Sýnir færslur með efnisorðinu Elding. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Elding. Sýna allar færslur

30.8.74

Vélhjólaklúbburinn Elding starfar á ný (1974)

Þarna hafa strákarnir fundið sér góðan
stað til bess að reyna sig í torfæruakstri. 
Við höfum satt að segja leitað með logandi Ijósum að æfingasvæði, þar sem strákarnir geta æft sig á vélhjólunum sínum, en ekki tekizt að fá neitt viðurkennt svæði," sagði Jón Pálsson tómstundaráðunautur hjá Æskulýðsráði er við ræddum við hann í gær.
   Nú stendur til að endurvekja vélhjólaklúbbinn „Eldingu" og var fyrsti fundurinn i nýinnréttuðum  kjallara í Tónabæ í gær.
   Jón sagði okkur, að margir strákar ættu orðið vélhjól en Æskulýðsráð hefur gengizt fyrir  námskeiðum i meðferð vélhjóla og fær enginn æfingaheimild á Stór- Reykjavfkursvæðinu án þess að hafa farið á námskeið fyrst.  Strákarnir verða að vera 15 ára, þegar þeir fá próf, og sagðist Jón hafa búið milli 3 og 4 þús. unglinga undir þau.
   Á Norðurlöndunum hafa vélhjólaklúbbarnir æfingasvæði, sem eru 16 m breið og 30 m löng og eru þá notaðir klossar o.fl. til þess að mynda torfærur. Keppt er til verðlauna, brons-, silfur- eða gullpenings. Jón sagði okkur, að vitanlega þyrfti þá einhvern stað til þess að geyma tækin á og vonandi væri hægt að fá svipaða  aðstöðu hér og tiðkast hjá þessum frændþjóðum okkar.
-EVI -
Vísir 30.8.1974

9.12.70

Elding 5 ára (1965)


Hér sýnir einn piltana listir sýnar

 Vélhjólaklúbburinn Elding 5 ára



Í GAMLA Golfskálanum á Öskjuhlíðinni er margskonar starfsemi til húsa. Þar hafa t.d. tveir klúbbar aðsetur sitt, Bílaklúbburinn og Vélhjólaklúbburinn Elding, sem um þessar mundir heldur hátíðlegt 5 ára starfsafmæli sitt. 

  Í Golfskálanum hafa piltarnir í Eldingunni ágæta aðstöðu og þar  halda þeir sína vikulegu klúbbfundi og hafa þar eigið verkstæði, sem opið er fjórum sinnum í viku fyrir klúbbmeðlimi.
   Fyrir réttri viku hélt klúbburinn hátíðlegt 5 ára afmæli sitt með fundi og veizluhaldi í gamla Golfskálanum. Þar rakti Jón Pálsson tildrögin að stofnun þessa klúbbar, og Sigurður E. Ágústsson varðstjóri rifjaði upp ýmis atriði í sögu klúbbsins. Síðan var sýnd kvikmynd um vélhjólaakstur á reynslubrautum. 55 unglingar mættu á þessum klúbbfundi og fór hann hið prýðilegasta fram.
Nokkrir piltar úr Eldingunni
  Tildrögin að stofnun klúbbsins voru þau, samkvæmt frásögun Jóns Pálssonar, að fyrir um það bil fimm árum varð unglingur hér í borg fyrir bifreið, en unglingur þessi var á vélhjóli. Í tilefni af því barst Jóni Pálssyni fyrirspurn í tómstundaþáttinn varðandi þetta slys. Urðu málalok þau að Vélhjólaklúbburinn Elding var stofnaður og hefur frá upphafi átt miklu fylgi að fagna meðal pilta á aldrinum 15—17 ára.
  Á þessum sama fundi færði framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs, Reynir Karlsson, klúbbnum peningagjöf, 3000 krónur og innflytjandi Hondu-vélhjólanna Gunnar Bernhard færði þeim verkfærasett, sem vafalaust hefur komið í góðar þarfir.
Fréttamaður blaðsins gerði sér ferð upp að Golfskálanum gamla fyrir nokkrum dögum og forvitnaðist um starfsemi klúbbsins. Þar voru staddir nokkrir vaskir drengir með hjálma og íklæddir leðurjökkum, en það mun vera einkennisbúningur þeirra. Þarna var einnig staddur formaður þessa klúbbs, Jón Snorrason, 16 ára gamall, og svarði hann nokkrum spurningum varðandi starfsemina.
Hjólin lagfærð og smurð

— Farið þið ekki oft í ferðalög út fyrir borgina? 
— Jú, við höfum farið út á Reykjanes nokkrum sinnum og eitt sinn brugðum við okkur til Hvitárvatns. Einnig förum við oft í Rauðhólana. Það er líklega vinsælasti staðurinn.
 — Hvaða vélhjólategund er vinsælust meðal piltanna hér? 
— Ætli það sé ekki Honda. Hún nær mestum hraða, þótt það sé enganveginn stærsti kosturinn, en þau hjól, sem nú eru flutt inn ná ekki miklum hraða og eru til tafar í umferðinni. Auk. þess hefur Honda þann stóra kost, að hún verður ekki hálfónýt á einu ári, eins og þau hjól, sem inn eru flutt, en ég vil gjarnan taka það fram, að allskonar höft eru á innflutningi vélhjóla. Við höfum gert okkar bezta með aðstoð ýmissa manna til að fá úr þessu bætt, en því er ekki sinnt. Það litla, sem inn er flutt af vélhjólum er yfirleitt mjög lélegt.

Morgunblaðið
 9.12.1965

5.10.70

VÉLHJOLAKLUBBURINN ELDING 7 ára (1967)

VÉHJÓLAKLÚBBURINN Elding, verður 7 ára í nóv. Nk. 

