Valgerður og Sigurborg |
1.7.81
Evrópa séð af mótorhjóli (1981)
16.6.81
Ökuleikni og listir á heimsmælikvarða
Hann munaði ekki um það að stökkva yyfir 6 bíla og lenti heilu og höldnu eftir heljarstökkið, Rétt eins og hann hefði ekkert annað gert yfir æfina. |
Ökuþórar í sýningarflokknum „Hell Drivers" léku listir sínar fyrir Reykvíkinga og nágranna þeirra á Melavellinum um helgina.
Meðal
þess sem ökukapparnir sýndu voru ýmsar góðaksturslistir, akstur á
tveimur hjólum, stökk á vélhjóli og bíl, árekstrar og akstur gegnum
eldsloga. Aðsókn að sýningunni var mjög góð og næst munu
ökuþórarnir sýna listir sínar á Akureyri.
Meðal atriða í sýningunni var heljamikill árekstur og í þessu tilfelli fór bifreiðin kollhnís og stöðvaðist á hjólunum aftur |
Trúðurinn ,,Booboo'' tók einnig þátt þátt í sýningunni og ók í gegnum eld og brennistein á vélhjóli sínu án þess að láta sér bregða. Mynd: Gunnlaugur Ragnarsson |
Það er líklega ekki á hvers manns færi að láta draga
sig á afturendanum í gegnum svona eldhaf, enda vöruðu forráðamenn sýningarinnar áhorfendur við því að reyna að leika þessar listir eftir. |
Morgunblaðið 16.6.1981
21.11.80
Sendiveinn í snjónum
Gústav Alfreðsson fimmtán ára gamall sendi- sveinn geysist um á mótorhjólinu í snjónum. |
,,Ég er bara í vinnu núna um mánaðartima, annars ætla ég lika að vinna i jólafriinu", sagði Gústav Alfreðsson sendisveinn sem við hittum á mótorhjóli á ferð í snjónum.
Hann er fimmtán ára gamall, er i níunda bekk grunnskóla. Við spurðum hann hvort að margir unglingar úr hans kunningjahópi stundi vinnu með skólanum? „Já, nokkrir strákar sem ég þekki í Þinghólsskóla vinna svolitið með skólanum, flestir bara stuttan tima i einu. Hjá mér kemur vinnan svolítið niður á náminu, þvi undanfarið hef ég unnið alla eftirmiðdaga, þegar ég hef átt frí og oft lika á kvöldin. Af hverju er ég að þessu? Nú auðvitað til aö fá peninga..." hann virtist hissa á siðustu spurningunni og líklega ekki nema von.
Sumarhýran og sjórinn
Gústav vann siðastliðið sumar i fiski en komst svo einn mánuð í vinnu við uppskipun hjá Togaraafgreiðslunni..." þar hafði ég gott kaup 1700 krónur á tímann" sagði hannhróðugur. En er þá ekki eitthvað eftir af sumarhýrunni? „Nei, ég keypti þetta mótorhjól fyrir ári siðan, fékk lánað fyrir þvi hjá mömmu og auðvitað borgaði ég það aftur með sumarpeningunum. Svo þurfti ég að kaupa varahluti i hjólið, þetta er gamalt hjól. Ég eyddi miklum tima i sumar i viðgerðir á þvi". Svo bætti hann við brosandi: „svo fór nú eitthvað af peningunum i föt og svoleiðis drasl".Flestar tómstundir Gústavs fara í að lagfæra mótorhjólið hans sem virðist eiga hug hans allan. Hugurinn leitar lengra og stefnir hann að þvi að kaupa nýtt hjól næsta sumar. En hvað tekur við eftir grunnskólapróf að vori? „Ég hef ekki hugmynd um það, ég valdi sjóvinnu sem valgrein i vetur i skólanum, kannski langar mig bara á sjóinn... Aðeins vikjum við að umferðinni og snjónum, og spurðum hvernig hinum unga ökumanni likaði ab komast leiðar sinnar á mótorhjóli i snjó? „...alveg ferlega leibinlegt maður — ja, nema þegar maður getur tekið svona smáspyrnu" svaraði sendisveinninn i snjónum.
—ÞG
Vísir
21. nóvember 1980
29.8.80
Kemst fyrir í lítilli tösku.
Hjólið samanbrotið í töskunni sinni. |
32 kílóa mótorhjól:
Kemst fyrir í lítilli tösku
Mótorhjól sem fella má saman og setja í tösku sem hægt er að bera með sér er til sýnis í deild Skeljungs á vörusýningunni í Laugardalshöll. Hjólið vegur aðeins 32 kiló og er einstrokka og sjálfskipt með tvígengisvél.Valdimar Valdimarsson situr þarna á hinu afar netta mótorhjóli. DB-myndir E.Ó. |
Hjólið eyðir 2 litrum af bensíni á 100 kílómetrum og kemst upp í u.þ.b. 45 kílómetra hraða.
Þetta hjól má eins og áður sagði fella saman og stinga í þar til gerða tösku.
Þá er stýrið lagt niður og út á hlið og hjólið sjálft gengur saman eins og harmóníka.
