13.4.99

Á mótorfáki fráum

Sif er glæsileg þegar hún er
kominn í leðurskrúðann

Siv Friðleifsdóttir alþingismaður: 

Þegar sólin hækkar á lofti dusta mótorhjólaáhugamenn rykið afmótorfákunum, sem legið hafa í hýði yfir vetrarmánuðina. Þetta sama fólk fer þá úr hefðhundnum vinnufötum en fer t staðinn t svarta leðurgalla og setur á sig hjálm. Þá þekkir enginn þingmanninn, kaupmanninn.


Það alltaf gott þegar vorið kemur og það styttist í að maður geti notað mótorhjólið. Ég fer af stað þegar það er orðið hlýtt í veðri. Mér finnst ekkert gaman í vondu veðri og það er kaldara en margur
heldur aö þeysa um á mótorhjóli," sagði þingmaðurinn Siv Friðleifsdóttir þegar Tilveran heimsótti hana á dögunum.
   Mótorhjólin eru eins konar fjölskyldusport hjá Siv, því systkinahópurinn, tveir bræður og tvær systur, eru öll með vélhjólapróf. „Þetta er sennilega dálítið sérstakt hjá okkur að vera fjögur systkini með mótorhjólapróf, en ég og Ingunn Mai systir min eigum hjólið saman," segir Siv. Mótorhjólið er fyrst og fremst frístundagaman hjá Siv, en hún viðurkennir að hún hafi nokkrum sinn veitir manni og krafturinn sem maður finnur í tækinu. Ég hef gaman af því að ferðast á þvi á góðviðrisdögum. Það er
allt önnur og skemmtilegri tilfinning að sitja á hjóli miðað við það að vera inni í bíl. Maður sér hlutina í annarri vídd."

Vlrtist ekki þekkja mig 

Siv er glæsileg þegar hún er komin í leðurskrúðann, en hún segir leðrið lífsnauðsynlegt þegar ekið er á mótorhjóli. „Leðrið bjargar miklu; bæði hvað varðar kulda og ekki síst slysahættu. í starfi mínu sem sjúkraþjálfari hef ég í gegnum tíðina meðhöndlað marga eftir vélhjólaslys. Fólk verður að vera þess meðvitað að það getur verið hættulegt að ferðast á vélhjóli og ég reyni alltaf að fara varlega," segir Siv.
   Þegar Siv er beðin að rifja upp skemmtilega sögu í  sambandi við mótorhjólið, segir hún fyrst koma upp í hugann atvik sem átti sér stað í fyrra. „Ögmundur Jónasson var að fagna fimmtugsafmælinu sínu og ég ákvað að fara á hjólinu í veisluna. Ég setti blómvönd frá þingflokki framsóknarmanna í bakpoka og lagði af stað. Það var svolítið fyndið að þegar ég tók af mér hjálminn og heilsaði afmælisbarninu, sem þekkti mig strax, tók ég eftir því að Ólafur G. Einarsson, forseti þingsins, sem stóð við hlið Ögmundar, horfði skringilega á mig. Hann virtist ekki þekkja mig í þessari múnderingu og það var ekki fyrr en ég sagði: Blessaður, þetta er Siv, að hann kveikti á perunni og fór að hlæja," segir Siv Friðleifsdóttir.
-aþ
DV
13.04.1999

Hendur píanókennarans dýrasti farmurinn

Guðni Guðmundsson, organisti í Bústaðakirkju:


Ég þarf ekki annað en að sjá mótorhjól á götu til þess að verða spenntur eins og lítið barn. Ætli ég teljist ekki forfallinn mótorhjólamaður," segir organistinn Guðni Guðmundsson, sem hefur  síðstliðin átta ár ekið um borgina á forláta afmælisútgáfu af Hondu Shadow. Vetrartímann segist Guðni nota til að dytta að hjólinu og láta betrumbæta það. Hann hefur meðal annars látið brenna myndir af músíkhörpu og friðardúfum á frambrettið. „Það er gríðarlega skemmtilegt að ferðast um á fallegu hjóli og núorðið nota ég hjólið meira og minna allt árið. Maður er stundum andlega lúinn eftir langan vinnudag og þá er fátt meira hressandi en fá sér góðan hjólatúr. Ég er lítið gefmn fyrir göngutúra og nota hjólið í staðinn," segir Guðni.

Frestaði hjólakaupum í mörg ár

   Áhugi Guðna á mótorhjólum er ekki nýr af nálinni og nær allt aftur til námsáranna í Kaupmannahöfn fyrir aldarfjórðungi. „Þá vorum við hjónin bæði á hjóli en hún hefur lagt þetta sport á hilluna. Þegar ég kom heim úr námi sögðu menn hér að það væri svo hættulegt að vera á mótorhjóli að ég frestaði því í mörg ár að fá mér hjól. Það var svo fyrir átta árum að ég ákvað að láta slag standa og festi kaup á Hondunni."
   Guðni segist ekki kunna margar vélhjólasögur en eitt atvik standi þó upp úr í þeim efnum. „Það var einhverju sinni þegar ég var ungur námsmaður i Kaupmannahöm, að ég hitti Rögnvald Sigurjónsson píanókennara á járnbrautarstöðinni. Hann var á leið út á flugvöll en hafði  misst af rútunni. Það var auðvitað ekkert annað að gera en að bjóða manninum far og hann settist aftan á hjólið með heljarstóra ferðatösku fyrir framan sig. Mér er enn fyrirmunað að skilja hvernig við komumst klakklaust út á völl, því Rögnvaldur hafði aldrei áður setið á mótorhjóli. Ég hugsaði bara um hversu dýrar hendurnar væru á Rögnvaldi og sennilega á ég aldrei fyrr eða síðar eftir að ferðast með jafn dýran farm og í þetta skipti," segir Guðni Guðmundsson organisti.

-aþ
DV
13.04.1999