Á laugardaginn kemur kl, 2, efnir .klúubburinn í fyrsta sinn til góðaksturskeppni. Verður keppt um farandbilkar, sem Hagtrygging gaf klúbbnun og er öllum vélhjólaeigendum heimil þátttaka.
Á fundi Eldingar í kvöld verður kort af keppnissvæðinu og
veittar nánari upplýsingar. í fundarlok er fræðslukvikmynd um.
vélhjól og. fL
5. OKT. 1967 morgunblaðið

30.6.70

(Úrdráttur úr grein um m.a Bifhjólaklúbbinn Elding árið 1966

Vélhjólaklúbburinn Elding
í ferðalagi á Krísuvíkurbjargi
Við höfum líka til umráða Golfskálann á Öskjuhlíð, og þar hafa t.d. aðalbækistöð sína vélhjólaklúbburinn Elding og Bifreiðaklúbbur Reykjavíkur. Vélhjólaklúbbur inn Elding var stofnaður 1960 og hann kemur saman á miðvikudagskvöldum og heldur þá fræðslu- og skemmtifundi, en á verkstæði klúbbsins geta félagar unnið að viðgerðum hjóla sinna flest kvöld vikunnar. Það er rétt að geta þess, að nýlega hefur orðið að samkomulagi við lögreglustjórann í Reykjavík, að það verði skilyrði fyrir ökuprófi á vélhjóli, að hafa sótt námskeið í umferðarreglum og meðferð vélhjóla hjá vélhjólaklúbbnum Eldingu. Innritun á þau námskeið fer fram daglega kl. 2—8 síðdegis hér og á fundum klúbbsins. Áður var þetta mjög laust, strákar gátu farið niður eftir og fengið skírteini sem hjóleigendur og aikendur, en vitaskuld er þeim ekfci slður nauðsyn en bfls^örura aB kunna að aka eftir "dllum umferðarreglum.
Tíminn 
30.6.1966

7.5.70

Elding 1961


Á miðvikudagskvöldið fórum við að Lindargötu 50, þar sem Æskulýðsráð Reykjavíkurbæjar er til húsa, og sáum fljótlega, að við höfðum ekki farið húsavillt.  Fyrir utan var urmull af „skellinöðrum" og þegar inn var komið sáum við leðurjakka á fatasnögunum. 



Erindið var sem sé að mæta á fundi hjá Vélhjólaklúbbnum Elding, en hann hefur nýlega flutt bækistöðvar sínar frá Golfskálanum niður að Lindargötu og hefur nú fengið nýtt æfingasvæði í Rauðhólum.
Þessi vélhjólaklúbbur,sem er flestum kunnur síðan félagar úr honum sýndu listir sínar á sumardaginn fyrsta, er nýr af nálinni, stofnaður 17. nóvember í vetur og eru félagar hans nú um 50—60 talsins. Drengir eru á aldrinum 13—15 ára, en lögaldur til keyrslu vélhjóla er 14 ára. Er klúbburinn á vegum Æskulýðsráðs og Lögreglunnar og nýtur góðrar leiðsagnar Jóns Pálssonar, sem er löngu landsþekktur fyrir starf sitt í þágu tómstunda unglinga, og Sigurðar Ágústssonar, sern einna mest hefur beitt sér fyrir bættri umferðarmenningu, en annars stjórna drengirnir klúbbnum sjálfir, hafa, eígin stjórn og formann. Á miðvikudagskvöldum koma félagarnir saman og ræða ýmislegt í sambandi við starfsemina. Þegar við litum inn á fundinn sáum við að þeir undu sér vel við spil, bob, „darts" eða píluspil og auk þess glumdi músik í plötuspilara frá einu horninu. Þarna var líka mikið af ýmsum myndablöðum og bókum um vélhjól, og var mikið blaðað í þeim. Auðvitað var ekkert um annað talað en vélhjól og hávaði hæfilega mikill eins og við er að búast, þegar strákar á þessum aldri mæta saman í einum hóp og ræða áhugamál sín.


ÁHUGI Á HJÁLMUM.


Sigurður Ágústsson vár að segja strákunum frá slysi, sem varð nokkrum kvöldum áður, — og minnti þá á hvað hjálmar hefðu mikið að segja. — Hann sagði okkur, að það mál væri í miklum ólestri.
Aðeins tveir úr klúbbnum eiga hjálma, en þeir hjálmar, sem eru á boðstólum eru oft á tíðum svo litlir, að strákarnir gea ekki notað þá. Hefur klúbburinn mikinn áhuga á að fá eitthvert tryggingarfélagið í lið með sér og útvega því góðar tegundir af hjálmum á góðu verði. Tryggingarfélögin hafa líka sýnt starfsemi þessari mikinn áhuga og sjá hvers virði hún er, svo og umboðin Fálkinn og Vesturröst, sem veita fyrirtaks þjónustu, að því er Jón Pálsson tjáði okkur.  Hefur Ingi R. Þorsteinsson sýnt klúbbnum mikinn skilning, enda hefur hann flutt inn margvísleg efni í sambandi við tómstunda vinnu unglinga.
Við spurðum Jón Pálsson hvað væri mesta áhugarnál klúbbsins fyrir utan hjálmana.

LÆKKA ALDURSTAKMARIÐ.

— Við viljum lækka lög aldurinn úr 14 ár a niður í 13 ára sagði Jón. — Á þessum aldri hafa strákar
mestan áhuga á vélhiólum og þetta er geysimikið atvinnuspursmál, því að auðvelt er  fyrir þá að fá
sendisveinsstörf, ef þeir eiga eða kunna á vélhjól. Núverandi skilyrði fyrir að aka skellinöðrum eru
fyrir neðan allar hellur. Þeim er sagt að æfa sig í þrjár vikur, en ekki hver eigi að kenna þeim eða
hvar þeir eigi að fá leiðbeiningar. Úr þessu bætir klúbburinn mikið því að þar fá þeir ýmsar leiðbeiningar og fræðslu. — Svo er einnig unnið að því að þeir fái aðgang að vinnustofu, sagði Jón, þar sem þeir geta fengið gert við hjólin og leiðbeiningar um vélar undir hand leiðslu tæknilega sérfróðra manna. Að vísu fá þeir að kynnast þessu að nokkru, í kvikmyndum, sem sýndar eru í klúbbnum, en það er ekki nóg. — Hvað um sumarstarf semina?  Hún verður með svipuðu sniði og í vetur, en skipulagðar verða hópferðir, þótt það sé ekki ákveðið enn. Þetta verða sennilega stuttar ferðir, t.d. upp að Kolviðarhóli þar sem hægt er að nota vellina þar.
— Og ertu ekki ánægð ur með starfsemina?

