27.9.91

Landmannalaugar 1991 Frá öðru sjónarhorni.

Fjallaferð

Landmannalaugaferð.  Jamm og jæja. Ég og Sigmund nr 178 ákváðum  að skella okkur með og hrella saklausa túrista. En vegna mikillar vöntunar á of miklu keppniskapi í mér og Sissi þurfti að skreppa bæjarleið og heilsa upp á sína tilvonandi, var öllu slegið á frest. Ekki meira um það en á laugardag var tætt af stað í rigningu og roki.

Skömmu fyrir ofan Landvegarmót rákumst við á yfirgefna farskjóta, höfðu þeir greinilega ákveðið að fara hvorki eitt né neitt, nema kannski farið útaf nokkrum sinnum viljandi og óviljandi.  Okkur til undrunar byrjaði gula fíflið að skína á leiðinni og var okkur orðið heitt í hamsi þegar við runnum inn í Landmannalaugar.
Það fyrsta sem við sáum var drukknuð flatgræja og yfir henni hópur manna sem lét ljós sitt skína óspart. Eftir ansi skrautlegar aðfarir komst snúningur á maskínuna þótt erfitt væri. Skoðunarrúntur var tekinn um næsta nágrenni og ljótipollur barinn augum. Að sjálfsögðu flaug einn á hausinn á leiðinni en hans vegna skal nafni hans haldið leyndu, nema hvað hann var á drullumallara og það var ekki ég og getið nú.
Við  Ljótapoll komumst við að því að annað hvort er Halli (son of Davidson) góður í torfærum eða Heiddi góður að keyra, enda gaf hann okkur drulluköppunum ekkert eftir í torfærum staðarins. Vídeo kamera var auðvitað á staðnum til að gera kúnstir okkar ódauðlegar og brostu menn blítt þegar þeir álpuðust fyrir linsuopið.
Einhver fann upp á því að hafa kappakstur til baka en svo sumir verði ekki sárir skal sagt ósagt hver vann hvern, en af því að sumir verða að monta sig aðeins skal sagt að sögumaður og Heiddi urðu ekkert sárir.
Ekki dvöldum við lengi í Laugunum því Sniglar voru farnir að draga fram áfengi og við saklausir sveitapiltarnir þoldum ekki svoleiðis ólifnað enda löngu hættir að drekka? á miðvikudögum? fyrir hádegi og ættu menn að fara að dæmi okkar.

Brunuðum við því á vit örlagana enda ákveðnir í að klára Fjallabaksleið.  Örlögin reyndust vera hlykkjóttir malarvegir með lækjarsprænum á 100 metra fresti. 
Ekkert meiriháttar SKEÐI (ég tala dönsku ef ég vil stjubid) á leiðinni fyrr en við komum að fljóti einu miklu og svo stóru að ekki komst yfir nema fuglinn fljúgandi og við reyndar líka , en með buslugangi miklum og blautum.  Eftir að hafa hellt úr stígvélunum var snúið upp á rörið enda tíminn farinn að keyra óþægilega hratt frá okkur.  
 En hvað myndir þú , lesandi góður, gera ef  þú værir að keyra í rólegheitunum (130 eða svo) eftir hlykkjóttum malarvegi þegar fyrir þig stekkur vinkilbeygja?
Hvað sem þið mynduð gera þá endaði ég lengst út í móa á bólakafi í blautri mýri. Sissi gerði það sama bara til að vera með en kendi um nálægum fjallgarði sem gripið hefði athygli hans.  NNNÚÚ, ekki var slegið af við þetta og vorum við farnir að nálgast mannabyggðir þegar ég,  með allt í borni, ákvð að glápa úti í loftið í smá tíma og á meðan stökk í veg fyrir mig grjót eitt mikið sem sendi hjól og ökumann hátt í loft upp. Á meðan ég bjó mig til lendingar á mínum eðal-Dakar vonaði ég að loftið í dekkinu elskaði mig meira en frelsið og myndi hanga á sínum stað.  En því miður fyrir mig uppgötvaði ég við lendingu  að það sem eitt sinn hafði verið fagur hjólbarði var nú ljót og beygluð gúmíklessa, þar að auki dekkið sína eigin hugmyndir um hvert förinni var heitið.  Meðan ég reyndi að koma úr mér einhverjum blótsyrðum hófs mikill slagur milli mín og dekksins, sem endaði með sigri dekksins.  Áður en ég gat klára fyrsta blótsyrðið var dekkið, með mig og hjólið í eftirdragi, komið út í móa.
Nú var ekki annað en að tvímenna á XR og leita uppi bóndabæ. Hann fannst nokkru síðar og fengum við þar hjálp í viðlögum.
Allt of löngu seinna héldum við áfram, slangan með tvær fagrar bætur en ég hinsvegar með aumann afturenda, XR setu að kenna.  Streymdum við nú yfir holt og hæðir , yfir Mýrdalssand, gegnum Vík og enduðum á mínu fjallaheimili þar sem áhyggufullir ættingjar vörpuðu öndinni léttar.
Var ákveðið að endurtaka þetta við fyrsta tækifæri...........  The End

