Vespumar þeirra Helgu og Gunnars eru með gamla laginu en margar af nýjustu módelunum, og sérstaklegaþær japönsku, eru mjög nýstárlegar í útliti. |
29.6.00
Á vespu í vinnuna
20.6.00
Met á Akureyri
Götuspyrna
Hin árlega Olís-götuspyrna á Akureyri var haldin við Olís-bensinstöðina við Glerá á föstudagskvöldið. Keppnin var keyrð á nýju malbiki sem lagt hafði verið kvöldið áður og tókst mjög vel. Um 40 tæki voru skráð til leiks en 35 mættu á ráslínu. íslandsmet var sett í flokki hjóla yfir 750 cc og var methafinn Ingólfur Jónsson frá Akureyri. Tími hans var 6.498 sek. .sem jafnframt er besti tími er náðst hefur í keppni í götuspyrnu.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
Hjól 750 cc og undir:1. sæti Eiríkur Sveinþórsson, Suzuki 750 1996, í öðru sæti varð Ólafur Harðarson á Suzuki 750 1989 og í þriðja sæti Arnþór Henryson á Honda CBR 600 1999.
Á hjólum yfir 750
Sigraði
Ingólfur Jónsson á Suzuki 1300 1999,
í öðru sæti varð Guðmundur Guðlaugsson á Kawazaki ZX-9R 1998 og
í því þriðja Guðmundur Pálsson á
Honda RR 1999.
Bílar, 4 cyl.:
Fyrstur varð Bjarni
Knútsson á Subaru Impreza 2000, í
öðru sæti Hákon Orri Ásgeirsson á
MMC Eclipse 1995 og Ingibergur Þór
Jónasson varð í þriðja sæti á Honda
CRX Vitec 1991.
Bílar, 6 cyl.:
í 1. sæti varð Kristinn Guðmundsson á MMC 3000 GT
VR4.
Ásmundur Stefánsson á BMW
Z3 M Roadster varð í öðru sæti og
Brynjólfur Þorkelsson á Toyota
Supra 1996 varð í þriðja sæti.
Bílar, 8 cyl.,
MC: Siguvegari varð
Birgir Karl Birgisson á Chevrolet
Corvette 1976.
Baldur Lárusson varð
annar á AMC Javelin 1968 og þriðji
Sigurður Ágústsson á Dodge
Charger 1973.
Bílar, 8 cyl. Breyttir:
Sigurvegari
varð Einar Birgisson á Chevrolet
Nova 1971. Björgvin Ólafsson á
Chevrolet Camaro 1978 varð í öðru
sæti og Kristján Þ. Kristinsson á
Pontiac Firebird 1968 í þvi þriðja.
Í allt flokkur bíla varð Einar Birgisson, Chevrolet Nova 1971, sigurvegari.
16.6.00
Landsmót í Húnaveri
Sniglar heimsækja átthagana aftur
Landsmót Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla árið 2000, verður að þessu sinni haldið í Húnaveri en
þann stað má að vissu leyti kalla vöggu Snigla. Landsmót var haldið þar allt frá byrjun og til ársins 1990 en síðasta landsmót þarna var 1994 og aðsóknin sú mesta sem þar hefur nokkurn tímann sést eða um 500 manns. Landsmótið er alltaf haldið fyrstu helgina í júlí og er stærsti viðburðurinn í Sniglaárinu og þangað mætir áhugafólk um mótorhjól af öllum gerðum.
Í ár er búist við fjölda útlendinga á svæðið, en frægð landsmótsins hefur borist víða. Koma þeir helst frá Bretlandi, Þýskalandi, Noregi, Bandaríkjunum, Irlandi og Portúgal. Til gamans má geta gamans má geta að Leicester Motorcycle Act-ion Group í UK verða með hóp-ferð á landsmót Snigla.