BÆTIR UMFERÐA MENNINGU.

— Jú, það er enginn vafi á því að hún hefur rniklu hlutverki að gegna, ekki sízt í þá átt, að bæta
umferðamenninguna. Það er um að gera að fá þá nýja og kenna þeim frá byrjun. Þá eru þeir ekki
eins „villtir" og hafa ekki vanizt eigin akstursaðferðum. Við rákum okkur fljótlega á það í byrjun að
margir höfðu þeir ekki minnstu hugmynd um einföldustu hluti. Við leyfum þeim að „rasa" út á
æfingasvæðunurn, þá fá þeir nóg eftir nokkurn tíma. Það sjá allir að það er betra að láta þá ólmast um á þar meðan þeir eru að venjast, en að þeytast um göturnar. Svo venjast þeir á að taka tillit til annarra í umferðinni og hefur það sín áhrif þegar þeir læra á bíla. — Þeta stuðlar því áreiðanlega að bættri umferðarmenningu.

ÞUNG PRÓF.
Jón sýndi okkur svo próf, sem strákarnir taka í umferðarreglum. Þetta er mjög yfirgripsmikið próf og býsna þungt. Sagði Sigurður Agústsson líka að ýmsir mundu falla á því, sem væru að taka bílpróf, en  strákarnir gera prófinu góð skil og fá oftast yfir 9. Annars eru próf í klúbbnum í 3 stigum.
Það fyrsta er umferðarreglurnar og hafa um 20 —30 lokið því. Annað stigið er hæfnispróf og ýmsar
þrautir og það þriðja snýst um mótorfræði. Hafa engir tekið próf í 2. og 3. stigi enn sem komið er.
Formaður klúbbsins tilkynnti nú að fundurinn væri að hefjast og notuðum við tækifærið og röbb
uðum við hann. Hann heitir Símon Kjærnested, og er nemandi í 3. bekk Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Hann vildi helzt sem minnst segja um formennskuna, en sagði að strákarnir væru iðnir við kolann og að allt gengi vel. Hann fékk áhuga á „nöðrum" fyrir nokkrum árum og var ekki lengi að verða sér út um eina. Hann sagði okkur að strákunum þætti gaman að keyra niður í bæ á eftir fundum.

ÞROSKAZT.

— Og finnsit ykkur ekki gaman að framleiða hávaða? — Jú, en ekki eins mikið og þegar við  byrjuðum fyrst, enda höfum við þroskazt víst heilmikið. — Annars er ekki ljóst hvaða hávaði er löglegur og það þyrfti eiginlega að fá hávaðamæli. Þá væri gaman að sjá lögguna standa á götuhornum og mæla hávaðann. — Og brjótið þið nokkuð umferðareglur? — Nei, en ég man eftir
því, þegar við vorum einu sinni að keyra ofan frá Golfskála og niður brekkuna hjá Þóroddsstöðum.
Einn keyrði öfugu megin og var víst að flýta sér heim og vildi stytta sér leið. — Jón skaut því inn í
að strákarnir væru hættir öllu svona löguðu, enda hefðu þeir þroskazt heilmikið síðan klúbburinn
hóf starfsemina. Og þá var komið að fundinum. Jón sagði okkur að á þeim hefði orðið mikil breyting. Fyrst voru strákarnir algerlega agalausir og var hávaðinn á fundunum svo ógurlegur, að ekki heyrðist mannsins mál. Í fyrstu formannskosningunni voru 32 mættir, en þegar telja átti atkvæðin kom í ljós, að þau voru 40 ! Sagði Jón þeim þá, að nú væri sá vandi risinn, að 8 fleiri atkvæði hefðu verið greidd en fundarmenn voru margir og yrði því að kjósa aftur. Strákarnir skildu ekkert í þessu og ætluðu að mögla, en féllust þó á tillöguna að lokum. — Svona nokkuð hefur ekki endurtekið sig, sagði Jón og stuðlar klúbburinn auk annars án efa mikið að félagsþroska.

* PASS!

Þegar formaðurinn hafði sett fundinn, ritari lesið fundargerð síðasta fundar og nýr félagi verið
hylltur með lófataki hófust umræðurnar. Hjálmarnir voru mikið á dagskrá og hvatti Sigurður
Ágústsson þá, sem efni hefðu á, að kaupa sér þá, en samt skyldu þeir allt af gæta sín vel á hjólunum og treysta þeim ekki í hvað sem er. Komu ýmsar gamansamar athugasemdir í hjálmumræðunum
og sagði einn fundarmanna að hann mælti með hjálmunum, ef þeir kostuðu ekki neitt. Annar sagði að hausinn væri helmingur af öllu hinu og að það borgaði sig því að verja hann vel og aðspurður kvaðst ritarinn vera búinn að fá leið á hjálmunum og segði pass, enda hefði hann aldrei dottið af skellinöðru. Þá benti einn á, að hjálmarnir væru auk annars mjög skemmtilegir og þægilegir.
Ýmislegt annað bar á góma, eins og legghlífar, sem einn sagði, að góðar væru til varnar því að
brennast ekki á púströrinu. En áróðursmaður NSU vélhjólategundar sagði að slíkt kæmi aldrei fyrir
á þeim.

KLAPPA, EF MED ÞARF.

Þá var mikið rætt um hvort skildi heldur selja kók eða sinalco á fundunum. Varaði einn ræðumanna við því, því að svo gæti farið, að allir fengju ekki nægju sína af gosi, þar sem gjaldkerinn hefði upp
lýst, að sjóðurinn væri þurausinn! En allir voru þeir vissir um að þetta mundi blessast einhvernveginn og samþykktu einróma að kaupa tvo kókkassa fyrir næsta fund. — Skyldi ágóði renna í verkfærasjóð, þótt einn vildi að neningunum yrði varið í poll, sem hægt væri að ,,sulla" í á hjólunum. Þá benti einn ræðumaður á það þýðingarmikla atriði að ekkert vit væri í að klappa fyrir öllu, sem sagt væri á fundunum. — Það nær ekki nokkurri átt, sagði ræðumaður. þið megið klappa þegar ykkur finnst eitthvað afburðasnjallt, en annars skuluð þið láta það algerlega eiga sig.
Þetta hefur þeim þótt snjallt, sagði Jói okkur, því að þeir klöppuðu allir. Fundinum var nú slitið og bjó nú öll hersingin sig til brottferðar. Leiðin lá niður í bær og bað Jón þá að hafa ekki hátt, þar eð
það væri orðið framorðið.
Sáum við seinast á eftir þeim, þar sem þeir brunuðu niður lindargötu.