Ýkt og samsett af Próndór no 447.

Ferðasaga snigla sömu helgi

Sniglafréttir 1991

19.9.91

10.000 snúninga sími (1991) Eyjafréttir.


MÓTORHJÓLAKAPPAR voru boðaðir til fundar í Félagsheimilinu í síðustu viku. Þar var umferðarmenning mótorhjólatöffara rædd af fulltrúum lögreglu og Sniglanna.
 Ýmsum gögnum var dreift á fundinum og meðal þess var greinarstúfur eftir Eyjamanninn Þorstein Júlíusson, Steina Tótu. Okkur þótti ritsmíð Þorsteins þess eðlis að hún ærti vel heima í Orðspori og birtum hana því hér. 

10.000 snúninga sími 

Mikið djöfull var ógeðslega gaman að sjá jafn marga, jafn ofboðslega kolruglaða rykheila samankomna á einum stað í Húnaveri á Landsmóti. 

Það er sko ekki á hverjum degi sem það sést jafn greinilega hvað þetta dásamlega einstaklingsfrelsissport er í raun mikil hópíþrótt. Málið er nefnilega það að þessi brjálaða tilfinning sem fæst eingöngu á mótorhjóli er til einskis nema maður hafi einhven til að deila henni með og Landsmót Snigla er náttúrulega toppurinn á því. Þarna hittist fólk sem þekkir hvort annað bara af afspurn og býttast á gömlum og nýjum lygasögum, áfengi & ælum og náttúrulega hjólum & konum með kuldahrolli og bros á vör við góðan varðeld.

 Landsmót gekk annars vel fyrir sig með fínu samstarfi flestra Snigla um eldamennsku, ruslahirðu og öðru sem stundum hefur lent á of fáum og kostað leiðindi og þras. Meira að segja Tugtinn var ánægður með aksturinn á okkur og er það alveg hreint helvíti gott mál fyrir okkur ef við getum sýnt smá lit á svona ferðahelgi Snigla því það eru 360 aðrir dagar á árinu sem koma Landsmóti Snigla hreint ekkert við. 

Eitt smá stórvandamál brennur á mér eins og öðrum Sniglum en það er vísitölukæran.

 Allir sem maður heyrir ( um málið eru sammála því að hún nær örugglega 10.000 snúninga símtölin sem spýtast úr skrifborði Tugtans á góðviðriskvöldum vítt og breitt um klakann.
 Manni dettur si svona í hug hvort þetta sé í raun nokkuð nauðsynlegt því það eru nokkuð mörg ár síðan ég uppgötvaði galdurinn við að keyra eins og vitleysingur en hann er sá að gera það hljóðlega og það er ekki af hreinni elli og heimsku sem flestir þeir sem keyrt hafa lengi hafa ekki hátt, þeir vilja bara eiga teininn áfram! Ef maður er með opið út og sándar eins og Lögreglukórinn á æfingu í risastórri rotþró og botnar eina meðalgötu þá er Tugtinn mættur á staðinn á undan manni með sviftingar og sektir flæðandi upp úr öllum vösum. Ef fimm eru að purra saman og einn með sánd þá eru fimm kærðir fyrir ofsaakstur þó enginn hefði tekið eftir hinum fjórum væri sá tónelski ekki með. Hávaðinn háir manni oft ef maður á ekki fyrir sektum því maður getur ekki gefið í hvar sem er, allir vita jú að við þurfum að gefa í annað slagið, trixið er bara að komast upp með það. 

