10.9.03

Ágrip af sögu JAWA-mótorhjólsins tékkneska


Jawa CZ 356, 175 cc, árgerð 1957. Dæmigert Jawa
-mótorhjól frá 6. áratug síðustu aldar.

JAWA? Hvað er nú það?


Ólafur Th. Ólafsson, framhaldsskólakennari á Selfossi, hefur kynnt sér sögu JAWA-mótorhjólanna tékknesku og á sjálfur tvo slíka gripi. Ólafur fjallar hér um sögu JAWA.


Árið 1929 hóf Tékkinn Frantisek Janecek að smíða mótorhjól. Fyrstu hjólin voru með eins cylindra, 500 cm³ fjórgengis mótor með toppventlum. Janecek hafði samvinnu við þýsku mótorhjólaverksmiðjurnar Wanderer og kom fyrrnefndur mótor frá þeirri verksmiðju. Þar var líka komið nafnið á framleiðsluna; JA, fyrstu tveir stafirnir í nafni Janeceks og WA, fyrstu tveir stafirnir í nafni Wanderer verksmiðjunnar - JAWA! Næstu árin var þetta hjól framleitt og einnig hjól með 750 cm³ mótor, ætlað fyrir hliðarvagna.


Fljótlega upp úr 1930 hóf Janecek að gera tilraunir með hjól með eins cylindra tvígengismótor. Hann hóf samstarf við Bretann G.W. Patchett, frægan mótorhjólahönnuð og mótorcrosskappa, sem kom til Tékkóslóvakíu með 175 cm³ tvígengismótor. Frantisek Janecek hóf að framleiða hjól með þessum mótor og urðu þau fljótlega langvinsælustu hjólin í Tékkóslóvakíu. Um þetta leyti hætti líka JAWA-verksmiðjan að framleiða stóru hjólin; 500 og 750 cm³. Framleiddi þó í nokkur ár á eftir hjól með 350 cm³ tvígengisvél og síðan fjórgengisvél.


Einnig framleiddi verksmiðjan létt hjól, JAWA Robot, með 98 cm³ eins cylinders tvígengismótor. Á þessu hjóli voru mótorblokkin og gírkassinn sambyggð, en það var algjör nýlunda á þessum tíma, en er alþekkt núna. Hámarkshraði þessa hjóls var 65 km/klst og það vó ekki nema 49 kíló.


JAWA Pérák

Öll mótorhjól frá JAWA-verksmiðjunni voru á þessum tíma með sama litnum; kirsuberjarauð og var liturinn oft bara kallaður Jawarautt.

Framleiðsla JAWA stöðvaðist í byrjun seinni heimsstyrjaldarinnar. Þjóðverjar höfðu nýverið ráðist inn í Tékkóslóvakíu og verksmiðjan var látin framleiða flugvélamótora og ýmis farartæki fyrir þýska herinn. Nýjustu JAWA-frumgerðunum hafði verið komið undan rétt áður en nasistarnir komu og allt til ársins 1944 voru gerðar í skúmaskotum, (m.a. í hlöðum út til sveita), tilraunir með ný hjól og aðallega það hjól sem strax eftir stríðið varð einhver þekktasta framleiðsla verksmiðjunnar: JAWA Pérák, hjól með eins cylinders 250 cm³ tvígengismótor, stimpilþvermál 65 mm, slaglengd 75 mm. Mótorinn og gírkassinn, fjögurra gíra voru í einni blokk. Nýlunda þótti sjálfvirk kúpling. Handkúplingin var aðeins notuð þegar ekið var af stað; ekki þurfti að kúpla þegar skipt var milli gíra. Útbúnaður þessi hefur verið á JAWA-mótorhjólunum allt til þessa dags.

Árið 1948 hófst líka framleiðsla á hjólum sem voru með sömu grind og Pérák-hjólin, en með tveggja cylindra vél. Sá mótor hefur sífellt verið endurbættur og á undirritaður einmitt hjól með nýjustu gerð hans.