Alþýðublaðið
 7 mai  1961

31.3.70

„Mesta skömmin að þurfa að stíga með" (1965)


 Spjall við unga vélhjólaeigendur



Á góðviðrisdögum má oft líta fríða fylkingu ungra manna á vélhjólum taka stefnuna út fyrir borgarmörkin. Oft eru þeir um 40 saman, en í fararbroddi fer lögregluþjónn á bifhjóli. Þetta er skemmtileg sjón, og kannski ekki sízt fyrir þá sök, að allir eru piltarnir klæddir eins: Í svörtum leðurjökkum, leðurstígvélum og með hvíta, vígalega hjálma á höfði. Margur hefur staldrar við, horft á eftir piltunum og spurt sjálfan sig: Hvaða fuglar skyldu þetta nú vera?

Það eru félagar í vélhjólaklúbbnum Eldingu, sem hér um ræðir. Þegar við heimsóttum piltana á dögunum uppi í Golfskála, komumst við fljótt að raun um það, að starfsemi þeirra er hin merkilegasta. í Golfskálanum eiga þeir samastað — og þar hafa þeir búið sér myndarlegt verkstæði. Ráðunautar klúbbsins hafa verið frá upphafi Jón Pálsson og Sigurður Ágústsson og hefur klúbbnum vel farnazt undir þeirra foryztu.  Jón er fulltrúi Æskulýðsráðs o;g kemur málefnum piltanna á framfæri við það. Hann er alltaf nærstaddur þegar piltarnir koma saman og er boðinn og búinn til að veita þeim aðstoð sína. Sigurður hefur efnt til fræðslufunda fyrir piltana um umferðarmál og hann hefur farið með þá í ferðalög upp um sveitir.  Þegar okkur bar að garði eitt kvöld í vikunni, hittum við nokkra piltanna og Jón Pálsson. Jón segir okkur frá tildrögum að stofnun klúbbsins
Klúbburinn var stofnaður 19. nóvember 1960 og tildrög að stofnun hans voru í rauninni umferðaslys í Reykjavík, sem skapaðist vegna vankunnáttu unglinga, sem tvímenntu á kraftmiklu vélhjóli og óku af miklum glannaskap. Ég gerði þennan atburð að umtalsefni í Tómstundaþættinum, sem ég hafði þá með höndum í útvarpinu og fékk þrjá vélhjólaeigendur til að koma í þáttinn og ræða við mig. Ég spurði þá meðal annars, hvernig þeir fengju réttindi til að aka vélhjólum, oig þá kom margt undarlegt í ljós: Það var enga fræðslu um meðferð hjólanna hægt að fá, og ekkert æfingasvæði var fyrir hendi, þar sem þeir gátu æft sig að aka hjólunum. — Piltarnir urðu allir mjög hrifnir af þeirri hugmynd að setja á stofn klúbb vélhjólaeigenda og töldu, að slíkur klúbbur gæti gert mjöig mikið gagn, bæði fyrir umferðina og þá sjálfa, ef þeir gætu skapað sér aðstöðu til að gera við hjólin. Upp frá þessu fórum við Sigurður Ágústsson að, setja okkur í samband við vélhjólaeigend ur, sem við hittum á götu, og um síðir bauð Æskulýðsráð til stofnfundar vélhjólaklúbbs, sem hlaut nafnið Elding. Það var í nóvembermánuði 1960. Klúbburinn hefur starfað óslitið siðan, og er óhætt að sagja, að hann hafi komið mörgu góðu til leiðar. í þessu sambandi má geta þess, að milli umferðalögreglunnar og klúbbsins hefur alltaf verið mjög ánægjulegt samstarf. Piltarnir hafa oftsinnis lagt lögreglunni lið, til dæmis, þegar meiri háttar kappleikir hafa farið fram á Lauigardalsvellinum og þegar efnt hefur verið til keppni í góðakstri.
Í lögum Eldingar segir, að markmið klúbbsins sé sem hér segir:

  • Að koma á' föstum skemnili og fræðslukvöldum.
  • Efna til fræðslu um umferðarmál.
  • Gefa félögum kost á að vinna að viðgerð hjóla sinna.
  • Efna til hæfnisprófa. 
  • Efna til ferðalaga.
  • Fá hentugt æfingasvæði og koma á æfingum í akstri vélhjóla.