Dagskráin er venjulega full af skemmtilegum viðburðum og mikið lagt upp úr því að þeir sem á það koma fái eitthvað fyrir peningana sína. Elduð er svokölluð landsmótssúpa á föstudagskvöldið og á eftir spilar hljómsveitin BP og Þegiðu Ingibjörg fyrir dansleik. Á laugardeginum er einna mest um að vera og fer mestallur dagurinn í skemmtilega leiki á mótorhjólum og án þeirra. Hápunkturinn er eflaust íslandsmótið í Snigli, en skapast hefur mikil hefð fyrir því á landsmóti. Þar keppa tveir og tveir í einu á brautum sem eru 16 metrar á lengd og einn á breidd um hver sé lengst að fara leiðina án þess að setja niður fætur. Íslandsmetið á Steini Tótu í Vélhjólum & Sleðum og er það 1,09 mín. og hefur það staðið síðan 1996. í mörg ár á undan átti Einar Hestur, hljómborðsleikari Sniglabandsins, þó metið. Fleiri skemmtilegir leikir eru, t.d. tunnuvelta þar sem menn keppast um að velta á undan sér tunnu með framdekkinu og einu sinni var keppt í Zippómundun.
Búist er við að fjöldi manns muni mæta í ár enda eru allir velkomnir, hvort sem þeir koma á tveimur hjólum eða fjórum.
31.5.00
Til allra hluta nytsamlegt
Fyrsta Honda Varadero hjólið frá Vatnagörðum
Í fyrra kom fyrst á markað frá Honda tilraun þeirra til að búa til hjól sem hentaði til hvaða ferðalaga sem er, jafnt á malbiki sem utan þess, og kallast græjan Varadero. Hjólið er nú komið inn í framleiðslulínu þessa árs og næsta og hefur fengið góðar viðtökur og fyrir tveimur vikun afhenti Honda/Peugeot-umboðið fyrsta eintakið hér heima. Þessi gerð mótorhjóla, sem ætluð eru til blandaðs aksturs, hefur reyndar ekki selst vel á íslandi hingað til. Erfitt er þó að ímynda sér hentugri hjól fyrir okkar aðstæður en einmitt þessi og það veit sá mikli fjöldi útlendinga sem heimsækir landið á mótorhjólum á hverju ári.
Vélin er óvenjustór og öflug í Varadero miðað við önnur alhliða torfæruhjól. Hún er vatnskæld, 1 lítra V2 með 8 ventlum og tveimur yfirliggjandi knastásum á hvorn strokk. Aflkúrfan er jöfn og breið og þegar best lætur 95 hestöfl Togið er lika öflugt eða 99 Nm. við 6000 sn. á mín. Að sjálfsögðu er það með rafstarti en ein af nýjungunum er tvívirkt bremsukerfi sem er arfur frá Goldwing-ferðahjólunum. Tvívirkt bremsukerfi virkar þannig að ef tekið er í frambremsuhandfang eða stigið á afturbremsu verða báðar bremsur virkar en ef tipplað er einu sinni snöggt á aðra hvora virkar bara hún. Kerfið kallast CBS og leitast við að fullnýta bremsukrafta á hvort hjól fyrir sig. Mikið var lagt upp úr þvi að gera hjólið þægilegt til langferða, meðal annars með góðu sæti, töskufestingum og stórum 25 lítra bensíntanki.
Dv 31.5.2000
28.5.00
Langhlauparinn frá KTM
Stórt og togmikið
Hjólið er stórt og mikið og svo að það virkar næstum fráhrindandi þegar fyrst er komið að því. Ásetaner fjallhá og sætið grjóthart en þegar maður fer að hugsa betur um það er góð ástæða fyrir því. í langri
keppni þreytist maður á að dúa mikið í hnakknum og því er hann stífur. Fyrir vikið finnur ökumaður
aðeins fyrir titringi hjólsins í staðinn og það veldur doða smástund sem líður síðan hjá. Það vekur strax athygli í akstri hversu gott tog er í hjólinu á bókstaflega öllu snúningssviðinu og það virðist alltaf eiga eitthvað eftir. Þannig er hægt að keyra það vel hratt án þess að vera á botnsnúning sem þreytir mann.
