22.11.72
19.11.72
Málefnaleg kosningabarátta.
Kosningabaráttan í Vestur-Þýzkalandi stendur nú sem hæst, og gripa frambjóðendur til ýmissa ráða til að vekja athygli háttvirtra kjósenda á sér og flokki sinum.
Minni spámenn i stjórnmálabaráttunni kvarta mjög yfir því,að foringjar flokkanna einoki fjölmiðla,og að helzt liti svo út sem þeir séu einir í framboði. Á þetta jafnt við um frambjóðendur allra stjórnmálaflokkanna.Þessu svara tiltölulega óþekktir stjórnmálamenn og upprennandi með þvi að haga kosningabaráttunni þannig i sinum kjördæmum, að fólk komist ekki hjá þvi, að taka eftir uppátækjum þeirra.
Í nokkrar vikur hefur fegurðardís nokkur tröllriðið mótorhjóli í litlu kjördæmi i Suður-Þýzkalandi allsber, að öðru leyti en þvi, að á skrokk hennar eru máluð pólitisk slagorð: Sendum jafnaðarmanninn Klau Immer til Bonn. Í kjördæminu eru aðeins 20 þúsund kjósendur, og hafi þeir ekki vitað það áður, vita þeir nú hver sósialdemókratinn Klaus Immer er.
Frjálslyndi demókratinn Jurgen Möllemann kemur svifandi i fallhlif ofan úr skýjunum á kosningafundi i sinu kjördæmi, en kristilegi demókratinn Warendorf smýgur skolleitt vatnið i ánni Ems i froskmannsbúningi og tekur sýnishorn af mengun i ánni með sér á kosningafundina. Til að sýna i verki baráttu sina gegn menguninni ekur hann aldrei í bil um kjördæmið, heldur fer hann ýmist riðandi eða gangandi milli kosningafundanna.
2.11.72
Vélvœddur kúreki
Þegar Frank Dedman frá Lebanon, Tenn., USA, var orðinn 70 ára að aldri, sagði hann, að stússið við að leggja á hestinn sinn á hverjum morgni væri að verða of mikið fyrir hann.
Til að geta rekið hina 125 nautgripi sina á beit á morgnana og smalað þeim saman aftur á kvöldin, keypti hann þvi mótorhjól.Nú notar hann hjólið við kúareksturinn. ,,ég spara mikinn tíma siðan ég fékk mér hjólið", segir Frank.
13.8.72
Esja sigruð á mótorhjólum
Við sögðum fyrir skemmstu hér i þættinum, að hér á landi stunduðu menn ekki kappakstur sem íþróttagrein, eins og gert er i nágrannalöndum okkar i miklum mæli.
Þetta var raunar ekki allur sannleikurinn, þvi hér hefur verið keppt i torfæruakstri, bæði á jeppum og mótorhjólum. Mótorhjólakeppni var i fyrsta sinn haldin hér á landi sl.l vor Hún var haldin i Krýsuvik, og það var Mótorhjólaklúbbur Reykjavikur sem stóð fyrir henni. Klúbburinn var stofnaður fyrir um tveimur árum, og er bundinn við, að vélarstærð hjólanna sé yfir 50 cc, en hjól með minni vél teljast „skellinöðrur". Það var formaður klúbbsins, Jón Sigurðsson, sem sigraði i keppninni, en samt er varla hægt að kalla hann Íslandsmeistara i vélhjólaakstri, þvi keppnin var eingöngu á milli innanfélagsmanna, og þar að auki var hún ekki auglýst með löglegum fyrirvara.
Í klúbbnum eru 40 félagar, sem koma saman á fundi á vetrum til að ræða áhugamál sitt og skoða kvikmyndir um iþróttina. Þeir skipuleggja lika á þessum fundum sumarstarfið, sem var i sumar fyrrnefnd torfærukeppni, og mótorhjólaferðir um byggðir og óbyggðir.
Um verzlunarmannahelgina fóru nokkrir félagar m.a. i Landmannalaugar, og i þeirri ferð hikuðu þeir ekki við að sundriða fararskjótunum i ánum. Efri myndirnar hér á siðunni tók Þórður Valdimarsson, sem varð þriðji á torfærukeppninni, þegar hann sigraði ásamt félaga sinum Ólafi Stefánssyni sjálfa Esjuna.
Þeir réðust til uppgöngu á tveimur torfæruhjólum af gerðinni Honda 350 Trail, búnum gaddakeðjum. Neðri myndina tók Þórður af sigurvegaranum i torfærukeppninni. Hann er þarna að fljúga af stökkpalli, sem settur var upp i brautinni.
