Kviknaði í mótorhjóli
og bíl við hörkuárekstur
á Skúlagötu
Mér varð litið út um gluggann frá fangageymslunum á
lögreglustöðinni, þegar ég sá
allt í stóran eldblossa úti á
Skúlagötu. Ég gerði strax
aðvart, og við fórum í skyndi á
staðinn á lögreglubilum."
Þetta sagði lögregluþjónn.
sem blaðamenn Vísis hittu á
Skúlagötu í gærdag, þegar lögreglan var að gera skýrslu
um óhugnanlegan árekstur, sem
varð á horni Vitastigs og Skúlagötu. Mótorhjól með ökumanni
og farþega hafði ekið inn i hlið
fólksbils, sem kom niður Vitastiginn og út á Skúlagötu.
Mennirnir á hjólinu köstuðust 15
til 20 metra fram fyrir bílinn við
áreksturinn, og slasaðist ökumaðurinn allmikið, en farþeginn eitthvað minna.
Við áreksturinn kviknaði í mótorhjólinu, og brann það algjörlega. Einnig kviknaði í bílnum, en slökkviliðinu tókst að
slökkva eldinn fljótlega eftir að
það kom á staðinn.
Eldblossinn, sem lögregluþjónninn sá, myndaðist þegar
mótorhjólið rann aftur með
fólksbílnum, eftir að hafa ekið í hlið hans framan til. Hjólið
festist við bílinn aftast, og
kviknaði um leið í því með
miklum blossa.
Eldurinn læsti sig einnig í bílinn, og unnu lögregluþjónar
að þvi að bjarga farangri úr
honum, sem var allmikill. Bíllinn er utan af landi. Hann brann
allmikið aftan til.
Billinn kom akandi niður
Vitastig og beygði til hægri út á
Skúlagötu. Mótorhjólið kom þá
aðvifandi og skall á bilnum.
Framgjörðin lagðist alveg
saman við áreksturinn, en djúp
dæld myndaðist í bilinn.
Við þennan árekstur hefur
fólksbíllinn farið yfir á vinstri
vegarhelming Skúlagötunnar,
því að hann rakst þar á bíl, sem
kom á móti. Litlar skemmdir
urðu hins vegar af þeim
árekstri.
Ökumaður fólksbilsins
slasaðist litillega, hlaut nokkra
skurði og skrámur.
Farþeginn á mótorhjólinu var
12 ára gamall drengur. Hann
slasaðist eitthvað minna en ökumaður hjólsins. Báðir voru
fluttir á slysadeild, þar sem gert
var að meiðslum þeirra.
Mótorhjólið brann gjörsamlega, og lágu plastbrettin á þeim í klessu utan á hjólinu, bráðin
vegna hitans.
Í viðtali við varðstjóra slysarannsóknadeildar lögreglunnar í gærdag, sagði hann, að slys af
þessu tagi virtust því miður
fullalgeng. Bílstjórar bera oft
fyrir sig, að þeir hafi ekki séð
vélhjól, þegar þeir aka í veg
fyrir þau.
Vélhjólamönnum hefur oft
verið bent á það að aka með
fullum ljósum, jafnt daga sem
nætur, til að tryggja, að betur sé
eftir þeim tekið í umferðinni.
-
Ó H
Vísir 10.8.1974