Mótorhjólaheimurinn

Um klúbbinn

Í september árið 2006 var Bifhjólaklúbbur Norðuramts Tían stofnuð og er hún hollvinafélag  Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri.

Tían var stofnuð í lok september 2006 í minningu Heidda #10 sem lést í mótorhjólaslysi í júlí 2006.
Heiddi var án vafa einn allraþekktasti mótorhjólamaður Íslands og var vinamargur vegna þess að hann var ætíð hjálpsamur mótorhjólafólki hvort sem það var vegna bilana eða ef fólki fantaði gististað.
Hann var mótorhjólamaður í gegn og var hanns æðsti draumur að setja á legg Mótorhjólasafn á Akureyri.

 
Tían hefur í dag um 500 meðlimi en um 200 eru virkir um að leggja fram vinnu, aðstoð og að stuðla að uppbyggingu og hagsmunum safnsins. Margir félagsmenn Tíunnar og aðrir velunnarar safnsins hafa boðist til að lána safninu hjól og aðra gripi til varðveislu eða á einstakar sýningar. Mótorhjólasafn Íslands er sjálfseignarstofnun sem
ætlað er að standa undir rekstri safnsins og annarri starfsemi.

Í kjölfarið á fjármálahruninu haustið 2008 var hafist handa við byggingu Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri.
Framkvæmdin við nýbygginguna hófst í janúar 2009 og opnaði safnið dyr sínar fyrir gestum þann 15. maí 2011, á afmælisdegi Heiðars Þórarins Jóhannssonar, Heidda. 

Heiddi var fæddur 15. maí 1954 á Akureyri og bjó þar alla sína tíð. Hann var forfallinn áhugamaður um  mótorhjól og átti mörg þeirra sem mynda kjarnann í safnkosti safnsins. Heiddi lést í mótorhjólaslysi 2. júlí 2006 en ári síðar tóku vinir og vandamenn sig til og einsettu sér að koma safninu á laggirnar. Heiddi var einn af stofnendum
 Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglanna, sem er mótorhjólaklúbbur stofnaður
1.apríl 1984. Tilgangur klúbbsins er að koma á samstarfi bifhjólafólks, gæta hagsmuna þeirra og hvetja almennt til ánægjulegrar bifhjólamenningar. Heiddi fékk númerið 10 í félagatali samtakanna og var virkur í klúbbnum allt til dánardags. Fyrir störf sín fékk Heiðar heiðursverðlaun Sniglanna árið 2002. Hollvinasamtök Mótorhjólasafnsins, Tían, fékk heiti sitt af þessu númeri Heidda í Sniglunum, en meðlimir Tíunnar vinna að því að stuðla að uppbyggingu safnsins. 

Með því að gerast félagi í Tíunni styrkir þú mótorhjólasafnið á marga vegu.
Hluti af félaggjaldinu rennur beint til safnsins, og reyndar mun meira því klúbburinn stendur fyrir viðburðum og skemmtunum fyrir mótorhjólaáhugafólk.
Klúbburinn er non profit klúbbur og fara allar eignir klúbbsins til Motorhjólasafnsins ef hann verður lagður niður.