Prófanir á mótorhjólum og
skyldum tækjum eru orðnar fastur
þáttur í umfjöllun DV-bíla og sífellt bætist í þá flóru hérlendis.
Á
dögunum var opnað nýtt umboð
fyrir Ducati-mótorhjól og við gripum því tækifærið þegar okkur
bauðst að prófa hjól sölustjórans,
Ducati 749S sporthjól. Um léttkeyrandi og liðugt hjól er að ræða
sem samt er vel búið af sporthjóli
að vera enda Ducati þekkt fyrir
það að spara ekki við smíði hjóla
sinna.
Gasfyllt HID-ljós
Þegar hjólið er skoðað kemur í
ljós hversu vel búinn gripur er hér
á ferðinni. Maður tekur fyrst eftir
gasfylltum HID-ljósunum sem
gefa 50% meiri lýsingu en áður.
Þau eru líka ábyrg fyrir breyttu útliti nýju Ducati-hjólanna að framan. Hjólið er líka mikið breytt að
öðru leyti. Meira er lagt upp úr
loftflæði um hina ýmsu hluta
hjólsins og framan á hjólinu eru
tvær kæliraufar sem beina lofti að
vatnskassanum. Púströrið er nú í
kassalaga boxi í afturbretti og ekki
eins sexí og áður, satt best að
segja. Nokkur hiti er frá því þegar
hjólið er farið að hitna en á mótorhjólum er það kostur frekar en
hitt. Ekkert er til sparað í fjöðrun
og bremsum enda frá merkjum
eins og Showa og Brembo. Tilfinningin fyrir frambremsu er mikil en
afturbremsa hefur mjög lítið átak
enda meira notuð til að stilla hjólið af í beygjum og má þá ekki grípa
of snöggt í.
Hreinræktaður veðhlaupahestur
Þegar sest er á hjólið fær maður strax á tilfinninguna að hér sé
hreinræktaður veðhlaupahestur á
ferðinni. Bensíntankur er þannig
formaður að lærin falla þétt upp
að honum svo hægt er að klemma
þau vel og örugglega utan um
hann. Það er mikilvægt atriði við
akstur sporthjóla svo að ökumaður renni síður til í sætinu þegar beygt er eða bremsað. Stýrið er
með stýrisdempara og er mátulega
breitt fyrirhjól af þessari gerð. Eini
mælirinn í mælaborðinu sem ekki
er stafrænn er stór snúningshraðamælirinn sem sýnir tölur
upp í 13.000 snúninga. Sjálft stafræna mælaborðið er afar fullkomið og sýnir hraða, hita vélar,
klukku, hleðslu, eyðslu og kílómetratölu. Einnig er hægt að stilla
það til að sýna hluti eins og brautarhraða á hring, og taka þannig
upp hámarkshraða og snúningshraða á hverjum hring sem hægt
er síðan að keyra inn í fartölvu.
Hægt að breyta halla stýristúpu
Hægt er að stilla bæði fram- og
afturfjöðrun á margvíslega vegu og
einnig halla stýristúpu til að gefa
sneggri stýringu. Standari er formaður til að taka á sig minni vind
og er nú ekki með sjálfvirkum
gormi sem smellir honum upp að
grindinni þegar hjólið er rétt við.
Hjólið kemur svo á gripmiklum
Pirelli Dragon dekkjum.
Í akstri er
það eins og hugur manns og fylgir
hárnákvæmt öllum hreyfingum
ökumanns. Aflkúrfan er mikil og
góð fyrir tveggja strokka 750 hjól
og það er ekki fyrr en það fer að
nálgast hámarkshraða að því verður aðeins afls vant. Líkt og í öðrum
hjólum frá Ducati er fyrsti gírinn
frekar hár svo að oft þarf að gíra
niður í hann í krappari beygjum.
Það hefur þann kost við brautarakstur að hægt er að nota hann
einnig þar, en þar sem engin
keppnisbraut er til á Íslandi enn
skiptir það okkur litlu máli. Setan
er þægileg fyrir akstur á sporthjóli
en til lengdar er þó hætt við aumum höndum og afturenda. Það
eina sem undirrituðum fannst þó
óþægilegt við aksturinn voru litlir
speglar sem voru óþægilega nálægt ökumanni. Til að sjá aftur fyrir sig varð maður að lyfta olnboganum en þar af leiðandi var alltaf blint svæði fyrir aftan mann sem
ekki er þægilegt að kíkja í á hjóli
sem þessu. Einnig má gagnrýna
aftursæti sem er meira til að geta
boðið far en að bjóða farþega upp
á lengri akstur.
Stendur sér á parti
Um verðið, 1.690.000 kr., er það
að segja að það er í hærri kantinum en þótt til séu svipuð hjól á
betra verði eru þau flest ekki eins
vel búin. Enginn framleiðandi er
með beinan keppinaut með V2 vél
í sama stærðarfiokki svo að 749S
stendur dálítið sér á parti. Einn
helsti keppinauturinn er þó líklega
Aprilia með RSV Mille hjól sín.
DV Bílar
Njáll Gunnlaugsson
26.7.2003