Nauðsynlegt var á þessum stríðstímum að geta prufukeyrt mótorana. Hjólin voru máluð í stríðslitum og límd á þau þýsk DKW- eða BMW-merki. Ótrúlegt var hvað Tékkunum tókst að halda þessum tilraunum leyndum. Þó náðu nasistarnir einum aðalmanni JAWA og skutu hann að loknum árangurslausum yfirheyrslum. Að stríðinu loknu var fátt um ný mótorhjól í Evrópu og strax árið 1946 komu fyrstu JAWA 250 Pérák-hjólin á markaðinn og urðu strax mjög vinsæl.

Um 1948 voru JAWA-verksmiðjurnar - eins og nærri má geta þjóðnýttar - og JAWA-mótorhjól urðu ein af mikilvægustu útflutningsvörum Tékkóslóvakíu. Þáverandi ráðamenn þjóðarinnar höfðu vit á að hrófla ekki við verksmiðjunum. Einnig voru gerðar tilraunir með fjórgengismótora og framleitt 500 cm³ hjól frá 1952 til 1958. Svo voru líka á markaðinum 125 og 175 cm³ hjól. Til að fara fljótt yfir sögu er rétt að benda á heimasíðuna www.jawamania.cz , en þar má sjá mjög gott yfirlit yfir framleiðslu JAWA mótorhjólanna allt til þessa dags. Árum saman framleiddu JAWA-verksmiðjurnar líka hjól með nafninu CZ. Á meðal þeirra voru víðfræg Enduro-hjól og krossarar og margir sigrar unnir á þeim tækjum.

Við þær breytingar sem urðu þegar austurblokkin hrundi skapaðist talsverð óvissa varðandi JAWA-verksmiðjurnar - JAWA Moto. Samkvæmt einum ágætum JAWA-manni breskum, var ekki vitað á tímabili, hver ætti verksmiðjurnar! Þær eru - eins og lengst af hefur verið - í borginni Tynec nad Sásavou, 35 km fyrir sunnan Prag. Verksmiðjan framleiðir í dag margar gerðir mótorhjóla, léttra hjóla og skellinaðra. Má þar nefna fimm gerðir af hjólum með 350 cm³ vél, tvær 50 cm³, önnur þeirra fjórgengis, eina 100 cm³ fjórgengis og tvær gerðir með 125 cm³ einnig fjórgengis. Nýjasta framleiðslan er hjól með 650 cm³ fjórgengis Rotax Bombardier-mótor. Verksmiðjan, JAWA Moto í Tynec nad Sásavou er um þessar mundir að fullkomna heimasíðu sína og bíður JAWA áhugafólk spennt eftir henni.

JAWA-umboð á Íslandi


Samkeppnin við japönsku hjólin hefur verið hörð, en forráðamenn JAWA Moto eru bjartsýnir og tékkneskur iðnaður var alla tíð víðfrægur - þegar hann fékk að blómsra í eðlilegu umhverfi. Má í því sambandi minna á uppgang Skoda-bílanna, sem ekki er síður að þakka tékkneskum tæknimönnum en Volkswagen. Sagt er að starfsmaður hjá Skoda hafi sagt, þegar Volkswagen tok við rekstrinum: "Loksins fengum við almennilegt efni til að vinna úr." Eru ekki einmitt tékkneskar Skoda-túrbínur í einhverjum raforkuverum hér á landi? Þess má geta að í Tékklandi er líka önnur JAWA verksmiðja - JAWA Divisov. Sú framleiðir eingöngu speed-hjól.


Í öllum Evrópulöndum, Bandaríkjunum og mörgum S-Ameríkulöndum (undirritaður fékk netpóst frá einum JAWA-manni í Brasilíu um daginn!) eru JAWA-klúbbar. Ef til vill er full ástæða til að stofna klúbb hér á landi. Fræðast má um allt þetta nánar með því einfaldlega að slá inn á leitarvef orðin JAWAmotorcycles. Síðast þegar ég prófaði þetta, komu upp 4.980 staðir til að skoða.


