17.8.19
Peter Fonda látinn (Easy Rider)
Bandaríski kvikmyndaleikarinn Peter Fonda lést í dag 79 ára að aldri en hann var einna þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Easy Rider frá 1969.
Fram kemur í frétt breska dagblaðsins Daily Telegraph að banamein hans hafi verið andnauð vegna lungnakrabbameins.Fonda lék í fjölda kvikmynda á löngum ferli og hlaut ýmis verðlaun. Þar á meðal Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Ulee's Gold 1997 sem og Golden Blobe-verðlaun. Síðarnefndu verðlaunin hlaut hann einnig fyrir The Passion of Ayn Rand 1999.
Fonda var sonur kvikmyndaleikarans Henry Fonda og yngri bróðir kvikmyndaleikkonunnar Jane Fonda. Hann var faðir leikkonunnar Bridget Fonda og leikarans Justin Fonda.
Texti :mbl.is
15.8.19
12.8.19
Mad Max "Stríðsmaður á veginum"
Það er 40 ár síðan einn af mest elskaða og ein áhrifamesta mótorhjóla bíómynd allra tíma kom í kvikmyndahúsin.
Mad Max, útgefin árið 1979,
Bíómyndin varð vinsæl um allan heim en það eru ekki allir sem vita að í henni lék alvöru mótorhjólagengi
Ekki skemmdi heldur fyrir að myndin sem var mjög ódýr í framleiðslu, kostaði 350 þúsund dollara en halaði inn massívum 100 milljón dollurum og setti met í Heimsmetabók Guinness yfir arðbærustu kvikmyndir sem stóð í yfir 20 ár.
Myndin kom einnig ferli ástralska leikarans Mel Gibson á flug en hann er í dag farsæll leikari og leikstjóri.
Án Mad Max , myndi mótorhjól í bíómyndum einfaldlega ekki vera það sama.
Hjólamennirnir sem léku í myndinni fengu til dæmis borgað í bjór þar þar sem þröngt var í búi við gerð myndarinnnar.
Sagan um sköpun Mad Max er í raun Sköpunarverk ,George Miller.

10.8.19
9.8.19
8.8.19
7.8.19
Geysisferð postula
Góð mæting var í árlega Geysisferð Postulanna þetta árið. Alls tóku 140 mótorhjól og 16 fornbílar þátt í ferðinni. Hist var á bílaplaninu við Jötunvélar á Selfossi áður en lagt var af stað. Hópurinn fékk lögreglufylgd í gegnum bæinn og upp að Biskupstungnabraut þaðan sem leiðin lá upp að Geysi. Ferðin gekk glimrandi vel og notu menn ferðarinnar til hins ítrasta. Að vanda fengu Postular góðar móttökur á Geysi
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)