Samanbrotið kemst það fyrir í skotti á bíl eða flugvél og eins má halda á þvi með sér inn, til að því sé síður stolið til dæmis.
Hjólið kostar 870 þúsund krónur og tekur það 3 lítra af bensíni í einu. -DS
Dagblaðið
29.8.1980
10.7.80
Kawasaki á íslandi
Fyrir stuttu kom kippur í vélhjólamenninguna er birtust hér 15 stykki af Kawasaki götuhjólum á einu bretti.
Slíkt magn hefur ekki fyrr verið flutt inn í einu og þegar blaðamaður Mótorsports sá þau við Höfðatún 2. fór hann að grennslast nánar um þau. Kom í ljós að Sverrir Þóroddsson flutti þau inn, Bifhjólaþjónustan sér um samsetningu og 1000km skoðun en Karl H.Copper sér um varahlutaafgreiðslu. Ríkir þarna einstök samvinna þriggja fyrirtækja.
Hjá sölumanni Sverris Þóroddssonar fengum við þær upplýsingar að undanfarin ár hafa Kawasaki verksmiðjurnar ekki fylgt nógu vel eftir "Tromphjólinu " Z-1 sem sló í gegn fyrir nokkrum árum. Sama vél er nú enn , vel samkeppnisfær öðrum. Nú eru þeir aftur á móti að hanna nýtt hjól sem er algert leyndarmál því bæði verða breytingar á vél og grind. Umboðið ætlar einig að fylgja þessum eftir og mun senda þá kappa úr Bifhjólaþjónustunni þá Sigurð og Ara Vilhjálmsyni út á sérstakt námskeið fyrir Kawasaki "mekka".
Verðið á hjólunum væri einstaklega lágt og t.d. væri Z-1000 á aðeins á kr 2.650.000.- og Z-650 B á kr 1.945.000- .
Þeir Ari og Sigurður reka eitt glæsilegasta Vélhjólaverkstæði landsins og er þjónustan þar rómuð. Þeir eru vel inn í Vélhjólakeppnisgreinum og t.d. hafa öll kvartmíluhjól sem eitthvað hefur verið breytt verið græjuð upp þar. Og nýverið setti Ari nýtt íslandsmet í vélhjólaflokki á Kawasaki Z-1000Z1RII er hann fór míluna á 11.33sek.
Karl H Copper rekur vélhjólaverslun í sama húsi við Höfðatún 2 og hefur hann varhlutaþjónustu fyrir flestar gerðir vélhjóla. Það var mikil lyftistöng fyrir vélhjólakappa þegar hann fluttist úr Mosfellsveitinni og beint inn í hjarta höfuðborgarinnar.

Mótorsport
Júlí 1980
Júlí 1980
12.6.80
Lögreglan fær nýtt mótorhjól
Hér eru þeir Gunnar Jóhannsson og Guðmundur Svanlaugsson í fullum skrúða fyrir framan Lögreglustöðina. Gunnar (t.v.) er á nýja hjólinu. Mynd: Ó. Á. |
Vísir að umferðardeild á Akureyri
Lögreglan á Akureyri hefur fengið til umráða nýtt Harley Davidson mótorhjól. Í eigu lögreglunnar er fyrir ítalskt mótorhjól. Síðan munu tveir nýir lögreglubílar bætast í ökutækjaflota lögreglunnar. Ekki er vitað hvort lögreglan mun láta af hendi einn eða tvö af gömlu bílunum.
Gísli Ólafsson, yfirlögregluþjónn, sagði í samtali við blaðið að þeir Guðmundur Svanlaugsson og Gunnar Jóhannsson myndu aka mótorhjólunum, en Guðmundur er nýkominn frá Reykjavík þar sem hann fékk þjálfun í akstri mótorhjóla. „Það má segja að hér sé kominn vísir að umferðardeild, þar sem báðir þessir menn verða einvörðungu í umferðareftirliti," sagði Gísli. „Hér eftir munum við getað aukið verulega þjónustu lögreglunnar við bæjarbúa." Það er af lögreglubílunum tveimur að segja að annar þeirra verður sérstaklega útbúinn til aksturs í snjó og við erfiðar aðstæður, enda með fjórhjóladrifi. Báðir bílarnir eru frá Ford.
Dagur
12.6.1980
11.2.80
Lögguhjól Keflavík 1980
Lögreglan i Keflavik hefur tekið í notkun mótorhjól, sem notað mun verða af tveim lögregluþjónum, þeim Rúnari Lúðvíkssyni og Þorgrími Árnasyni, en áður sóttu þeir námskeið hjá umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík, bifhjóladeild. Störf þeirra verða þau sömu og hjá lögregluþjónum almennt, nema hvað þeir aka bifhjóli í stað bíls.
Að undanförnu hafa þeir sést við umferðarstjórn á fjölförnum gatnamótum á mesta annatíma, svo sem i hádeginu, og greitt þannig vel fyrir umferðinni. Vonandi fáum við að sjá þá sem oftast að stöfum og óskum þeim velfarnaðar í starfi.

Víkurfréttir 11.2.1980
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)