Nýlega varð til umboð fyrir JAWA á Íslandi. Umboðsmaður er Jens R Kane, Grenibyggð 23, 270 Mosfellsbæ. Þjónustuverkstæði er SPINDILL á Ártúnshöfða. 
Umboðsmaður fékk nýlega til landsins tvö kynningarhjól; Endurohjól 350 cm³ og skellinöðru 50 cm³. Glæsilegir gripir! Þau eru til sýnis hjá Bílamiðstöðinni á Ártúnshöfða. Ég undirritaður á tvö JAWA-hjól. Annars vegar er það JAWA 250 Pérák, 1948 módel, (JAWA-rautt !), og hins vegar JAWA 350 Chopper, 2001 módel. 
Tékkar framleiða víðfræga hliðarvagna fyrir mótorhjól; VELOREX. Freistandi er að fá sér einn slíkan við Chopperinn! Ég setti í gamla hjólið elektróníska kveikju, en hana fékk ég frá fyrirtæki í Berlín, MZ-BVertriebs GmbH - www.mz-b.de , en það sérhæfir sig í varahlutum í mótorhjól, sérstaklega í rafkerfið. Þar fást ótrúlegustu hlutir!


Undirritaður er félagi í JAWA & CZ Owners Club of Great Britain and Eire og hefur oft sótt þangað góð ráð. Klúbbur sá heldur í júní á næsta ári upp á 50 ára afmælið. Læt ég nú þessari lauslegu samantekt lokið að sinni, en þeim, sem áhuga hafa á að kynna sér málið betur, er velkomið að hafa samband við undirritaðan á netfangið
oligyda@simnet.is.

Morgunblaðið
10. september 2003 

1.9.03

Á íslenskri krá í Flórída

Björn Viggósson og Hallveig Björnsdóttir

 Harley Davidson

Það var nú hrein tilviljun að við fórum í þessa ferð,“ segir Björn Viggósson, framkvæmdastjóri Kerfisþróunar, þegar hann er spurður um mótorhjólaferð sem hann og eiginkona hans, Hallveig Björnsdóttir, fóru í fyrir skömmu. „Ég var í bílnum að hlusta á útvarpið þegar ég heyrði auglýstan kynningarfund í Harley Davidson búðinni varðandi Harley Davdison mótorhjólaferð til Bandaríkjanna. Ég fór á fundinn og skráði okkur í ferðina sem SBK í Keflavík skipulagði." Tilefni ferðarinnar var 100 ára afmæli Harley Davidson og áætluð heimsókn á Bikefest í Daytona Beach, en þar er tvisvar á ári haldin hátíð mótorhjólafólks. „Í þetta sinn voru þarna um 100.000 mótorhjól og 300.000 manns samankomin og allskonar hjól þó mest bæri á Harley Davidson,“ segir Björn. „Ég á sjálfur Hondu Shadow sem er álíka stórt og Harley Davidson hjólin en við leigðum okkur öll HD hjól þarna úti.“