26.5.72
Lögreglan herðir vegaeftirlitið enn
Lögreglan á nú tiu vélhjól, en
fjögur eru á leið til landsins. Þau nýju eru eins og sum hin eldri af gerðinni Harley-Davidson, og kostar hvert þeirra fullbiiið. kringum 430.000 krónur. |
- fékk fjögur ný vélhjól til viðbótar til að fylgjast með Vesturlandsveginum
Lögreglan býr sig nú af kappi undir þjóðvegaakstur — jafnt almennings sem eigin manna. Í sumar mun lögreglan hafa sex bíla við eftirlitsstörf á þjóðvegum, en auk þeirra slangur af vél hjólum.
Dómsmálaráðherra beitti sér fyrir þvi nýlega, að lögreglan fékk fjögur ný vélhjól til sinna nota. Eru þau af gerðinni HarleyDavidson, eins og raunar flest vélhjól lögreglunnar. Hafa þessi hjól enda dugað vel, þau elztu sem nú eru i notkun hjá lögreglunni eru frá árinu 1958 og láta engan bilbug á sér finna.
„Þessi nýju vélhjól okkar verða i notkun mest á steypta vegarspottanum frá Elliðaám og upp að úlfarsá (Korpu)", sagði Óskar Ólason yfirlögregluþjónn i samtali við Vísi, „það er nefnilega hætt við að menn kunni sér ekki læti og spretti um of úr spori við að koma á svo góðan veg — sem ranglega hefur verið kallaður hraðbraut. Þetta hraðbrautarnafn er mjög villandi — menn halda að takmarkaður hraði sé þarna leyfilegur, en þvi fer fjarri, enda vegurinn mjór og umferð um hann þung."
Og væntanlega þora menn ekki að aka svo mjög hratt, vitandi af leðurbúnum lögreglukappa, þeysandi fram og aftur um veginn á nýju hjóli frá Ólafi Jóhannessyni.
5.8.71
Hinir 666 englar Bretlands
Í 40 brezkum borgum og bæjum,
er farið að bera verulega á fyrirbæri því, sem þekkt er í Bandaríkjunum undir nafninu „Englar
helvítis", (Hell's Angels). Helvítis
englarnir eru í Bretlandi 666 talsins. Og sú tala stendur í stað,
úr þvf henni er náð, en tölu þessa
hafa „englarnir" gert að helgri
tölu, helga hana jafn ágætum hugtökum og kynlífi, synd og villimennsku, (sex, sin and savagery).
Og á alla þessa þrjá hluti leggja
englarnir mikla áherzlu og rækt.
Áður lögregluþjónn
Pestina leggur langar leiðir.
„Gamlar frúr"
Hjónavígsla á vélhjóli
30.7.71
Við erum engir Vítisenglar
Segja félagar í Mótorhjólaklúbbnum í Reykjavík — „stuðlum frekar að gróðurvernd en eyðingu"
Ég held að fólk, sem telur mótorhjólamenn einhvers konar galgopa hafi séð einum of mikið af kvikmyndum um engla helvítis", sagði einn af fyrirliðum Mótorhjólaklúbbsins í Reykjavík, en það félag telur 30 unga menn, 17 ára og eldri, sem hafa yfir að ráða aflmiklum mótorhjólum.
Líklega hefur almenningur ekki veitt því athyglj að skelli nöðruöldin er liðin, og nú hafa þeir sem búnir eru að fá ökuskírteinið og halda enn tryggð við útiveruna í akstri, fengið sér aflmikil mótorhjól, 60 æpandi hestöfl, sem geta undir góðum skilyrðum fleytt hjólinu áfram á 200 kílómetra hraða.
„Við erum alls engir villimenn" sögðu fjórir forráðamenn klúbbsins í viðtali við Vísi, „en við finnum það greinilega að þannig er oft á okkur litið, því miður. Og þetta vildum við gjarnan að fólk hefði í huga.
Hjólin eru okkar sport alveg eins og knattspyrna eða lax hjá öðrum."
— Og hvers eiga reglugerðir um hámarkshraða að gjalda?
Auðvitað förum við eftir
þeim reglurm á sama hátt og
aðrir ökumenn, —
Við verðum
lika að gera það. Því við erum
tvímælalaust undir smásjánni hjá lögreglunni og reyndar fleiri.