Undirritaður er heiðvirður góðborgari sem slysast örsjaldan upp á vélhjól og ekur þá ævinlega varlega! (Sem er reyndar ekki það sama og hægt) 

Rokk og ról fifl og fól = bilað hjól. 
Steini Tótu# 161

31.8.91

Landmannalaugar 1991


Föstudaginn 30. ágúst var farið í hina árlegu striplingaferð í Landmannalaugar, þess má geta að þessi ferð er elsta árlega ferð Snigla.

Þeir sem fóru voru: Skúli no 6 Bjöggi Plóder no 23, Arnar standbæ no 26  , Líklegur no 56 , Hesturinn no 174, Pétur no 349 + hnakkskraut og Eyþór Österby no 434 + Eyþórína.
Á bílum , Benni no 242 og Dagga á sínum einbýlis húsbíl og Óli sveins no 40 Á japönskum jeppa, með honum var dýralæknir í för.  ( Óli vissi að Hesturinn væri með í þessari ferð og eftir að hafa heyrt margar sögur af honum frá Skógum fannst honum vissara að hafa dýralækni með til vonar og vara.

Frá Akureyri komu einnig 3 hjól og einn bíll, á Hjólunum voru Heiddi no 10, Stykkið no 361 og Páll St no 409 en stgebbi Þjöppumælir no 410 var á bíl þeim er norðan sniglar notuðu til að komast yfir vatnsmestu ánna.

Það átti að leggja af stað frá félagsheimilinu kl 18 en eins og vanalega var ekki farið á réttum tíma af stað. Þegar loks var farið að stað var klukkan farin að ganga 20.  Fyrst var stoppað hjá Arnari á Selfossi og purrað viðstöðulítið að rótum Heklu, Þarna var tekið bensín og þegar við vorum að leggja af stað, kom þarna , eins og kallaður , á sínu einbýlishúsi Benni 242. Tók Benni allan farangur af hjólunum og kom fyrir í svefnherbergi sínu.
   Þegar loks var lagt af stað tók gamli sorry Gráni upp á að bremsa í tíma og ótíma svo Eyþór skildi Grána eftir og fékk far fyrir sig og sína sem gestur Benna og Döggu.

Hestar virtust ætla að vera óheillahestar í þessari ferð því skömmu eftir að gamli sorrý Gráni hagaði sér svona ílla, bilaði hjólhestur Hestsins og neitaði að fara lengra. ( Bjöggi sagði að Einar hefði klippt á bensínbarkann vegna þess að hann hafi ekki þorað að fara Dómadalsleiðina og varð því að skilja hjólhest Hestsins eftir hjá gamla sorrý Grána og troða Hestinum inn í hús Benna  sem nú var einbýlishús, gestahús og hesthús og var Benna og Döggu ekkert farið að lítast á blikuna.

Þegar beygt var inn Dómadalsleið var greinilegt að Bjöggi og Skúli voru í 9 himni, því þeir stungu okkur hin af og við fundum þá ekki fyrr en eftir allnokkurn akstur og voru þeir þá að fá sér smók. Þegar lagt var aftur af stað mátti greinilega sjá að Bjöggi var í sæluvímu og þegar við nálguðumst sjálfan Dómadalinn varð Bjöggi að faðma hraunið að sér með rasskinnunum, en ég held að það hafi verið betra að vera stopp þegar svona faðmlög eiga sér stað en ekki á fullri ferð í beyju.

Þegar komið var inn í Dómadal virtist löngunin vera svo voðaleg hjá Bjögga í að komast í bað og til að sefa þá löngun reyndi hann að drekkja sér og hjólinu í drullupolli nokkrum og supu bæði hjól og maður á þessum ljúfenga drullupolli og var drykkur þessi svo eitraður að bæði Bjöggi og hjólið lögðust á hliðina í smá stund, eða allt þar til Bjöggi hóf lífgunartilraunir á Hondunni  (Bjöggi sagði að B.M.W. mótorhjól ættu að vera með bremsuljós eins og önnur hjól eftir byltu.  Ekkert markvert né frásagnarvert gerðist það sem eftir var leiðarinnar á áfangastað.