Hópurinn tilbúinn til brottfarar.           /Myndir: Björn Viggósson

Furðuhjól


 Björn segir mörg furðuhjólin hafa verið á svæðinu og gaman að sjá þau. „Þarna var farið í eins konar skrúðgöngu eða hjólagöngu og haldin mikil hátið en Flórída er mjög sérstakt hvað það varðar að þar er mótorhjólamekka heimsins ef hægt er að orða það svo. Þarna gilda ákveðnar umgengnisreglur og til að mynda var yfirleitt alveg óhætt að skilja við dótið sitt hvar sem maður var í ferðinni, það var látið í friði. Hjólin og það sem að þeim sneri var umræðuefnið og greinilegt að þarna voru menn og konur í sérstökum heimi, hjólaheimi.“ Hópurinn íslenski skemmti sér hið besta og í hringferð sem farin var, urðu þau fyrir óvæntri upplifun þegar þau hittu fyrir íslenska krá. „Við fórum hringferð á hjólunum um Flórídaskagann og á leiðinni frá Daytona til Orlando stoppuðum við í litlu þorpi, einhvers staðar „in the middle of nowhere“ eins og kanarnir segja og þar sáum við skilti sem á stóð: „The Frosty Mug, Icelandic pub“ svona eins og maður sér oft skilti þar sem ferskar krár eru kynntar. Þetta reyndist vera krá rekin af tveim íslenskum systrum. Kráin hafði reyndar valdið svolitlu uppnámi þegar hún varstofnuð, enda hafði það ekki tíðkast þarna að vera með slíkt. Nú er hún aðal aðdráttaraflið í bænum og nágrenni. í þessari hringferð fórum við meðal annars yfir Everglades fenjasvæðin en það er gríðarlega sérstakt. Þarna er grunnt vatn yfir allan miðskagann og við fórum á svifnökkvum í skoðunarferðir og gátum klappað krókódílum - svona ef einhver hefði áhuga.“

Með sælubros á vör 


Björn segir ferðina hafa verið einstaklega vel heppnaða og telur víst að slikar ferðir verði farnar áfram, líkt og golfferðir og skíðaferðir. Fararstjórar voru þeir Hafsteinn Emilsson hjólaáhugamaður og hvatamaður að ferðinni og Einar Steinþórsson frá SBK ferðaskrifstofunni í Keflavík. „Það eru margir með þetta áhugamál og ekki vafamál að þeir munu grípa fegins hendi að fara í heimsókn til Mekka Harley Davidson,“ segir Björn að lokum.
Frjáls Verslun 

1.9.2003

23.8.03

Mótorhjólaæði hjá ‘68-kynslóðinni

Mótorhjólaeign landsmanna hefur aukist gífurlega á síðustu fjórum árum en slysatíðni minnkað um 30% á sama tíma,“ segir Ísleifur Þorbjörnsson hjá Yamaha á Íslandi og bætir við að helsta aukningin sé hjá körlum yfir 50 ára, sem er hin svokallaða ‘68-kynslóð, en þessir karlar hafa verið að rjúka til umboðanna og kaupa sér mótorhjól undanfarin ár. 


Í sama streng taka þau hjá Harley Davidson umboðinu á Íslandi þótt þau telji kúnnahóp sinn vera meira á milli fertugs og fimmtugs. Þau vilja samt ekki skrifa mótorhjólaáhuga karla á þessum aldri á gráa fiðringinn, enda viðkvæmt mál það, heldur benda þau á að margir þessara manna hafa látið sig dreyma um að eignast mótorhjól í áraraðir. Það sem kemur á óvart við þetta hér á landi er að séu tölurnar bornar saman við Bandaríkin kemur í ljós að mótorhjólaæði ‘68- kynslóðarinnar er síst minna en hér, en þar eykst slysatíðnin hjá körlum á þessum aldri. Talað er um að slys af völdum karla yfir 50 ára sem eru á mótorhjóli hafi aukist um 24% á tæpum 10 árum. Á Íslandi vonast fólk til þess að það gerist ekki á næstu árum og umboðin benda á að karlar á þessum aldri fari með hjólin sín eins og postulín. ■

23.8.2003

6.8.03

Hraðbrautarkeppni á Neistaflugi

NORÐFIRÐINGAR stóðu fyrir hátíðinni Neistaflugi um síðustu helgi. Líkt og í fyrra var hraðbrautarkeppni fyrir torfæruhjól meðal dagskrárliða og fór þar fram magnað mót. Hraðbrautarkeppni fyrir torfæruhjól, „Speedway“, fer þannig fram að ekið er í hringi eftir sléttri, hringlaga braut á malarvelli.

