75 konur mynda MC Nornir -------- Segjast vel geta kallað sig MC-klúbb
MC Nornir er mótorhjólaklúbbur á Norðurlandi
sem samanstendur einungis af konum. Klúbburinn var stofnaður 7.
janúar 2009 og í dag eru um 75 meðlimir í honum. „Ég tók mótorhjólapróf árið 2007 og var síðan boðið
að ganga í klúbbinn,“ segir Hrönn
Arnheiður Björnsdóttir, formaður
MC Norna.
Allir velkomnir
Hrönn segir áhuga sinn á mótorhjólum vera ástæðuna fyrir að hún
gekk í klúbbinn. Tilgangur klúbbsins er „að koma konum saman og
hafa gaman,“ segir Hrönn.
„Ég hef alltaf haft áhuga á mótorhjólum en ég var orðin 36 ára þegar
ég tók prófið. Þessi klúbbur er hugsaður sem stuðningur fyrir konur
sem hafa kannski áhugann en hafa
ekki þorað að taka skrefið til fulls,
taka próf og fá sér hjól. Síðan er
þetta hugsað sem félagsskapur fyrir
konur sem eru með próf og hjól til
að koma saman.“
Hrönn segir engin skilyrði önnur
fyrir inngöngu en þau að viðkomandi hafi áhuga á mótorhjólum.
„Hinar sem eru ekki komnar með
próf, koma stundum með okkur
í ferðir en eru þá bara á bílum eða
sitja aftan á hjólum hjá öðrum. Það
eru auðvitað allir velkomnir.“
Æfa sig í þrautabrautum
MC Nornir leggja mikið upp úr forvörnum og njóta stuðnings ökukennara fyrir norðan sem fer
reglulega yfir öryggisatriði með
konunum. „Við höfum notið góðs af
því að Valdimar Þór Viðarsson ökukennari hefur komið til okkar á sérstökum forvarnardegi og sett upp
þrautabraut sem við getum fengið
að spreyta okkur á og liðkað okkur
aðeins fyrir sumarið. Hann aðstoðar
okkur og segir okkur til ef þess þarf.
Hann hefur einnig verið með okkur
einu sinni í viku í um sex skipti í æfingaakstri og þá förum við í sérstaka
braut og fáum að æfa okkur.
Bandarískir kvenhjólaklúbbar fyrirmyndir
Hrönn segist ekki hafa fundið fyrir
fordómum að undanförnu eftir að
umfjöllun um MC-klúbba á borð
við Hells Angels og Outlaws varð
hávær, en segir jafnframt að sumir klúbbar hafi fett fingur út í það
að þær kalli sig MC-klúbb, en einhverjir vilja meina að það standi fyrir „Mens Club“. „Það er þessi misskilningur um að MC standi fyrir
„Mens Club“, en við höfðum samband við AMA eða American Motorcycle Association og þeir sögðu það
að MC stæði bara fyrir „Motorcycle
Club“ eða mótorhjólaklúbb. Það má
segja að við séum búnar að liggja í
heimildavinnu frá 2009. Við vitum
því að það eru margir bandarískir
kvenmótorhjólaklúbbar sem bera
MC í sínu nafni, eru með heilt bakmerki og borga sín félagsgjöld. Við
teljum þær vera okkar fyrirmyndir.“
Vilja bera heilt bakmerki
MC Nornir bera armmerki á sínum
fatnaði sem er þeirra einkennismerki, það er þó hugur í þeim að
taka upp heilt bakmerki. „Við höfum hugsað okkur í ár að móta skýrari stefnu í klúbbnum og taka upp
bakmerki, en merki klúbbanna segir til um hvernig klúbburinn er uppbyggður. Heilt merki segir til um
að þetta sé selskaps eða fjölskylduklúbbur. Svo eru tveggja búta merki
sem getur staðið fyrir ýmiss konar
uppbyggingu klúbbsins. Loks eru
til þriggja búta merki og það bera
þessir hefðbundnu mótorhjólaklúbbar, með ströngu reglunum
og inntökuskilyrðunum.“ Að sögn
Hrannar bera samtök á borð við
Hells Angels einsprósentu merki
ásamt þriggja bútamerki, en þetta
eins prósentu merki merkir að þeir
séu útlagar og skeri sig frá öðrum
mótorhjólaklúbbum. „Þá erum við
komin í það sem misskilningurinn liggur í því það eru yfirleitt bara
„Mens Club“.