  Þegar við komum inn í Landmannalaugar vou þar nýkomnir Norðansniglar en þeir höfðu komið suður Sprengisand og hafði för þeirra gengið nokkuð áfallalaust utan hvað ferðin gekk hægt sökum holóttra vega og að rassæri hafi verið mikið, svo slæmt var þetta hjá Palla að hann lagðist á magann í einni beyjunni til að hvíla á sér óæðri endann og leyfa súkkunnni að hvíla sín hjól.
Eftir að Sniglar höfðu faðmast um hríð bar þar að Pétur no 349 með hnakkskraut sitt.

Þegar búið var að koma upp tjaldbúðum var að sjálfsögðu farið í laugarnar sem voru óvenju heitar í ár, enda voru ónefndir Norðansniglar ekki búnir að mykja á sér sitjandann fyrr en um kl. 11 á laugardagsmorgunn,

Á laugardag var purrað um nágrennið og notið náttúrunnar til his ítrasta þó var mest leikið sér í ánum á hjólunum. Arnar Standbæ gaf Kawanum og mikið vatna að drekka og stóðu lífgunartilraunir í a.m.k. klukkutíma og komst Kawinn ekki í gang fyrr en Heiddi beitti "Zippobensínbragðinu".  Öllu fljótari varð Hallinn hans Heidda í gang eftir sömu meðferð, aðeins 10 mín tók að vatnstæma vélina í Hallanum og fór hann í gang í fyrsta starti.

Á meðan að á þessu stóð komu tveir drullumallar í heimsókn sem stoppuðu stutt (Sjá þeirra Ferðasögu)   
Nokkru seinna fóru rúður að skjálfa í skálanum og þar sem Bjöggi er á því hjóli sem rúðuskelfir átti fór hann að kanna hverju þetta sætti.   Viti menn þá var þar kominn enginn annar en Rúðuskelfir ásamt frú sinni sem höfðu frétt af þessari ferð og ákváðu að líta við og stoppa stutt, en er þau sáu hve allir voru hressir og ekki síst að af vínföngum virtist vera nóg sem varð að klára áður en helgin yrði úti ákváðu þau að staldra við eina nótt og hjálpa við drykkjuna.

Nú var fremur hljótt í nokkurn tíma á svæðinu eða allt til að Steini Tótu mætti á svæðið með tilheyrandi hávaða er fylgir honum og á eftir honum kom Gústi skrækur og trukkurinn á hennar bíl.
Það var farið snemma að sofa á aðfaranótt sunnudags enda áttu sumir um eftir að purra um langan veg daginn eftir.

Sunnudaginn 1 sept var farið heim, þó fóru ekki allir strax heim því að Skúli og Steini Tótu voru degi lengur en aðrir við tónsmíðar (lygasagan segir að þeir hafi samið svo mikið að væntanleg sé ný plata með sniglabandinu.)
Ferðin heim var ekki umtalsverð en komust allir heim á teljandi áfalla þó sumir hafi þurft að purra lengur en aðrir.

Líklegur #56
Sniglafréttir 1991

17.8.91

DV Bílar með mótorhjólamönnum á kappakstri

Kevin Schwantz

Kolvitlausir ökumenn


Það var sunnudaginn 4.ágúst að undirritaður og sjö mótorhjólaáhugamenn voru saman komnir á lestarstöð í London á leið á mótorhjólakappakstur nálægt Derby í Englandi.
Keppni þessi var á Donington kappakstursbrautinni og var liður í heimskeppninni í akstri á mótorhjólum með 125cc, 250cc og 500cc rúmsentímetra vélar og hliðarvagnshjólum. Veðrið lék við okkur sem aðra, 25° hiti, logn og glaðasólskin.

