Við þurfum að hafa með okkur meira samstarf að hagsmunamálum mótorhjólafólks, Og þess vegna hafa Sniglar Bifhjólasamtök Lýðveldisins ákveðið að bjóða formönnum starfandi mótorhjólaklúbba til skrafs og ráðagerða kl 17:00 mánudaginn 21. maí í Sniglaheimilinu.
Að mati Bifhjólasamtaka Lýðveldisins eru það helst þrjú atriði sem brenna á mótorhjólafólki um þessar mundir, en það eru tryggingamál, lagaumhverfið og vegamál. Grípa þarf til samstilltra aðgerða í tryggingamálum og ýta lagabreytingum og forvörnum í vegamálum áfram. Auk þess má tína til mörg smærri atriði og því viljum við hvetja til þessa samtals.