Lesandi góður. Það er kunnara
en frá þurfi að segja að umferðin á
íslandi er sá þáttur þjóðlífsins sem
krefst árlega mestra mannfórna.
Umferðin tekur líka mikinn toll í
slysum, stórum og smáum, hjá
okkur íslendingum. Átakanlegt er
að horfa upp á það hversu stór hluti
af þessum alvarlegu umferðarslysum tengist notkun bifhjóla. Nú
nýverið gat að lesa í fjölmiðlum að
þýsk hjón hefðu misst stjórn á bifhjóli sínu og ekið út af, ekki urðu
alvarleg slys í það skipti. Nokkru
áður gat að lesa í fjölmiðlum að
ungur maður hefði slasast mikið á
bifhjóli við Kerlingarfjöll. Ekki er
langt um liðið síðan tveir ungir
menn létust í bifhjólaslysi í Ölfusi.
Einn lögreglumaður hefur látist á
íslandi við skyldustörf, það var fyrir mörgum árum, hann var á bifhjóli og lenti í umferðarslysi. Og
þannig má áfram telja.
Bifhjólaslysin
Saga bifhjólsins á íslandi er afskaplega ljót, vegna hinnar gríðarlegu slysatíðni á þeim. Þegar horft
er til þess hversu lítið bifhjól eru
notuð hér á landi og hinna mörgu
og alvarlegu slysa sem af þeim hafa
hlotist hlýtur að vakna sú spurning
hvernig við skuli bregðast. Verst
er þó að hugsa til þess að fórnarlömb bifhjólaslysanna eru langmest ungt fólk.
Flest bifhjólaslys eru hræðileg á
að horfa fyrir þá sem eru svo
óheppnir að þurfa að verða vitni
að slíku, miklu ljótari en bifreiðaslys. Ástæðan er sú að við bifhjólaslys kastast bifhjólamenn iðulega
af hjólunum sínum og fljúga langar
leiðir í loftinu áður en þeir koma
niður, ef þeir eru þá svo heppnir
að lenda ekki á einhverju í loftköstunum. Ökumenn bifhjóla og farþegar þeirra eru ekki bundnir við
hjólin og kastast af þeim, jafnvel
við smávægilega árekstra. Einu
öryggistækin, sem eitthvað kveður. að, og hægt er að nota á bifhjólum,
eru hjálmar. Það hefur sýnt sig að
það er bara ekki nóg. Að verða vitni
að ljótu bifhjólaslysi er lífsreynsla
fyrir hvern mann sem aldrei
gleymist.
Það er hálfhjákátlegt að skylda
notkun bílbelta í bifreiðum, en
leyfa notkun bifhjóla. Menn sem
lenda í slysi á bifhjólum eru alltaf
í verulega meiri slysahættu en
menn í bifreiðum, þó ekki séu notuð bílbelti.
Aðstæður til bifhjólaaksturs eru
sjálfsagt óvíða verri en hér á landi.
Veðrátta, myrkur, hálka á vetrum,
ástand vega, tillitsleysi bifreiðastjóra og glannaskapur margra bifhjólamanna eru sennilega helstu
ástæður hinna tíðu bifhjólaslysa.
Leiktæki fullorðinna
Bifhjólin eru í flestum tilfellum
aðeins leiktæki fyrir fullorðna,
leiktæki til að leika sér á í umferðinni. Bifhjól eru ákaflega
hættuleg leiktæki, sérstaklega
þeim sem ferðast á þeim. En í umferðinni á fullorðið fólk bara ekki
að leika sér, það er megurinn málsins. Vilji fullorðið fólk leika sér einhvers staðar á bifhjólum á það að
gerast á vernduðu æfingasvæði,
fjarri annarri umferð, líkt og gert
er með kvartmílubifreiðar og torfærubifreiðar.
Bifhjól í nútímaþjóðfélagi þjóna
engum nytsamlegum tilgangi.
Meira að segja lögreglan gæti vel
komist af án þeirra, og löggæslan
í landinu yrði ekkert lakari þótt
löreglan hætti að nota bifhjól.
Það hefur oft verið haft á orði að
saga þyrluflugs á íslandi sé með
endemum ljót, en þyrlur eru samt
sem áður bráðnaynleg björgunartæki sem hafa bjargað fjölda
manns, mun fleiri mannslífum en
notkun þeirra hefur kostað. Bifhjólin hafa kostað okkur ófá
mannslífin, að ógleymdum öllum
þeim sem hafa örkumlast meira
eða minna við notkun þeirra, og
af þeim er engin ávinningur,
hvorki fjárhagslegur né öðruvísi.
Hnefaleikar, byssur
og bifhjól
Við íslendingar sýndum þann
manndóm af okkur að banna
hnefaleika á íslandi. Það efast enginn um það í dag að slíkt bann hafi ekki verið af hinu góða. Við
íslendingar bönnuöum almenna
notkun og meðferð skotvopna fyrir
um þrjátiu árum. Það efast enginn
um það í dag að það bann sé af
hinu góða. Ef við íslendingar hefðum bannað notkun bifhjóla í umferðinni af svipuðum ástæðum og
við bönnuðum hnefaleika og almenna meðferð skotvopna á sínum
tima hefðu mun færri látist i umferðinni á síðastliðnum árum og
alvarleg umferðarslys hefðu orðið
verulega færri en raun bar vitni.
Lesandi góður. Einfaldasta, öruggasta og ódýrasta leiðin til að
fækka alvarlegum umferðarslysum er að banna notkun bifhjóla í
almennri umferð á íslandi. Það
ættum við að gera af þeirri einföldu
ástæðu að sagan hefur sýnt okkur
að þau henta ekki til notkunar hér
á landi.
Brynjólfur Jónsson
DV 20.08.1990
Tengd frétt Bifhjól á ekki að banna
Tengd frétt Mótorhjól hentug farartæki