Pægilegt á langa-löngulangkeyrslunni
Þótt hjólið sé hátt og mikið er það stöðugt í akstri og slaglóng fjöðrunin bókstaflega étur upp allar ójöfnur. Stýrið er breitt og beint og ásetan virkar þægilega á mann og það er jafnþægilegt að standa á því í akstri enda er þess háttar aksturstækni mikið notuð í lengri keppnum. Það er eins og það standi skrifað utan á hjðlið að það sé langkeyrsluhjól og í raun og veru er ekkert því til fyrirstöðu að hoppa upp á það, keyra þvert yfir hálendið og stoppa næst á Akureyri. Það er með stórum bensíntank og þar að auki eru tveir aukatankar á því sem samtals taka 46 litra af bensini.Sérútbúið til rallíaksturs
Það sem er öðruvísi í þessu hjóli en 640 hjólinu er margt, og má þá fyrst telja að það er með aðeins stærri mótor. Vélin rúmar meiri olíu og er með auka olíukælum og undir henni er sérstyrkt hlíf til að vernda neðri hluta hennar. Ofan á því er ýmis sérbúnaður eins og upplýst leiðatafla með rafdrifmni rúllu fyrir pappírinn og er henni stjórnað með rofa undir vinstra handfangi.Fyrir ofan hana er stafrænn skjársem sýnir kilómetrafjölda og er honum stjórnað með rofum vinstra megin á stýri. Auk þess er festing og tengi fyrir GPS-tæki á hjólinu. Fyrir utan þennan búnað er 640 hjólið að mestu leyti eins, og þar af leiðandi talsvert léttara og þvi að öllum líkindum hið skemmtilegasta hjól. Vonandi fáum við tækifæri til að kynnast þvi þó síðar verði.
DV 29.5.2000
Í víking
- Tekið í nýja Husaberg 501 hjólið
Baldur var fegustur allra goða stendur einhvers staðar í Snorra Eddu, en þessi nýja lína Husaberghjóla kallast einmitt Baldur. Reyndar heitir öll frarnleiðslulínan þeirra eftir nöfnum úr goðafræðinni eins og hægt er að sjá á heimasíðu þeirra, www.husaberg.se. Slagorð þeirra er líka gamall vikingamálsháttur, „Maður velur sér vopn eftir getu" og þetta hjól er gott dæmi um það og hentar vel miðlungsfærum og upp úr.Frískt á snúningi
Vélin í FE 501 er ansi skemmtileg og hentar hjólinu við hvers konar aðstæður, hvort sem er í krossi,brölti eða hröðum slóðaakstri. Þjöppuhlutfallið er nokkuð hátt og þess vegna rís aflkúrfan hæst ofarlega í snúningssviðinu. Fyrir vikið virkar hjólið mjög frískt og freistandi að gefa því inn en ef menn eru ekki orðnir vanir hjólinu getur það komið þeim í koll. Maður fann það sjálfur hversu freistandi það var aðvera á botngjöf og hjólið er furðufljótt að venjast undir manni. Sætishæðin, 93 sentimetrar, virkar mikil þegar sest er upp á hjólið í fyrsta skipti en þegar komið er af stað finnur maður ekki svo mikið fyrir því. Reyndar var fjöðrunin stillt frekar mjúk þegar hjólið var prófað.
Eitt fannst mér líka alveg frábært, en það var hversu létt kúplingin er. Hún er vökvakúpling og það liggurvið að nóg sé að blása á hana til að hún geri það semhún á að gera.
Góð fjöðrun
Sveinn Markússon við hjólið sitt. |
13.5.00
Eignaðist fyrsta mótorhjólið 49 ára.
Veitingamaður sem lét drauminn rætast.