Hvað snertir fræðslukvöldin koma piltarnir saman hvert miðvikudagskvöld, og fer þá jafnan fram einhver fræðsla um umferð og umferðamál. Annað hvert miðvikudagskvöld eru sýndar kvikmyndir, og þá fyrst og fremst fræðslukvikmyndir um vélhjól og bíla. Yfirleitt er á fundunum rætt um það, sem efst er á baugi hverju sinni,  þannig er til dæmis á veturna rætt um það, hvað varast beri í hálkunni. Þá fá piltarnir oft heimsóknir sérfróðra manna, sem flytja erindi um umferðamál, og segir Jón okkur, að áhugi piltanna sé þá svo mikill, að heyra megi saumnál detta!
Piltarnir í Eldingu hafa komið sér upp myndarlegu verkstæði í Golfskálanum, þar sem þeir hafa góða aðstöðu til þess að gera við hjólin sín. Þannig geta þeir líka sparað drjúgan skilding. Verkstæðið er opið öll kvöld, en yfirumsjón með því hefur einn úr hópi piltanna, Egill Bjarnason. Hann er kallaður verkstæðisformaðurinn, og strákarnir seigja, að hann sé þúsundþjalasmiður og kunni ráð við öllu, sem lýtur að vélhjólum. Hæfnisæfingar hafa notið mikila vinsælda, en þær eru samkvæmt kerfi, sem sett hefur verið saman fyrir öll Norðurlönd. Einnig hafa piltarnir á takteinum sérstakt próf, þar sem eru um 30 spurningar, sem lúta að umferðinni, og er þannig tryggt, 'að engin meðlimur ryðgi í umferðareglunum. Jón bendir okkur réttilega á, að í vaxandi umferð sé mjög mikils um vert, að piltur, sem eignast vélhjól, fái góða fræðslu um umferðareglur og merki þar að lútandi. Hann segir okkur, að Æskulýðsráð hafi reynt að koma á samvinnu við Bifreiðaeftirlitið þess eðlis, að piltum, sem ætli að gangast undir próf á vélhjól, verði vísað á klúbb, sem geti látið þeim í té æfingasvæði til að æfa sig á akstri og allri meðferð hjólanna, og geti einnig séð fyrir fræðslu í sambandi við umferðina. Og hvað þetta atriði snertir, er að sjálfsögðu aðeins um Eldimgu að ræða.

Ekki alls fyrir löngu kom mikið vandamál til sögunnar hjá vélhjólaeigendum, og það hefur verið mikið áhyggjuefni piltanna í Eldingu. Skráning vélhjóla hefur verið stöðvuð. Þetta kom í ljós, er við spjölluðum við fjóra pilta, sem skipa stjórn Eldingar. Við höfðum spurt, hvort nýir félagar væru ekki sífellt að bætast í hópinn, þegar formaðurinn, Jón Snorrason saigði, að við því væri ekki að búast. þar sem nýtt hjól kæmi ekki inn í landið lengur.
Já, þeir gerðu okkur ililegan grikk i fyrra, með því að stöðva alla skráningn á vélhjólum, hélt Jón áfram. Þess i vegna hefur meðlimatalan s haldist óbreytt um langan tima, en virkir meðlimir eru um 40 talsins. 
Kristján Magússon, ritari, segir: Þeir sögðu, að hjólin vera orðin sterkari og kraftmeiri en gömlu skellinöðrurnar, sem fyrst voru fluttar inn til landsins — Og það er svo sem alveg rétt hjá þeim, bætir Helgi 1 Kveinbjörnsson, gjaldkeri við, en þess ber að gæta, að gömlu skellinöðrumar hrundu niður og fóru í rusl á skömmum tíma. Þær sjást líka tæpast lengur. Egill Bjarnason, verkstæðisformaðurinn, segir: — Það var gert að skiryrði, að sprengirúmið í mótornum yrði ekki meira en 50 kúbikmetrar, krafturinn ekki mejri en 1 hestafl og þyngd ekki yfir 50 kíló. ÖIl hjól, sem ekki fullnægja þessum skilyrðum, eru nú skráð sem mótorhjól. 
Og þarf þá bílpróf spyrjum við. Kristján:  Nei, sérstakt mótorhjólapróf.   Egill: En við þetta hækka hjólin í verði, — þau færast yfir á svart númer úr rauðu. Helgi: Þegar umboðin fá ekki lengur að flytja inn hjólínn, missa þau áhugann á að flytja inn varahluti. Egill: Þessi takmörkun á innflutning vélhjóla kemur okkur mjög spánskt fyrir sjónir, þar sem þannig háttar til hér á landi, að vélhjól verða að vera kraftmikil, ef þau eiga að koma að einhverju gagni. Það kom ósjaldan fyrir hér áður fyrr, þegar skellinöðrux fóru að sjást á götunum, að menn þurftu að hjóla með upp brekkurnar, — krafturinn var ekki meiri'... . Helgi: en það er mesta skömm, sem komið getur fyrir skellinöðruknapa að þurfa að stíga með! Jón: Ekki getuna við skilið, hvað veldur þessari stöðvun á innflutningi vélhjóla. Ekki hefur slysunum fjölgað þótt við séum á þessum stærri hjólum i umferðinni, svo að tæpast getur ástæðan verið sú, að hjólin séu okkur ofviða! Kristján: Þeir segja, að petta verði rætt á naesta fundi Norðurlandaráðs, en það er bálft ár, þangað til það kemur saman, Þá verður rætt um að samræma lög um skellinöðrur og bifhjól fyrir öll Norðurlönd. Við biðjum þá félaga að segja okkur hvernig þessum málum sé háttað á hinum Norðurlöndunum. Helgi: í Danmörku geta unglingar keypt skellinöðrur 16 ára að aldri. Þær eru innsiglaðar fyrir 30 km. hraða. Kristján: ... . og eru númerslausar, og liggur við stórsekt að taka innsiglið af. Helgi: Í Noregi mega 15 ára unglingar aka skellinöðrum, og 16 ára unglingar mega aka hjólum, sem eru 50 kúbik og upp í 125 kúbik. Fyrir kraftmeiri hjól þarf bílpróf. Jón: Eins ber að gæta. — Þegar talað er um 5 hestafla hjól, þá er ekki tekið fram, hvort um sé að ræða skatthestafl eða bremsuhestafl, en þarna er mikill munur á milli. í bremsuhestaflinu liggur niklu hærri tala. Allar þessar umræður fara fram á verkstæði piltanna. Við tökum nú upp léttara hjal og segjum: — Ja, þið eigið aldeilis myndarlegt verkstæði! Kristján: Já, það er mjkið af góðum verkfærum hérna Jón fyrir allar tegundir hjóla. Egill: Æskulýðsráð stóð að því að innrétta það fyrir okkur, en við höfum stækkað það og endurbætt, haldið því við og keypt verkfæri fyrir peningana, sem koma inn. Þegar við spyrjum, hvernig þeir afli fjár, segir Helgi: — Gjald fyrir afnot af verkstæðinu er 10 krónur. Svo seljum við merki og fána með merki félagsins, nú, og svo er ársgjaldið Jón: — sem er 30 krónur. Helgi: og þykir öllum lítið! — Þið ferðist mikið saman, segjum við. Verkstæðisformaðurinn svarar: — Já, við höfum ferðast mikið allt frá því klúbburinn var stofnaður. Á fyrstu árunum reyndar aðeins á sumrin, en nú má segja, að við séum á ferðinni saman allar helgar nema þegar veður er óhagstætt. Þá fórum við upp um sveitir með Sigurð Ágústsson oft í broddi fylkingar — oft um 40 strákar saman. Kristján: Og svo förum við stundum í smáferðir á kvöldin. Þegar við spyrjum, hvort klúbburinn standi öllum vélhjólaeigendum opinn, svara þeir einum rómi, að svo sé. — Bæði piltum og stúlkum, segir Egill.  — Eru þá stúlkur i klúbbnum um líka, spyrjum við. — Það voru fjórar stelpur fyrir ekki svo löngu, segir Kristján, og bætir við: — Ætli þær þykist ekki upp úr því vaxnar núna að vera á vélhjólum. Nú eru bílarnir komnir til sögunnar hjá þeim! Hvort þeir eigi æfingasvæði? — Ekki sem stendur, því miður, segir Jón. Við fengum að æfa okkur áður fyrr á gamalli braut á Reykjavíkurflugvelli, en það reyndist ekki beint heppilegur staður. Helgi: Við höfum augastað á tveimur stöðum sem æfingasvæði. Annar er við Lyklafell á Sandskeiði, en hinn við Selfjall fyrir ofan Lækjarbotna. Jón: Við vildum gjarna vera þar sem við ónáðum engan. Og þar vildum við líka koma upp skála. Kristján: Það er eitt af hagsmunamálunurn. Helgi: Þá mundum við æfa okkur í að keyra í kringum tunnur, keyra upp á „vegasalt" og halda jafnvægi, keyra eftir gömlum ljósastaurum Egill: ... . og keyra á afturhjólunum ... . Jón: ... . nei. nei, það fer svo ílla með hjólin!