 Til þess að gera brautina meira krefjandi var einn stökkpallur settur á annan af beinum köflum brautarinnar. 

Keppt var í milliriðlum og úrslitariðlum, 4 hringir í hverri glímu. Á miklum hraða verða víðar beygjurnar flughálar og miklu máli skiptir að halda rásfestu í framdekkinu og ná góðu gripi í afturdekkið til að skjótast út úr beygjunum. 

Keppnin vakti verðskuldaða athygli bæjarbúa sem og gesta Neistaflugshátíðarinnar sem flykktust á malarvöll Norðfirðinga til að fylgjast með keppninni. 

Úrslit:
1. Bjarni Bærings.
2. Hjálmar Jónsson.
3. Tómas Kárason.

Morgunblaðið 6 ágúst 2003



26.7.03

Léttkeyrandi og liðugt keppnishjól


 Prófanir á mótorhjólum og skyldum tækjum eru orðnar fastur þáttur í umfjöllun DV-bíla og sífellt bætist í þá flóru hérlendis. 


Á dögunum var opnað nýtt umboð fyrir Ducati-mótorhjól og við gripum því tækifærið þegar okkur bauðst að prófa hjól sölustjórans, Ducati 749S sporthjól. Um léttkeyrandi og liðugt hjól er að ræða sem samt er vel búið af sporthjóli að vera enda Ducati þekkt fyrir það að spara ekki við smíði hjóla sinna.

Gasfyllt HID-ljós 

Þegar hjólið er skoðað kemur í ljós hversu vel búinn gripur er hér á ferðinni. Maður tekur fyrst eftir gasfylltum HID-ljósunum sem gefa 50% meiri lýsingu en áður. Þau eru líka ábyrg fyrir breyttu útliti nýju Ducati-hjólanna að framan. Hjólið er líka mikið breytt að öðru leyti. Meira er lagt upp úr loftflæði um hina ýmsu hluta hjólsins og framan á hjólinu eru tvær kæliraufar sem beina lofti að vatnskassanum. Púströrið er nú í kassalaga boxi í afturbretti og ekki eins sexí og áður, satt best að segja. Nokkur hiti er frá því þegar hjólið er farið að hitna en á mótorhjólum er það kostur frekar en hitt. Ekkert er til sparað í fjöðrun og bremsum enda frá merkjum eins og Showa og Brembo. Tilfinningin fyrir frambremsu er mikil en afturbremsa hefur mjög lítið átak enda meira notuð til að stilla hjólið af í beygjum og má þá ekki grípa of snöggt í.

Hreinræktaður veðhlaupahestur 

Þegar sest er á hjólið fær maður strax á tilfinninguna að hér sé hreinræktaður veðhlaupahestur á ferðinni. Bensíntankur er þannig formaður að lærin falla þétt upp að honum svo hægt er að klemma þau vel og örugglega utan um hann. Það er mikilvægt atriði við akstur sporthjóla svo að ökumaður renni síður til í sætinu þegar beygt er eða bremsað. Stýrið er með stýrisdempara og er mátulega breitt fyrirhjól af þessari gerð. Eini mælirinn í mælaborðinu sem ekki er stafrænn er stór snúningshraðamælirinn sem sýnir tölur upp í 13.000 snúninga. Sjálft stafræna mælaborðið er afar fullkomið og sýnir hraða, hita vélar, klukku, hleðslu, eyðslu og kílómetratölu. Einnig er hægt að stilla það til að sýna hluti eins og brautarhraða á hring, og taka þannig upp hámarkshraða og snúningshraða á hverjum hring sem hægt er síðan að keyra inn í fartölvu.