„Það má segja að þetta sé draumur sem er að rætast þótt hann sé ekki mjög gamall," sagði Árni Björnsson, veitingamaður í Kópavogi, í samtali við DV Umrœðuefnið var Harley Davidsson Heritage Softail Classic mótorhjól sem hann hefur nýlega eignast og þykir meðal þeirra flottustu í bænum. Í helgarblaði DV um síðustu helgi mátti lesa sérstaka grein um gripinn og úttekt á því.
Árni er 49 ára og er að eignast sitt fyrsta mótorhjól svo hann er ekki beinlínis dæmigerður mótorhjólatöffari, hvorki i aldri né útliti.„Ég átti aldrei skellinöðru þegar ég var unglingur og aldrei mótorhjól. Ég lét bílana duga en mér finnst mótorhjólið algjör draumur og það er yndislegt tilfmning að aka því og finna frelsið."
Árni verður ekki alltaf einn á ferð með vindinn hvínandi í fangið því eiginkona hans, Rósa Thorsteinsson, er í þann veginn að eignast mótorhjól til að geta fylgt bónda sínum eftir. „
Við fórum saman á námskeið og fengum réttindi til að aka svona tækjum. Hún ætlar að fá sér eitthvað
minna hjól frá Harley enda er mitt hjól 316 kíló að þyngd og erfitt fyrir hana að aka því."
Fyrrverandi sjóari
Árni var um árabil stýrimaður hjá Eimskip og byrjaði til sjós 14 ára gamall. Hann söðlaði um fyrir tólf árum þegar hann tók pokann sinn, fór í land og gerðist veitingamaður.Hann stofnaði Rauða ljónið á Seltjarnarnesi 1. mars árið 1989 þegar aftur var leyft að selja áfengan bjór á íslandi eftir mjög langt hlé. Árni og Rósa voru vakin og sofm í því að reka Rauða jónið þangað til þau seldu KR reksturinn 1. maí 1999.
„Við byrjuðum á því að fara í mjög langt frí í 4-5 mánuði og upphaflega hafði ég hugsað mér að hætta i veitingarekstri. En ég hef alltaf haft gaman af þvi að vinna og gat ekki setið auðum höndum til lengri tíma og við opnuðum fyrir þremur vikum nýjan veitingastað, Players, í Bæjarlind 4 í Kópavogi og viðtökurnar hafa verið skínandi góðar."
Árni lýsir nýja veitingastaðnum svo að hann sé best útbúni „sportpöbb" landsins og nefnir fjölda sýningartjalda, sjónvarpstækja og „pool"- borða máli sínu til stuðnings og segir að hann muni standa sjálfur innan við borðið á nýja staðnum eftir því sem hann lystir en ekki eins mikið og á Rauða Ijóninu. Hann segist ekki hafa haft áhuga á að opna nýjan stað í miðbænum.
„Þarna er góð aldursdreifing og mér finnst mjög gefandi í þessu starfi að kynnast viðskiptavinunum og það held ég að gerist miklu frekar á hverfiskrá en í miðbænum."
Nautn aö finna frelsið
En hvað segja jafnaldrar Árna og kunningjar um þetta nýja áhugamál hans. Öfunda þeir mótorhjólatöffarann?„Ég veit ekki hvort það er nokkur öfund en þeir eru jákvæðir. Ég er ekki orðinn Snigill enn þá en finnst það áhugaverður og jákvæður félagsskapur." Nýja mótorhjólið er ekki meðal þeirra ódýrustu heldur kostar um 2 milljónir. Þegar eiginkonan verður búin að kaupa sitt hjól og þau bæði alla fylgihluti, verður þetta ekki óskaplega dýrt sport?
„Þetta eru hlutir sem endast vel og við sjáum fram á að hafa af þessu
gleði og ánægju og það er óskaplega verðmæt tilfmning að fmna frelsið sem felst í þessum ferðamáta."
Dagblaðið 13.05.2000