Það var tekið að kvölda. Jón Pálsson var að leika borðtennis við strákana inn í Golfskála. Við og við komu skellinöðruknapar með hvíta hjálma inn á verkstæðið. Og hér er opið á hverju kvöldi? segjum við. — Já, segir Egill og bætir við: Fyrir þá, sem eru með lausa skrúfu!







Morgunblaðið 
31.3.1965

15.2.70

Megum ekki keyra í hóp á rúntinum(1961)

Það er Magnús Gíslason, sem er í öllum herklæðum á
skellinöðrunni.  Hann er einn af mörgum félögum í
Vélhjólaklúbbnum Elding

Sagt frá heimsókn í vélhjólaklubbinn ELDINGU sem heldur fundi vikulega
í Golfskálanum í Rvík

ÆSKUFÓLK! Tómstundaiðjan er hafin að nýju. Þannig var byrjun á auglýsingu, sem birtist fyrir skömmu í dagblöðunum.
Og við lásum áfram og rákumst á eftirfarandi:
Golfskálinn Vélhjólaklúbburinn Elding, miðvikudag.
Og næsta miðvikudag mætti fréttamaður Fálkans í Golfskálanum. Er komið var að húsinu gaf fyrst að líta rennilegan lögreglubíl og þegar komið var fyrir hornið sást hópur af skellinöðrum. Hér hlaut vélhjólaklúbburinn Elding að vera saman kominn.
Þrír félagar úr Vélhjólaklúbbnum
 Eldingu á fundi í Golfskálanum
Inni sátu 26 drengir á aldrinum 14—15 ára, flestir hverjir. Það var verið að ljúka við að sýna kvikmynd, er fréttamaðurinn knúði dyra og auðvitað varð svolítil truflun, er fréttamaðurinn bar upp erindi sitt. Þarna voru leiðbeinendur Jón Pálsson og Sigurður Ágústsson lögregluþjónn. Sigurður hefur kennt drengjunum umferðarreglurnar og farið með þeim í ferðir um bæinn og verið þeim innanhandar á ýmsan hátt. Þarna var einnig drengur að nafni Símon Kjærnested og er sá formaður klúbbsins.

Spilað BOB
Eftirfarandi samtal er við hann og aðra, sem lögðu orð í belg.
 — Hvað eruð þið margir í klúbbnum? — Um 40 strákar á aldrinum 13—17 ára.
— Hvað gerið þið? — Við komum hér saman á miðvikudagskvöldum. Hér eru kenndar umferðarreglurnar, svo kemur hingað maður, sem kennir okkur um vélarnar. í sumar ætlum við í ferðalög, aðallega upp í Rauðhóla, því þar erum vi ð búnir að fá land. Þar ætlum við að gera brautir og fara í kapp og einnig að leysa þrautir — setja upp kubba og svoleiðis.
— Hvað kostar ný skellinaðra? — Svona 16 þúsund. — Það er dýrt, maður. — Einum of mikið. Maður er allt sumarið að vinna fyrir þessu.
Jón Pálsson,Simon Kjærnsted formaður
klúbbsins og Sigurður Águstsson
 — Hvaða hjól eru bezt? — Viktoría.— Nei, blessaður vertu, það er NSU, sagði annar. Það var auðheyrt, að þetta var viðkvæmt mál.
— Eruð þið ekki óvinsælir? — Af hverju? — Nú, er ekki svo mikill hávaði í skellinöðrunum?
— Já, svoleiðis. Nei, nei, það er bara fyrst. Annars megum við ekki keyra í hóp — t. d. á rúntinum — þá verður allt vitlaust.
— Hvað komizt þið hraðast? — 70. — Nei, 80, sagði annar. Strákarnir fóru að hlæja. Og einn sagði: Þið komizt kannski á 70 niður brekku! Síðan sættumst við á að yfirleitt færu skellinöðrurnar ekki hraðar en 40—50 km á klst.
Klúbbmeðlimir Saman komnir
— Er nokkur kvenmaður á svona hjólum? — Nei, það held ég ekki. — Jú, ég þekki eina, sagði annar ákafur, hún er í Keflavík. — Já, sagði sá þriðji, það er hjúkrunarkona á Vífilsstöðum, sem er á svona hjóli. Sá fjórði sagði eitthvað, sem kom Jóni Pálssyni til að leggja við hlustirnar og hann sagði: Strákar, þið verðið að gæta heiðurs klúbbsins!
Og þá var hinu formlega samtali lokið og það sem á vantar skýrum við bezt með myndum.