Stóru mótorhjólin, sem kosta yfirleitt liðlega 100 þúsund kr.
og allt upp í 160 þúsund (dýrasta hjólið kostaði að vísu um
500 þúsund) eru yfirleitt japanskrar ættar Hondur eða
Kawasaki, en eitthvað mun vera
hér af BSA og Triumph frá
Bretlandi, — þau amerísku eru
yfirleiit of dýr aðeins einn maður á slíkt hjól hér.
Það var af sameiginlegum
áhuga og eins og fyrir tilviljun
að klúbburinn varð til, segja
piltarnir, menn hittust og báru
saman bækur sínar. Klúbburinn
var stofnaður, enda talin þörf
á því, þar sem svo mjög færist í vöxt að menn aki mótorhjóli.
„Það sem háir okkur óneitanlega er það að við höfum
ekki aðstöðu til að reyna hjólin. Vitanlega kaupir enginn sér
mótorhjól til þess eins að aka
um allar trissur á 45 km hraða.
Því þurfum við að fá að reyna
hjólin, — löglega á meiri hraða,
einnig torfæruakstur og annað slíkt. Við köllum það „sótbraut"
því þar ætti að gefast tækifæri
til að hreinsa sótið úr vélinni,"
sögðu félagarnir.
Aðstöðu til funda einu sinni
í viku hafa þeir þó i húsakynnum Æskulýðsráðs, á fimmtudags
kvöldum, og þar sýna þeir kvikmyndir á veturna og ræða sameiginleg hagsmuna, og áhugamál.
Ferðalög eru farin út úr
borginni og núna nýlega var
farið norður til Akureyrar, -
tíu' komust á leiðarenda, en ýmsar bilanir á leiðinni gerðu
öðrum félögum lífið leitt.
Áhorfendur og keppandi, sem er að glíma við skriðuna |
Nú hlýtur að vera talsverð slysahætta af akstri mótorhjóla, ekki sízt ef viðkomandi ökumaður hefur kannski hert takið á bensíngjöfinni um of?
„Já, og þarf ekki til. Ökumenn hér á landi hafa alls ekki vanizt því að vera H umferðinni með svo aflmiklum hjólum, virðast halda að þetta séu allt skelli nöðrur Þeir hafa því hvað eftir annað „svinað" í veg fyrir okkur." segir einn klúbbfélaganna. „Þessi er nýbúinn að - lenda í slysi" — „Og ég var ár frá vegna mjaðmagrindarbrots" segir annar, sem er ný lega farinn að sitja hjólið að nýju.
Nú voruð þið kærðir á dögunum fyrir að valda landsspjöllum við Kleifarvatn, — er slíkt ekki heldur ósportlegt athæfi?
„Jú. vitaskuld er það ósport legt, en málið er nú bara það að við ollum engum landsspjöllum þarrna síður en svo, Við vorum þarna á æfingu fyrir torfæruaksturskeppni og höfðum fullt leyfi frá lögreglunni fyrir þessu. Einhver virðist hafa kært þetta, en sú kæra er byggð á misskilningi. Við vorum einmitt að koma sunnan að eftir að gróðursetja eftir okkur. Þarna var alls enginn gróður fyrir, en það verður hann væntanlega eftir þessa æfingu okkar. Annars sáðum við mest í för eftir jeppa og aðra bíla, sem þarna hafa ekið." „Við teljum að jepparnir geti valdið hundraðföldum skaða í landslaginu miðað við hjólin okkar. Þá má líka benda á að í lögum okkar félagsskapar eru ströng ákvæði um landvernd, því hennar veg viljum við sem mestan og beztan.
Að lokum spurði blaðamaður
hvort þeir teldust ekki óæskilegir og nánast óvinsælir nágrannar í sínum hverfum.
„Jú, vitanlega erum við ekkert vel. séðir... Það lætuf hátt
í hjólunum okkar, og við því er ekkert í að gera. Þau eru framleidd svona frá verksmiðjunni. Það hafa margir kvartað,
við þekkjum það. En við teljum
að fólk geti varla sýnt slíka
þröngsýni í okkar garð. Við viljum fara að lögum, þurfum bara
að fá okkar aðstöðu eins og
ungir menn hafa erlendis. Við
förum að reglum eins og aðrir
ökumenn, við höfum þann öryggisútbúnað sem nauðsynlegur er, m. a. mun betri hjálma
en lögreglan hefur.
Við viljum því endilega að fólk leggi
ekki dóm á okkur eftir einhverjum „kollegum" okkar í Ameríku — sem við reyndar sækjum engar hugmyndir til."
JBP
Vísir 30.7.1971
https://timarit.is/files/9952011