Þegar við komum til Derby tókum við leigubíla af brautarstöðinni til kappakstursbrautarinnar. Á leið okkar þangað ókum við framhjá bíla og hjólastæðum brautarinnar, sem voru u.þ.b. 5 km á lengd og 1-2 km á breidd, og var þar allt fullt af bílum, mótorhjólum, hjólhýsum og tjöldum, enda var talið að um 80.000 manns væru á keppninni.
Þegar við loks komum á áfangastað var klukkan að verða 1:00 og menn á 125 rúmsentímetra hjólum höfðu lokið sinni keppni og sáum við aðeins sigurvegaranum ekið í opnum bíl sigurhringinn.
Hálftíma seinna byrjuðu 250 rúmsentímetra kapparnir sína keppni, en þeir voru í kringum 30 í byrjun og áttu að aka 26 hringi, er hver hringur 4023 metrar, eða alls 104,5 km.
í fyrsta hring rétt fyrir framan okkur rákust saman Þjóðverji og Ítali. Var að sjá að sökin væri Ítalans því að Þjóðverjinn ætlaði að tuska Ítalann eitthvað til en brautarverðir komu í veg fyrir að þeir rykju saman.  En í stað þess að sjá fulltrúa Ítalíu og Þýskalands slást fengum við að heyra öll þau ljótustu orð er til eru í þýskri tungu.
Þegar þrír hringir voru eftir börðust fjórir um forustuna. Þá flaug sá á höfuðið, er hafði haft forustuna lengst af í keppninni, þulur keppninnar sagði hann hafa verið á u.þ.b. 225 kílómetra hraða er hann datt, og slapp hann algjörlega óslasaður en hjólð var í klessu.

Eftir þetta var sigurinn nokkuð auðveldur fyrir Ítalann Luca Cadalora, sem ekur Hondu, og er hann nú efstur að stigum eftir 11 umferðir með 189 stig (16 stiga forskot á næsta mann).
Þá var komið að aðalkeppninni, 500 rúmsentímetra hjólunum, oftast kölluð stóru hjólin (þessi hjól eru með allt að 500 rúmsentímetra vélar, allt að 170-80 hestöfl og mega ekki vera léttari en 130 kíló, kosta allt að 50 milljónir stykkið og laun ökumannnanna eru verulega góð). 500 flokkurinn átti að fara 30 hringi sem er 120,7 km.
Þegar keppnin hófst varð Jonn Kocinski á Yamaha fyrstur af stað, annar varð Kevin Schwantz á Suzuki og þriðji Wayne Gardner á Hondu og Wayne Rainey, núverandi heimsmeistari, á Yamaha fjórði. Í 5. hring tók heimsmeistarinn, W. Rainey, forustuna en Kevin Schwantz var aldrei langt á eftir honum og þegar tveir hringir voru eftir tók Kevin Schwantz forustuna eftir mikla baráttu og hélt henni alla leið í mark.


Eitt fjórgengishjól og eina breska hjólið, sem var í keppninni, var Norton með vankel-vél. Hjóli þessu ók Breti að nafni Ron Haslam og í hvert skipti er hann ók framhjá okkur, stóðu Bretarnir upp og hvöttu sinn mann. Við gerðum hið sama enda var þetta flottasta hljóð í mótorhjóli sem undirritaður hefur heyrt. Hjól þetta náði 12. sæti í keppninni og er það besti árangur sem náðst hefur á bresku mótorhjóli í 20 ár.

Efstu þrír urðu sem hér segir:
1. Kevin Schwantz USA Suzuki        20 stig, 41,12,18, meðalhr. 152,5 km/klst.
2. Wayne Rainey TJSA Yamaha       17 stig +  0,78 sek 
3. Mick Doohan Ástral.Honda        15 stig +  19,18 sek

Þegar 11 keppnum af 15 er lokið er staða efstu manna sú að Wayne Rainey er efstur með 185 stig, annar er Mick Doohan með 175 stig og þriðji er Kevin Schwantz með 156 stig. Það sem kom okkur öllum mest á óvart var hve hávaðinn í hjólunum var rosalegur, einnig það að fólkið, sem kom til að horfa á keppnina, var á öllum aldri, allt frá fólki á níræðisaldri niður í kornabörn.
 Á keppnina komu u.þ.b. 80.000 manns og var heiðursgestur keppninnar 83 ára gömul kona sem varð fyrst kvenna til að taka þátt í kappakstri á mótorhjóh' í Englandi.

 Hjörtur Jónsson
DV 17.8.1991

P.S. Ef einhver hefur áhuga á að fara á svona keppni þá ráðlegg ég þeim sama að vera mættur á svæðið a.m.k. sólarhring áður en aðalkeppnin hefst. 