Fálkinn 15.02.1961
https://timarit.is


5.2.70

Eldingu lostnir 1968


ELDINGU LOSTNIR..



Vélhjólaklúbburinn Elding hefur starfað í liðlega 7 ár. í klúbbmum fá ökumenn vélhjóla fræðslu um umferðarmál og einnig hafa þeir aðstöðu til að gera við hjól sín. Að sögn lögreglunnar hefur ástandið í umferðinni hvað varðar stráka á vélhjólum, batnað að mun síðan klúbburinn hóf starfsemi sína, enda veitir hann meðlimum nokkuð aðhald hvað viðvíkur skynsamlegum akstri í umferðinni og einnig
skapar hann eins konar stéttar vitund hjá þeim. Klúbburinn starfar á vegum Æskulýðsráðs Reykjavíkur og hefur Jón Pálsson haft umsjón með starfsemi hans. I viðtali við blaðið skýrði Jón frá stofnun og starfsemi klúbbsins og fer viðtalið hér á eftir.
„Hver voru tildrögin að stofnun klúbbsins?"
„Tildrögin voru með nokkuð einkennilegum hætti. Það varð mikið slys í Kleppsholtinu, þannig að tveir drengir voru á vélhjóli, óku glannalega. svo dauðaslys hlauzt af.   Nokkru seinna fékk tómstundaþáttur útvarpsins bréf, sem fjallaði um það, hvort enginn aðili annaðist fræðslu varðandi akstur vélhjóla, eða hvort til væri félagsskapur í því sambandi. Svo reyndist ekki og við athugun kom í ljós að grundvöllur var fyrir slíka starfsemi. Upp úr  því stofnaði ég þennan klúbb ásamt Sigurði Ágústssyni, á vegum Æskulýðsráðs og lögreglunnar í nóvember 1960. Það voru á milli 30 og 40 strákar sem gengu í klúbbinn við stofnun hans. Klúbburinn hefur starfað æ síðan, vetur og sumar.
..Hvert er markmið klúbbsins?"
 „Markmið klúbbsins hefur frá upphafi verið: Að koma á föstum skemmti. og fræðslukvöldum, þar sem eigendum og verðandi eigendum vélhjóla, gefst kostur á að koma saman og ræða áhuga mál sín.
Af efna til fræðslu um umferðarmál.
Að fá hentugt æfingasvæði og koma á þroskandi æfingum í akstri á vélhjólum.
Að gefa klúbbfélögum kost á að vinna að viðgerðum á hjólum sín um.
Að efna til hæfnisprófa í umferðarreglum, aksturshæfni og meðferð vélhjóla.
Að efna til ferðalaga.
„Hvað eru margir meðlimir í klúbbnum nú"?
,,í klúbbnum eru skráðir að jafnaði um 60 og 70 strákar. Þeir koma í klúbbinn 15 ára, en svo fá þeir bílpróf 17 ára og hverfa þá úr klúbbnum. „Hvar hefur klúbburinn aðsetur sitt?"
Jón Pálsson
Hann hefur aðsetur í Golfskálanum gamla, og þar eru haldnir fundir á fimmtudagskvöldum. Þar er einnig smáviðgerðarverkstæði, þar sem piltarnir hafa aðstöðu til að gera við hjól sín. Verkstæðisformaðurinn er einn af meðlimum klúbbsins,  Steingrímur Jónsson. Við höfum verið að berjast fyrir því að fá æfingasvæði fyrir klúbbinn en það hefur gengið mjög erfiðlega og það er eins og þetta málefni finni ekki hljómgrunn hjá borgar yfirvöldunum. Við höfum að vísu verið nokkuð uppi í Rauðhólum, eir*það er friðlýst land og má lítið gera þar. Þá höfum við einn ig verið með æfingaþrautir sem við höfum reynt að útfæra á vor in. Síðastliðið haust vorum við með góðaksturskeppni og þar felldum við inn þessar þrautir. Á sumrin hafa strákarnir farið nokkuð í útilegur og höfum við Sigurður farið með þeim um Reykjanesið í kynnisferðir. Það, sem klúbburinn lagði mikla áherzlu á, fyrir nokkrum fellssveit sem háð eru þessum ákvæðum.
„. Það, sem klúbburinn lagði mikla áherzlu á, fyrir nokkrum árum var, að framkvæmd væri einhver kennsla fyrir þá sem ætla að taka próf á vélhjól. Umferðin er orðin það mikil, að ekki er forsvaranlegt að láta pilta fara út í umferðina án þess að fá undirstöðu varðandi okkar umferðarlög. Var þetta rætt af hálfu klúbbsins við lögreglustjórann í Reykjavík. Tók hann þessu máli vel og ákvað að enginn færi í próf hjá bifreiðaeftirlitinu, sem ekki hefði skilríki frá Eldingu þess efnis að hann hefði lokið ákveðnu undirbúningsnámskeiði. Þessi námskeið erum við búnir að vera með síðan síðla sumars 1966 og fram á þennan dag og hafa um 180 piltar farið í próf hjá okkur. Það eru Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes og Mosfellssveit sem háð eru þessum ákvæðum.