Hægt að breyta halla stýristúpu 


Hægt er að stilla bæði fram- og afturfjöðrun á margvíslega vegu og einnig halla stýristúpu til að gefa sneggri stýringu. Standari er formaður til að taka á sig minni vind og er nú ekki með sjálfvirkum gormi sem smellir honum upp að grindinni þegar hjólið er rétt við. Hjólið kemur svo á gripmiklum Pirelli Dragon dekkjum.
 Í akstri er það eins og hugur manns og fylgir hárnákvæmt öllum hreyfingum ökumanns. Aflkúrfan er mikil og góð fyrir tveggja strokka 750 hjól og það er ekki fyrr en það fer að nálgast hámarkshraða að því verður aðeins afls vant. Líkt og í öðrum hjólum frá Ducati er fyrsti gírinn frekar hár svo að oft þarf að gíra niður í hann í krappari beygjum. Það hefur þann kost við brautarakstur að hægt er að nota hann einnig þar, en þar sem engin keppnisbraut er til á Íslandi enn skiptir það okkur litlu máli. Setan er þægileg fyrir akstur á sporthjóli en til lengdar er þó hætt við aumum höndum og afturenda. Það eina sem undirrituðum fannst þó óþægilegt við aksturinn voru litlir speglar sem voru óþægilega nálægt ökumanni. Til að sjá aftur fyrir sig varð maður að lyfta olnboganum en þar af leiðandi var alltaf blint svæði fyrir aftan mann sem ekki er þægilegt að kíkja í á hjóli sem þessu. Einnig má gagnrýna aftursæti sem er meira til að geta boðið far en að bjóða farþega upp á lengri akstur.

Stendur sér á parti 

Um verðið, 1.690.000 kr., er það að segja að það er í hærri kantinum en þótt til séu svipuð hjól á betra verði eru þau flest ekki eins vel búin. Enginn framleiðandi er með beinan keppinaut með V2 vél í sama stærðarfiokki svo að 749S stendur dálítið sér á parti. Einn helsti keppinauturinn er þó líklega Aprilia með RSV Mille hjól sín.




DV Bílar 
 Njáll Gunnlaugsson
26.7.2003

3.7.03

Landsmót Snigla í Njálsbúð 2003

EPLIÐ OG EIKIN
Sniglarnir hugsa um ungviðið og kenna því á unga aldri
rétta  hegðun í umferðinni, og ást á vélhjólum, að sjálfsögðu.

Árlegt landsmót Sniglanna, bifhjólasamtaka lýðveldisins, verður haldið í Njálsbúð um helgina, það nítjánda í röðinni en Sniglarnir verða tvítugir á næsta ári.

 Á svæðinu verða hljómsveitir, leikir, matur og allt sem tilheyrir alísherjar útihátíð. 

Hljómsveitirnar Fjandakornið og Moonboots leika. Á laugardeginum er aðalleikjahátíðin en þá er meðal annars keppt í hinum fræga Snigli. Í Sniglinum reyna keppendur eðli málsins samkvæmt að keyra eins hægt og mögulegt er 16 metra án þess að drepa niður fæti til stuðnings. Þetta er sem sagt alvöru snigl og sá sem vinnur hlýtur nafnbótina Snigill ársins. Um kvöldið verða svo elduð læri ofan í landsmótsgesti, sem vænst er að verði um 350 talsins. Inn á mótið kostar 4500 fyrir félaga í Sniglunum en 6000 fyrir aðra. 

Lands-mót Sniglanna er lokað mót fyrir mótorhjólafólk og er skilyrði að hafa annaðhvort áhuga á mótorhjólum eða mótorhjólafólki, nema hvort tveggja sé. Þekkist gestír ekki í hliðinu verða þeir því að gera grein fyrir sér til að eiga möguleika á að komast inn á svæðið og sakar þá ekki að eiga tengsl inn á svæðið. 

Eða eins og Sniglarnir segja: Þetta er eins og ættarmót, þú kemur ekki úr einhverri allt annarri ætt í veisluna.