9.8.91

4000 hestöfl í 8 keppnistækjum


 Íslandsmót í kvartmílu:

ÖFLUGASTA mótorhjól landsins og átta sérútbúin kvartmílutæki með 400-850 hestafla vélar verða meðal ökutækja í tveimur kvartmílumótum um helgina, en á laugardaginn fer fram mótorhjólamíla Sniglanna og íslandsmótið í kvartmílu verður á sunnudaginn. Í báðum mótum verður keppt í nokkrum flokkum, en kvartmílan á laugardag er aðeins fyrir mótorhjól.

„Þetta verður líflegasta keppnin í mörg ár, aldrei hafa jafn mörg ökutæki verið í „competition" flokki," sagði Hálfdán Sigurjónsson hjá Kvartmíluklúbbnum um íslandsmótið, en í öflugasta flokknum verða saman komin fjögur þúsund hestöfl í átta keppnistækjum, þar á meðal verða tvær nýjar spyrnugrindur í höndum Páls Sigurjónssonar og Sverris Þórs. í sama flokki verður Ingólfur Arnarson á Camaro með milljón króna vélina, sem hann sló íslandsmet með í sandspyrnu á dögunum. Auk þessara kappa verða fimm ökumenn með 400-500 hestafla bíla í sama flokki, en í flokki götubíla mætir Hrafnkell Marinósson með eitt vandaðasta keppnistæki, sem smíðað hefur verið, 500 hestafla Chevrolet Chevelle. „Ég hef trú á að íslandsmet muni fjúka, ný tæki og aukin keppnisharka mun sjá fyrir því," sagði Hálfdán

Í mótorhjólamílunni verða einnig öflug tæki, mörg hjól með nitro-innspýtingu og það kraftmesta á landinu, 170 hestafla Suzuki Sigurðar Styff, sem tekið hefur verið rækilega í gegn og sérútbúið til kvartmílukeppni. Kraftmestu keppnistækin í kvartmílunni fara brautina á 9-10 sekúndum og ná 240 km hraða á endalínu.

Morgunblaðið 9.8.1991

31.7.91

HERT AÐ MÓTORHJÓLAMÖNNUM Vegakerftð og umferðarþunginn leyfa alls


Vegakerfið og umferðarþunginn leyfa alls ekki að þessir óþolinmóðu ungu menn séu að troða sér áfram meira afkappi enforsjá, segja tryggingamenn. 


Tryggingafélagið Trygging hefur á síðustu vikum gripið til aðgerða til að vekja athygli á tíðum og hörmulegum bifhjólaslysum. Í minnispunktum frá félaginu segir m.a. að ákveðið hafi verið að
hamla á móti töku trygginga á bifhjólum með öllum tiltækum ráðum. Jafnframt segir að það sé
þó alveg ljóst að samkvæmt lögum sé félaginu skylt að tryggja bifhjól, sé þess einarðlega krafist
Ágúst Ögmundsson, skrifstofustjórí hjá Tryggingu, segir að gripið hafí verið til þessara aðgerða til að vekja athygli á öllum þeim hörmulegu bifhjólaslysum sem orðið hafa síðustu vikurnar.
 Aðgerðirnar felast, að sögn Ágústs, m.a. í því að þeim sem vilja tryggja bifhjól er gert skylt að staðgreiða iðgjaldið auk þess sem enginn bónus eða afsláttur er veittur. Ágúst segir að mat þeirra hjá Tryggingu sé að miðað við þau stóru hjól sem nú eru í tísku sé aldur kumanna alltof lágur. „Flestir þessara kumanna hafa hvorki þroska, hæfni né reynslu til að beita þessum afkastamiklu og stórhættulegu tækjum í umferðinni."
Ágúst segir að viðbrögð bifhjólamanna og stríðsyfirlýsingar hafi ekki áhrif á ákvörðun þeirra og mestu varði að þessi aðgerð virðist strax hafa haft jákvæð áhrif.  Aðspurður um hvort ekki væri verið að mismuna fólki með því að setja sérákvæði um tiltekna gerð ökutækja sagði Ágúst að slíkt væri í raun alltaf að gerast varðandi t.d. bifreiðatryggingar. „Þessar aðgerðir eru allar innan ramma gildandi laga og mat okkar var að einskis mætti láta ófreistað til að vekja athygli á þessum tíðu bifhjólaslysum."
Alþýðublaðið 31.07.1991