Hvað fer fram á fundum klúbbsins?"
„Við erum með leiktæki í Golfskálanum og höldum fundi á hverjum fimmtudegi. Annan hvern fimmtudag höfum við kvikmyndasýningar. Við reynum þá að ná í umferðarmyndir, aksturs myndir og fræðslumyndir um umferðina, akstur í -íhálku o. fl. Við reynum á þennan hátt að hafa áhrif á strákana varðandi umferðina, og lögreglan segir að ástandið í þessum efnum sé mikið betra síðan Elding tók til starfa.
„Sækja piltarnir fundina vel"? 
„Á veturna meðan þeir eru í skóla, er ýmislegt, sem tefur og truflar, en yfirleitt mæta á fund
unum á milli 20 og 30 strákar".
,,Er starfsemi klúbbsins eitthvað styrkt fjárhagslega?
„Klúbburinn starfar á vegum Æskulýðsráðs og hefur ókeypis húsnæði og aðstöðu í Golfskálanum og leiðbeiningar á verkstæði eru greiddar af borgarsjóði.
„Svo við víkjum aftur að undirbúningi piltanna undir próf á vélhjól.
Hvernig fer sá undirbún ingur fram í smærri atriðum?"
 „Þegar piltarnir eru orðnir 15 ara, hafa þeir réttindi til að fara í próf. Þá koma þeir til okkar á Fríkirkjuveg 11 og fá æfingarheimild. Við skráum þá inn í undirbúning og látum þá um leið fá tilvísun til lögreglustjóra um það, að þeir séu búnir að koma til okkar og skrá sig, og að við munum annast að undirbúa þá undir próf, þannig að þeir megi fá bráðabirgðaæfingaheimild. Á þeim hálfa mánuði sem æfingaheimildin gildir, þá prófum við. þá. Þegar þeir hafa staðizt próf in hjá okkur fá þeir vottorð um að þeir hafi verið í undirbúnings námskeiði, og staðizt próf hjá okkur.
,,Eru. ekki margir sem taka próf árlega á vélhjól?"
„Árið sem leið og það sem af er þessu hafa um 180 tekið próf."
„Er skylda, að þeir sem akavélhjólum hafi hjálm?"
„Nei, það er ekki lagaskylda ennþá, en við erum að berjast fyrir því að svo verði. Hins vegar er skylda að þeir hafi hjálm er þeir taka ökuprófið á hjólin. Það er nauðsynlegt að allir sem aka vélhjólum hafi hjálm því það hefur komið í ljós að nokkur dauðaslys hafa orðið beinlínis vegna þessa að ökumenn hjólanna hafa ekki verið með hjálm. Í sumum tilfellunum er ljóst að hjálmurinn hefur bjargað lífi þeirra. Það ætti skilyrðislaust að setja þetta í lög.
 „Er ekki algengt að piltar aki vélhjólum án þess að hafa til þess réttindi?"
„Það er náttúrulega eitthvað um slíkt. Og það er sök foreldranna að leyfa þeim að vera með þessi tæki. Sérstaklega er slæmt að gefa unglingum vélhjól áður en þeir ná 15 ára aldri, því það er ætíð freistandi að vera með slík tæki í höndunum, og fá að nota þau. Einnig er  mikililvægt að lána ekki hjólin. Ef eitthvað kemur fyrir í slíku tilfelli eru þeir réttlausir. Einn varð t. d. fyrir 6000 króna
peningasekt fyrir skömmu, en hann hafði lánað hjólið og sá sem fékk það lánað varð valdur að skemmdum, og varð eigandinn að borga tjónið.
„Hefur komið til umtals að breyta aldurstakmarki varðandi réttindi til aksturs vélhjólum?"
„Nei, en hins vegar er mikið rætt v/n orku hjólanna. En hún var kominn út í öfgar. Piltar hér áttu hjól allt að 4,5 hestöflum, en lögin kváðu á um 1,5 hestafl. Þá var farinn millivegurinn, því miður vil ég segja, og var orka hjólanna takmörkuð við 2,5 hestöfl. Ég álít að hjól með 2,5 hestafla vél þoli ekki þau erfiðu akstursskilyrði sem hér eru, og skemmast hjólin því mjög fljótt, þannig að gjaldeyrislega séð borgar þetta sig ekki. Einnig ?r alltaf fyrir hendi sú hætta, að piitarnir fari út í að breyta vélum  hjóla sinna og geri þær sterkari. Ef að eftirlit lögreglunn ar er ekki nægjanlega mikið, þá er alls ekki gott að gefa þannig tilefni til lögbrota, að ástæðulausu. Hins vegar að takmarka aldurinn við 15 ár og hraðann við 45-50 km. tel ég mjög jákvætt, miðað við það, að þetta eru atvinnutæki fyrir fjölda
marga unglinga í löngu skólaleyfi.
„Nú gera unglingar mikið að því að tvímenna á vélhjólum. Hvað viltu segja um það?"
„Ég álít að skylda beri innflytjendur til að hafa sæti á vélhjól um þannig, að ekki sé hægt að tvímenna á þeim, því það er mikil freisting fyrir unglinga að tvímenna á hjólunum."

 Að lokum sagði Jón Pálsson að hann væri mjög ánægður með árangurinn af starfsemi klúbbsins og væri hann áreiðanlega til eflingar umferðarmenningunni. 


___________________________________________________________________
Svipmynd frá góðaksturskeppni. 

"Prýðilegur félagsskapur"



Elding hélt góðaksturskeppni fyrir ökuþóra vélhjóla í haust. Þátttakendur í keppninni voru margir og sigurvegari varð Árni Möller, ungur Reykvíkingur. Blaðamaður ræddi stutta stund við Árna:
,,Ert þú búinn að aka vélhjóli lengi?" 
„Nei, það er nú stutt síðan ég byrjaði, tók prófið í júní í sumar."
Byrjaðir þú þá strax að starfa í Eldingu?"
 „Já, já".
Hvernig er að þínum dómi aðstaðan sem þið hafið þar? ,,Hún er að mínum dómi ágæt. Þetta er prýðilegur félagsskapur".
„Telur þú að klúbburinn hafi jákvæð áhrif varðandi akstur pilta á bifhjólum?"
 ,,Já, tvímælalaust".
Hvað kom til að þú vannst  þessa keppni, hafðirðu æft þig mikið í slíkum akstri? 
,,Nei, ekki vitund. Ég veit eiginlega ekki  vernig þetta varð. Mér datt þetta ekki í hug fyrr en mér var sagt þetta".
„Hvernig hjól átt þú Árni?"
 „Ég á Hondu".
„Notar þú hjálm, þegar þú ert á hjólinu?"
„Já, alltaf".
 „Hefur þig hent óhapp í akstri?"
„Nei, ja maður dettur svona við og við, en ég hef aldrei lent í neinu alvarlegu."

Alþýðublaðið
1.3.1968