sér meira en 310 bifhjólamenn sér konunglega þá helgi.  1992 var Landsmót haldið í Trékyllisvík á Ströndum og mættu þar 200 manns þrátt fyrir slæma vegi.

Alls staðar sem Sniglar koma saman og halda mót koma þeir sveitungunum og lögreglu þægilega á óvart með kurteisislegri framkomu og góðri umgengni.
1993 þegar mótið var haldið í Hallormstaðaskógi gaf Lögreglan á Egilstöðum okkur borðfána í þakklætiskyni fyrir samstarfið.

Landsmót er alltaf haldið fyrstu helgina í júlí þe. ef sunnudagurinn er 1.júlí þá er það helgin sem landsmót er. o.s.f.v.   
Landsmót er ekki bara ætlað Bifhjólamönnum heldur öllum sem hafa áhuga á mótorhjólum.
og skiptir það ekki máli hvernig hjól.

Dagskráin hófst áður fyrr á föstudagskvöldum en í seinni tíð hefur dagskráin hafist á fimmtudagskvöldum með góðri kvöldvöku og jafnvel hljómsveit.
á föstudeginum var áður fyrr miðnæturtónleikar og Súpa sem elduð er í nornapotti sem allir snæddu og svo var setið við varðeldinn og sungið og drukkið fram á morgun.
Nú orðið er súpan enn við líði og svo dansiball og sungið og drukkið fram á morgun.

Á laugardeginum eru svo leikar þar sem keppt er í hinum ýmsu mótorhjólagreinum og eftir leikana er stórsteik og um kvöldið lokadansleikur fram á morgun...
Sunnudagur fer í frágang á svæðinu og taka allir þátt í því sem heilsu hafa. Við skiljum alltaf vel við okkur svæðin því við viljum halda áfram að halda landsmót.

1984 Húsafell Borgarfirði

1985 Ekkert mót

1986 Ekkert mót

1987 Húnaver  120 manns
í raun fyrsta landsmótið

1988 Húnaver

1989 Húnaver


1990 Húnaver

1991 Skógar undir Eyjafjöllum 
310 manns


1992 Trékyllisvík á Ströndum   
190 manns

1993 Hallormstaður í skóginum í stóru partítjaldi
1994 Húnaver  10 ára afmæli Snigla     500 + manns

1995 Tunguseli Skaftártungu

1996 Tjarnarlundur Dölum

1997 Végarður Fljótsdal

1998 Ketilás Fljótum

1999 Tjarnarlundur Dölum

2000 Húnaver


2001 Húnaver
2002  Hamraborg

2003 Njálsbúð V-Landeyjum




2004 Húnaver
 20 ára afmælismót
Snigla



2005 Tjarnarlundi Dölum
2006 Hrífunes   
Skaftártungu


2007 Skúlagarður
(Fyrsta Landsmót Bifhjólamanna)
Kelduhverfi

2008 Lýsuhóll Snæfellsnesi

2009 Húnaver

2010 Húnaver  (Óskabörn Óðins)

2011 Húnaver  (Raftar)

2012 Húnaver   (Mc Skál)
2013 Húnaver  (Sober riders )

2014 Húnaver   
(Sniglar Afmælismót 30ára)
2015 Eyjar
2015 Vestmannaeyjar
  (Drullusokkar)
Frétt um mótið 



2016 Iðavellir   Héraði (Goðar)

2017 Núpi  Dýrafirði  (Mc Tigerlillys)
2017 Núpur

2018 Ketilás í Fljótum (Tían)
220 manns

2019 Brautartunga 4-500 +


2020 Laugarbakki 300 +


 2021  Húnaver 4-500 +


2022 Húnaver 
200 manns



2023 Trékyllisvík
c.a 60-70 manns


2024 Varmaland í Borgarfirði
500+